Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð vegna orða hæstv. ráðherra. Mér þótti ekki koma alveg skýrt fram hversu mikið og hvernig tekið væri á því tilliti sem taka verður til annarrar byggðar í grenndinni. Að vísu kom fram í upptalningu hæstv. ráðherra að tekið væri mið af nálægð við byggð og hugsanlegum byggingarsvæðum en mig langar til þess að biðja um ögn gleggri upplýsingar þar sem þetta mál er sérstaklega til komið vegna sérstakra athugasemda frá nágrannabyggðinni, Mosfellsbæ, og fá að vita hvernig vænta má að tekið verði á samstarfi við nágrannabyggðirnar og þeirri sjálfsögðu vinnureglu að fara eftir ábendingum þeirra sem málið snertir mest.