Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. umhvrh. fyrir hans svör. Því miður gefa þau ekki tilefni til mikillar bjartsýni þar sem hann vísaði einkum til þess sem þegar er fyrir hendi. Þó tek ég undir það, og vona að af verði, að mengunarvarnir eru ekki sérmál hafna heldur verður að vera staðið að því á landsvísu, því þetta er okkar sameiginlega ábyrgð.
Það kemur fram í þeirri grein sem ég vitnaði hér upphaflega til að um 25 skip koma með olíu til Reykjavíkur árlega. Farmur þessara skipa getur verið allt að 35 þús. tonn af olíu. Eyjólfur Magnússon, fulltrúi í mengunardeild Siglingamálastofnunar, segir að búnaðurinn í Reykjavík nú sé aðeins hæfur til að bregðast við minni háttar óhöppum á hafnarsvæðinu og annars staðar á landinu sé ástandið jafnvel verra og þar sé afskaplega lítið gagn að hafa. Hér er því í rauninni lágmarksbúnaður sem dugar engan veginn og fyrstu aðgerðir varða mestu. Auk þess hefur í þessu svari ekkert verið fjallað um forvarnir sem hljóta óhjákvæmilega að vera mikilvægur hluti af áætlun um mengunarvarnir og ekki um hvað beri að gera á landi. Þar geri ég mér grein fyrir að er um mjög flókið mál að ræða en engu að síður vil ég gera athugasemdir við þetta.
Ég vil að lokum, vegna þess að við höfum einkum fjallað hér um sjóinn og það er í rauninni kveikjan og vakinn að þessari fyrirspurn, benda á að við verðum að læra af reynslu sögunnar og við þolum ekki að vera ekki viðbúin við alvarlegu mengunarslysi því að sé um mjög alvarlega mengun að ræða og aðgerðir vegna hennar eru ekki fullnægjandi getum við jafnvel verið að stefna öllu lífríki sjávarins í hættu.
Við stóðum frammi fyrir því undir lok seinustu aldar að þá varð mikið slys af öðrum toga í Faxaflóa og víða við strendur landsins þegar fiskimiðin voru nánast hreinsuð upp við landsteinana og togarar gereyddu öllu lífi. Við höfum það í okkar valdi að láta ekki alvarlegt slys henda aftur við strendur landsins og við verðum að taka af mikilli ábyrgð á þeim hættum sem við þekkjum og eru fyrirsjáanlegar.