Lögreglustöðin í Grindavík
Fimmtudaginn 22. nóvember 1990


     Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason) :
    Frú forseti. Ég þakka dómsmrh. svörin. Reyndar hef ég áður heyrt að þetta væri alveg að koma. Ég vænti þess að það sé staðreyndin núna. Ég legg áherslu á að það er mjög mikil nauðsyn að strax verði hafist handa og þessu lokið sem allra fyrst. Grindavík er ein stærsta verstöð landsins og eru verkefni lögreglunnar mikil. Ég vil geta þess að á síðasta ári voru útköll 1181 og lögregluskýrslur samtals 520 og þar voru í fyrra 12 verbúðir yfir vetur og aðkomumenn 706. Ég gæti haldið lengi áfram en stilli mig um það vegna tímaskorts. En ég vænti þess að nú verði hafist handa og hvergi tafir á málum.