Skráningarkerfi bifreiða
Fimmtudaginn 22. nóvember 1990


     Eiður Guðnason :
    Virðulegi forseti. Hér er hreyft máli sem er allrar athygli vert og hefur mikið verið til umræðu hér á hinu háa Alþingi enda þótt svo kunni nú að vera að ekki þyki öllum málið mjög stórvægilegt. Engu að síður hefur þetta verið hitamál og svolítið tilfinningamál. Það voru margir hér á Alþingi sem andmæltu þegar samþykkt voru lög um að breyta númerakerfinu og ég hygg að það hafi verið mjög ákveðin fylgni milli þeirrar andstöðu og þeirra sem þá höfðu lág númer eða með einhverjum hætti sérkennileg númer á sínum bílum. Ég hygg að sú fylgni hafi verið afar augljós og nægi í þeim efnum að skoða mælendaskrá þegar málið var hér til umræðu og hvernig skoðanir skiptust. Það fer ekki á milli mála.
    Gamla kerfið var óþjált og önugt að mörgu leyti. Það kostaði umstang og vesen vildu menn halda sínu númeri, sem mjög margir vildu sem áttu númer sem þeir höfðu tekið tryggð við af einhverjum ástæðum, t.d. ef númer voru eins, tveggja eða þriggja stafa þar sem bílar voru margir og númer kannski fjögurra og fimm tölustafa. Engu að síður hygg ég að hagræðið sem varð af þessari breytingu sé óumdeilt. En mér sýnist að samkvæmt þessari tillögu, verði hún samþykkt, megi að skaðlausu fara þarna bil beggja þannig að menn hafi umdæmisstafinn sinn fremstan, bókstafirnir verði þrír, og síðan við sölu eða
flutning milli umdæma líma menn einfaldlega nýjan staf yfir þann gamla. Bókstafirnir verða þrír en það eru þeir tveir síðari sem gilda að því er varðar lögskráningu ökutækisins. Mér sýnist þetta vera nokkuð snjöll hugmynd og geta komið til móts við þá sem vilja hafa héraðsmerkið.
    Hv. þm. Skúli Alexandersson vék að því hér áðan að honum þætti miður að sjá ekki hverjum hann er að mæta á þjóðvegunum í Vesturlandskjördæmi. Það er út af fyrir sig skiljanlegt sjónarmið en hitt má benda á að þegar menn mæta bíl á þjóðvegum landsins, þá er skynsamlegra að hafa augun annars staðar en á númeraplötu bílsins sem kemur manni í mót. Það er betra á vegunum eins og þeir eru víðast hvar að hafa hugann við mætinguna og hugsa um kantinn og eðlilegt bil á milli bílanna frekar en vera að horfa á númerið, þó að það geti auðvitað verið fróðlegt og skemmtilegt, kannski einkum þegar alþingismenn eiga í hlut sem gjarnan vilja heilsa sínum kjósendum þegar þeir mæta þeim á förnum vegi.
    Ég hygg að kostir nýja kerfisins séu óumdeildir. Mér finnst, og hef nefnt það hér áður í ræðustól á Alþingi, að það hefði átt að gefa mönnum kost á gegn ákveðnu gjaldi að kaupa númer og velja sér númer eftir því sem hægt er, velja t.d. upphafsstafi sína eða eitthvað sem þeir kysu. Ég held að í framkvæmd væri slíkt ákaflega auðvelt með tölvutækni þeirri sem notuð er við þessa skráningu. Ég held að það séu engin vandkvæði á því. En einhverra hluta vegna hafa menn ekki treyst sér til þess að gera þetta. Hins vegar hefur komið í ljós, og er óyggjandi að ég held og munu því máli raunar hafa verið gerð einhver skil í fjölmiðlum þó að það hafi að vísu farið fram hjá mér, að svo virðist sem ákveðnir menn geti fengið að velja sér númer í þessu nýja kerfi. Slíkt er auðvitað gersamlega ótækt. Í þessu efni eiga allir að sitja við sama borð. Það hafa verið nefnd um það dæmi og við þurfum kannski ekki, hv. þm., mjög langt að leita, bara hér út á bílastæði Alþingis til þess að sjá slík dæmi. Slíkt er auðvitað óþolandi. Annaðhvort eiga allir að eiga þess kost að velja sér númer gegn ákveðnu gjaldi eða enginn. Þetta kerfi á ekki að snúast um Jón og séra Jón eins og mér sýnist svolítið vera farið að gera og ég endurtek: Það er óþolandi. Sú var ekki ætlunin þegar þessi breyting var samþykkt. Það eru sem sagt einhverjar gloppur í kerfinu sem gera það að verkum að því er virðist að sumir geta valið sér númer og aðrir ekki. Hér eiga allir að sitja við sama borð. Þessu þarf að breyta.
    Hv. þm. Skúli Alexandersson vék að Bifreiðaskoðun Íslands og þeirri breytingu sem þar varð. Rétt er að komið hefur fram margvísleg gagnrýni á þessa stofnun, einkum varðandi þann kostnað sem er skoðuninni samfara, svo og þjónustunni við landsbyggðina. Þessi gagnrýni er að sumu leyti réttmæt en að öðru leyti er hún óréttmæt. Stofnun eins og Bifreiðaskoðun Íslands sem er í eðli sínu einokunarstofnun þarf auðvitað að vera háð ströngu eftirliti um kostnað. Svo vill til að ég hef tvisvar sinnum notfært mér þjónustu þessarar stofnunar. Í annað skiptið var það í hinni nýju og fullkomnu skoðunarstöð hér í höfuðborginni. Þar var þjónustan óaðfinnanleg og skoðunin ítarleg og góð. Og ég segi það hispurslaust, mér finnst það ekki mjög mikið að borga 2700 kr. fyrir að fá fullvissu um það að ekki stafi mengun frá bílnum, að hemlabúnaður og stýrisbúnaður sé í góðu lagi. Þetta var betri skoðun en nokkurn tíma fór fram hér áður við þær aðstæður sem voru hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins. Þar voru ekki aðstæður til slíkrar skoðunar. Mér finnst nokkuð fyrir það gefandi.
    Ég hef líka notfært mér skoðun úti á landi í hinni færanlegu skoðunarstöð. Ég hef heldur ekki undan neinu að kvarta varðandi þá þjónustu. Skoðunin var af eðlilegum ástæðum kannski ekki jafnítarleg og hún er í skoðunarstöðinni en hún var gaumgæfileg og vel framkvæmd og ekkert undan því að kvarta. Þar sem um dísilbíl var að ræða, þar sem ekki var hægt að mæla mengunina, kostaði þetta 2400 kr. ef ég man rétt. Það má auðvitað deila um það hvort það er mikið eða lítið en mér finnst það ekki ósanngjarnt.
    Miklar hækkanir urðu á verði á skoðun á vörubílum og stórum fólksflutningabílum og sérbúnum bílum. Það er ekkert óeðlilegt. Það er miklu meiri vinna að skoða þessa bíla, þá þarf að skoða betur og satt best að segja voru þau mál algerlega í lamasessi þangað til þessi skoðunarstöð kom og engar aðstæður til að skoða slíka bíla. Ég er ekki að sakast við þá starfsmenn sem þessi verk áttu að vinna. Aðstæðurnar voru bara ekki fyrir hendi, það var ekki hægt að skoða þá. Við minnumst þess úr fréttum fyrir einu og hálfu ári eða svo að slys voru býsna tíð þar sem stórir fólksflutningabílar komu við sögu, hemlabúnaði var

ábótavant og ýmislegt fleira var að. Hræddur er ég um og hætt er við að það hafi verið vegna þess að það var ekki aðstaða til slíkrar skoðunar. Ef menn hafa breytt bílum sínum frá því sem þeir voru framleiddir, þeir eru komnir í einhverja allt aðra mynd með öflugri vél, stærri hjólbarða, hærri, þá er eðlilegt að slíkir bílar þurfi ítarlegri skoðun og fyrir það borgi menn nokkru meira.
    Þjónustan við landsbyggðina er ekki nægilega góð af hálfu þessarar stofnunar eins og nú er. Ég hef kosið að líta á það sem vaxtarverki og byrjunarörðugleika og að þetta eigi eftir að batna. Og ég segi ekki bara það, heldur segi ég: Þetta verður að batna frá því sem nú er. Þessi stofnun þarf auðvitað að vera háð ströngu eftirliti varðandi verðhækkanir þar sem hún er ein á markaðnum og menn eiga ekki í annað hús að venda varðandi þessa þjónustu. En ég tek undir og ítreka það sem hv. þm. Skúli Alexandersson sagði um þá þjónustu sem veitt er hér í skoðunarstöðinni í höfuðborginni, að hún er góð. Sömuleiðis finnst mér það gjald sem þar er tekið í rauninni ekki vera ósanngjarnt.
    Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa fleiri orð um þessa tillögu. Ég held að hún sé allrar athugunar verð og komi til móts við sjónarmið sem haldið hefur verið fram tilfinningalegs eðlis og mæti nokkru af þeim rökum sem fram hafa komið gegn hinu nýja kerfi. En ég endurtek það að ég held að kostir nýja kerfisins séu ótvíræðir umfram hið gamla.