Ferðamálastefna
Fimmtudaginn 22. nóvember 1990


     Friðjón Þórðarson :
    Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra hefur fylgt úr hlaði till. til þál. um ferðamálastefnu. Að þessari tillögu hefur unnið ferðamálanefnd samgrn. sem svo er kölluð. Þetta er geysimikið og fjölþætt mál og mætti ræða það á löngum tíma í einstökum efnum, en þó mun ég aðeins hafa um það nokkur orð að sinni.
    Ég hef átt sæti í þessari nefnd af hálfu Sjálfstfl. Hún hefur unnið mikið starf að mínum dómi. Ég er ekki alveg ókunnugur þessum málum því að ég var formaður þeirrar nefndar sem endurskoðaði núgildandi löggjöf sem ég að sjálfsögðu viðurkenni að er áfátt í ýmsum efnum en þó barn síns tíma. Þessi mál hafa verið í örri þróun og mótun að undanförnu og ekki óeðlilegt að löggjöf um þau efni taki ýmsum breytingum.
    Ég heyrði utan að mér þegar ég kom hér í þingsalinn að einn ágætur flokksbróðir minn var með þetta skjal í höndum og hafði orð á því að þetta væri nú ljóti sósíalisminn eða eitthvað í þá veru. Ég held að þetta sé reginmisskilningur. Ég minnist þess ekki að á allri þessari löngu leið í starfi nefndarinnar hafi nokkru sinni verið minnst á pólitík, hvað þá heldur að í þessum málum hafi komið upp stjórnmálalegur ágreiningur. Nei, það sem að sjálfsögðu vakti fyrir okkur var að fylgja skipunarbréfi nefndarinnar og reyna að móta ferðamálastefnu, skapa almenn skilyrði til þess að einstaklingar og samtök þeirra geti notið sín í þessari atvinnugrein, eða eins og segir hér í greinargerðinni neðst á bls. 8, með leyfi forseta:
    ,,Ferðaþjónusta sem atvinnugrein á fyrst og fremst að standa á eigin fótum án opinberrar íhlutunar um málefni einstakra fyrirtækja. Tímabundinn stuðningur af hálfu ríkis eða sveitarfélaga getur þó verið nauðsynlegur og jákvæður, m.a. vegna aðstæðna í dreifbýli og við að koma fyrirtækjum á legg. Einnig er eðlilegt að opinberir aðilar eins og Skógrækt ríkisins og Náttúruverndarráð sjái um rekstur og eftirlit á völdum svæðum, svo sem í þjóðgörðum og í ríkisskógum. Þá er óhjákvæmilegt að Ferðamálaráð leggi í samvinnu við sveitarfélög og aðra aðila fram fjármagn til að koma upp aðstöðu á ýmsum ferðamannastöðum utan þéttbýlis.``
    Hlutverk nefndarinnar var að móta slíka almenna ferðamálastefnu og reyna að skapa henni skilyrði og farveg til að þróast á eðlilegan máta. Um þetta má að sjálfsögðu hafa mörg fleiri orð. Það verða allir að viðurkenna að þetta er vaxandi atvinnugrein, atvinnugrein sem við getum ekki horft fram hjá, atvinnugrein sem við verðum að styðja af öllum mætti ef vel á að fara.
    Það er ýmislegt sem má benda á sem er þessari atvinnugrein óhagstætt, t.d., eins og hér hefur verið nefnt í þessum umræðum, að matarverð sé of hátt, einnig að erlendum ferðamönnum sé leyft að taka með sér inn í landið of stóran matarskammt. En þetta vona ég að standi til bóta. Þetta er gjaldeyrisskapandi grein og við verðum að líta á málið frá því sjónarmiði.
    Ég sagði stundum í þessari vinnu okkar að núgildandi ferðamálalöggjöf væri hreint ekki svo slæm og ég stend að sjálfsögðu við það. Hitt er annað mál að sá tekjustofn sem hún byggði á brást. Því miður fundum við í þessari nefnd samt ekki annan betri tekjustofn á að byggja og höfum því lagt þetta svolítið í vald nútíðar og framtíðar, hvernig að þessum málum verður staðið. Það er vikið að því hér í greinargerðinni að fjárhagslegur stuðningur af hálfu ríkisvaldsins eigi fyrst og fremst að beinast að sameiginlegri yfirstjórn, skipulagi, menntun, rannsóknar - og þróunarstarfi í ferðamálum. Vissulega er þetta rétt. Þennan fjárstuðning þarf hins vegar að auka til muna frá því sem nú er á meðan verið er að koma þessari ungu atvinnugrein á traustan grundvöll og bæta úr vanrækslu okkar frá liðnum árum. Það er lágmark að Ferðamálaráð og starfsemi sem því tengist fái á næstu árum óskertan þann markaða tekjustofn sem núgildandi lög um skipulag ferðamála kveða á um eða annað hliðstætt framlag. Einnig þarf að sjálfsögðu fjármagn til uppbyggingar á öðrum sviðum sem tengjast ferðamálunum, m.a. fræðslumála. Þetta er að vísu meginatriði sem við verðum að horfast í augu við. Hins vegar má segja að þetta gildi að nokkru leyti um flest frumvörp sem við fjöllum um hér á hv. Alþingi.
    Ég tel að þessi nefnd sem hér hefur verið að verki hafi unnið mikið starf. Það má sjálfsagt gagnrýna það á ýmsan veg. Nefndin hefur rætt við fjölmarga aðila eins og hér sést á bls. 91: Viðmælendur ferðamálanefndar samgrn. Það þarf ekki annað en að renna augum yfir nöfnin til að sjá að hér hefur þurft langan tíma til að ræða við alla þessa aðila.
    Ég vona að þessari till. til þál. verði vel fagnað og hún fái ítarlega meðferð hjá atvmn., en eins og ég sagði í upphafi eru fjölmörg efni sem þarf að skoða og hér er um fjallað í þessari tillögu, t.d. það sem kom fram hjá síðustu ræðumönnum sem fjölluðu um umhverfisvernd og hálendið og löggæslu á hálendinu. Allt eru þetta aðeins nokkrir angar af þessu stóra og mikla máli. Það er ekki nóg með það að hér sé á ferðinni óvenjulega ítarleg
till. til þál. um ferðamálastefnu, heldur er einnig af hálfu nefndarinnar svo til fullgert frv. að nýrri löggjöf um ferðamál sem ég vona að verði sem fyrst sýnt hér á hv. Alþingi og hljóti þá meðferð sem þessu mikla máli þarf að sýna og því hæfir.