Fræðsla í fjármálaumsýslu í skólum
Fimmtudaginn 22. nóvember 1990


     Flm. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um fræðslu í fjármálaumsýslu í skólum. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að fela menntmrh. að láta semja námsgögn um almenna fjármálaumsýslu fyrir 10. bekk grunnskólans og framhaldsskólann og gera fræðslu um hana að skyldunámsgrein í efsta bekk grunnskólans og kjarnagrein í framhaldsskólanum. Markmið fjármálafræðslunnar verði:
    a. að taka til meðferðar sem flest er viðkemur almennri fjármálaumsýslu, þar með talið gerð greiðslu - og kostnaðaráætlana, og setja efnið þannig fram að það verði öllum aðgengilegt og skýrt,
    b. að gera ungt fólk betur meðvitað um fjármál og um leið fjárskuldbindingar, með því m.a.:
    1. að kynna nemendum meðferð greiðslukorta og notkun tékkhefta,
    2. að kynna nemendum almennar reglur um lántökur, svo sem víxla- og skuldabréfaviðskipti, vaxtamál og hvaða ábyrgð felst í því að gerast ábyrgðarmaður á skuldaviðurkenningum,
    3. að tengja þessi námsgögn réttindum og skyldum manna er þeir verða fjárráða.``
    Hæstv. forseti. Eins og fram kemur í grg. með till. er tilgangur hennar að stuðla að því að ungt fólk verði betur undir það búið að verða fjárráða og þá fjármálalegu umsýslu sem fylgir fullorðinsárunum. Þegar við lítum til baka hefur feikileg breyting á íslensku þjóðlífi átt sér stað. Þá breytingu má m.a. merkja í gjörbreyttri fjármálaumsýslu heimilanna í landinu. Það eru ekki margir áratugir síðan rekstur heimilisins var eins konar staðgreiðslurekstur. Það þekktist naumast að fólk tæki fé að láni, síst til neyslu, nema þá á þá lund að vera í föstum matarreikningi. Þetta átti eftir að gerbreytast í darraðardansi óðaverðbólgunnar á þeim tímum þegar sparnaður brann á verðbólgubáli en skuldir eyddust svo til af sjálfu sér að sama skapi. Á þeim árum var auðvelt að auka útgjöld sín og skuldir í trausti þess að þetta blessaðist einhvern veginn. Og í flestum tilfellum blessaðist það. Fólk sem nú er á miðjum aldri man tímana tvenna í þessu efni og þekkir vel það ábyrgðarleysi eða kæruleysi í fjármálum sem fylgdi verðbólguárunum, þ.e. þeim árum þegar inn - og útlán voru óverðtryggð.
    Með fullri verðtryggingu runnu þeir dagar upp að fólk þurfti að greiða sínar skuldbindingar að fullu. Svo er helst að sjá að kynslóð verðbólguáranna hafi gengið illa að semja sig að breyttum háttum. Við getum spurt okkur hvort á hafi skort að hún hafi skilað til næstu kynslóðar þeim viðhorfum um ábyrgð í fjármálum sem nauðsynleg eru. Án þess að alhæfa um þessi mál er það alla vega alvarlegt umhugsunarefni hve mikið er um að fólk stofni til skulda umfram greiðslugetu.
     Hér á hv. Alþingi hefur mikið verið fjallað um fjárhagsvanda og greiðsluerfiðleika fólks og vænlegar aðgerðir til úrbóta, eins hvernig aðstoða megi gjaldþrota fólk og eignalaust. Umfjöllun um greiðsluerfiðleika hefur oft tengst húsnæðismálum og sérstakir lánaflokkar hafi orðið til vegna þessa, svo sem greiðsluerfiðleikalán Byggingarsjóðs ríkisins.
    Það hefur komið fram í skýrslum að vandi þeirra sem leitað hafa til Húsnæðisstofnunar vegna greiðsluerfiðleika er af ýmsum toga. Þannig hefur vandinn verið flokkaður í vandi ófyrirséður, vandi fyrirséður og annað. Ef við skoðum það sem kallast vandi fyrirséður er t.d. um að ræða skilgreiningu um offjárfestingu, óreiðu, óskipuleg íbúðarkaup eða húsbyggingarframkvæmdir, bifreiðarkaup eða óskiljanlegt og jafnvel nám. Annað getur verið vandi vegna atvinnurekstrar eða að umsækjandi er í vanda vegna skulda annars aðila, þ.e. hefur gengist í ábyrgð að láni eða lánum. Þegar um offjárfestingu er að ræða má oft rekja hana til vanþekkingar eða kæruleysis í meðferð fjármála. Kostnaðar - og greiðsluáætlanir hafa ekki verið gerðar eða ekki eftir þeim farið.
    Það taldist til undantekninga hér fyrr á árum að fólk væri lýst gjaldþrota nema þegar um fyrirtækjarekstur var að ræða, en stöðugt fleiri einstaklingar hafa orðið gjaldþrota upp á síðkastið vegna húsnæðisöflunar eða jafnvel vegna neysluskulda. Því miður hefur það einnig aukist mjög að einstaklingar sem gerst hafa ábyrgðarmenn á skuldum vina eða ættmenna sinna hafa lent í erfiðleikum eða jafnvel misst eigur sínar vegna þess að lántakandinn stóð ekki við skuldbindingar sínar eða reyndist ekki borgunarmaður að þeim.
    Margir segja að rót þess vanda sem ég er að lýsa hér sé hve bankar séu fúsir til að lána, að bankar geri kröfu til að eignamenn séu ábyrgðaraðilar lána, en umfram það sé lítið gert til að henda reiður á hvort lántakandinn sé borgunarmaður, hvort greiðslugeta viðkomandi leyfi lántökuna. E.t.v. skortir líka á að bankar hafi fulla yfirsýn yfir fjárhagsstöðu viðskiptavinar þar sem algengt hefur verið hjá okkur að einstaklingar séu með mörg lán í mörgum bönkum.
    Hér á landi fara ungmenni fyrr út á vinnumarkaðinn en þekkist víða annars staðar. Vísa ég þá í hið sérstaka og þarfa fyrirkomulag sem vinnuskólar eða svokölluð unglingavinna sveitarfélaga er auk hefðbundinnar sumarvinnu ungmenna almennt. Við höfum hreykt okkur af því að okkar skólafólk hafi meiri þekkingu á atvinnulífinu, vegna eigin þátttöku, en jafnaldrar þeirra erlendis. Það er óhugsandi að nokkur fari í gegnum langskólanám hjá okkur öðruvísi en að samhliða því hafi hann kynnst vinnumarkaðnum af eigin raun meðan það er algengt víða um lönd að ungt fólk fer þá fyrst út á vinnumarkað þegar námi er lokið. Þegar litið er til þessara staðreynda verður það enn óskiljanlegra að svo víða sé pottur brotinn í fjármálaumsýslu. Ég nefndi áður lánveitingar banka en hef ekki nefnt tilboðin um afborgunarkjör sem mörgum hafa reynst erfið freisting. En verstu dæmin hafa e.t.v. verið sjálftökulánin og á ég þá m.a. við greiðslukortaeyðslu. Við erum með met í svo mörgu og eitt af því skilst mér að sé fjöldi gjaldþrota hérlendis miðað við nágrannalönd.

    Í frv. til laga um gjaldþrotaskipti sem liggur nú fyrir Alþingi kemur m.a. fram að í 85 -- 90% tilvika komi engar eignir fram við gjaldþrotaskipti þannig að skiptum er lokið án þess að lánardrottnar fái greiðslur upp í kröfur sínar.
     Það sem er einna alvarlegast varðandi gjaldþrot er hve ungum þrotamönnum fjölgar ört. Hjá embætti borgarfógeta í Reykjavík voru tekin til gjaldþrotaskipta 588 bú á tímabilinu 1. jan. til 31. ágúst á þessu ári. Þar af voru bú félaga 175 en bú einstaklinga 443. Samkvæmt upplýsingum embættisins var aldursskipting þannig að 17 voru fæddir 1969 eða síðar, 46 voru fæddir 1966 -- 1968, 76 voru fæddir 1961 -- 1965, 139 voru fæddir 1951 -- 1960 og 165 voru fæddir 1950 eða fyrr. Því miður hef ég ekki upplýsingar um fjölda gjaldþrota hjá öðrum embættum. En það hlýtur að vera okkur öllum mikið umhugsunarefni að á ekki lengri tíma en átta mánuðum skuli 139 einstaklingar undir þrítugu vera lýstir gjaldþrota hjá þessu eina embætti og þar af skuli 63 vera yngri en 24 ára. Mér er kunnugt um að við eitt af fógetaembættum landsins tók einn starfsmaður skiptaréttar upp ný vinnubrögð þegar gjaldþrotum ungs fólks fjölgaði. Þar er alltaf tekin skýrsla og síðan er gefinn frestur til að reyna að leysa málin. Hefur mér verið sagt að gjaldþrotum þessa hóps hafi þá fækkað verulega. Fæst okkar gera sér grein fyrir því að ungt fólk hefur meira að segja ekki alltaf vitað að búið var að gera það gjaldþrota. Það má því e.t.v. segja að nauðsyn beri til að kenna grundvallaratriði laga og réttar, kenna að fylgjast með útgáfu laga sem snúa að almenningi svo fólk kunni einfaldlega að fylgjast með þessum málum. Um það er þó ekki gerð tillaga hér.
    Virðulegi forseti. Mér hefur borist í hendur haustdagskrá starfskynningarnámskeiða sem haldin eru í Gerðubergi tvisvar í viku. Námskeiðin eru tilraunaverkefni með stuðningi menntmrn. í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í atvinnulífinu. Fyrirtækin leggja til öll námsgögn og kennara. Reykjavíkurborg leggur til húsnæði í Gerðubergi og tveir kennarar annast kennslufræðilega ráðgjöf og hafa umsjón með námskeiðunum á vegum ráðuneytisins. Á þessu hausti eru sjö námskeið í boði og er eitt þeirra um starfsemi banka og sparisjóða. Á því námskeiði er m.a. sparnaðar- og útlánaþjónusta bankanna kynnt, ræddir ýmsir sparnaðarmöguleikar, reiknaðar út mismunandi ávöxtunarleiðir og hvað kostar að fá peninga að láni. Þarna er líka komið inn á tékkareikninga, vanskil og farið yfir greiðslubyrði skuldabréfs við ákveðin kaup og sparnað til sömu kaupa.
    Þetta starfskynningarnámskeið, sem kostað er af einum bankanna, er spor í átt að þeim markmiðum sem sett eru fram í þeirri till. til þál. sem hér er til umræðu.
    Virðulegi forseti. Þó ég hafi dregið hér upp fremur dökka mynd varðandi almenna fjármálaumsýslu fólks legg ég áherslu á að varast ber að alhæfa og á engan hátt er vegið að öllum þeim sem standa við sitt. En bara þær tölur sem ég hef kynnt frá embætti borgarfógeta segja okkur að mikil þörf er á að auka

fræðslu um almenna fjármálaumsýslu. Það er skoðun mín að sú fræðsla eigi að hefjast í efsta bekk grunnskóla og síðan eigi að fylgja henni eftir í framhaldsskóla.
    Virðulegi forseti. Að lokinni umræðu óska ég eftir að till. verði vísað til hv. félmn.