Fræðsla í fjármálaumsýslu í skólum
Fimmtudaginn 22. nóvember 1990


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Aðeins örstutt vegna ummæla hæstv. viðskrh. hér áðan. Að vísu hljóp hann út úr salnum eftir að hann hafði haft þau í frammi. En það var athyglisvert að maður sem er lærður í hagfræði skuli halda því fram sem hann hélt hér fram, og skuli leyfa sér það á Alþingi Íslendinga að hæla sér af því að ná verðbólgunni niður með þeim hætti sem hann gerði. Það vita allir sem hafa lært almenna þjóðhagfræði að eitt af þeim atriðum sem er talið að sé hægt að ná verðbólgu niður með er að lækka laun fólks og hækka skatta. Þetta hefur hæstv. ríkisstjórn gert með miklum glæsibrag og náð verðbólgunni niður. Svo einfalt er það. Ummæli hæstv. ráðherra hér áðan eru því í rauninni manni sem á að teljast nokkuð lærður á þessu sviði til vansa. Og hann verður náttúrlega að gefa skýringu á því af hverju hann heldur slíku fram því þetta er grundvallaratriði og undirstöðuatriði í kennslu í almennri þjóðhagfræði. Ef hann skyldi ekki vita það þá verður hann bara að læra sitt fag upp á nýtt. Maður getur spurt sig: Er þessi maður hæfur til þess að stjórna landinu? Hann hefði bara gott af því að nema upp á nýtt og lesa almenna þjóðhagfræði eftir Ólaf Björnsson, sem hann gæti þá lært svolítið af. Þetta er alveg grundvallarhugtak í almennri þjóðhagfræði. Og ef hæstv. ráðherra veit ekki betur þá verður hann bara að fara að lesa sitt fag upp á nýtt. Svo einfalt er það.
    Ég verð að lýsa algerri undrun á slíkum málflutningi hjá menntuðum manni sem gefur sig út fyrir það að vera sérfræðingur á þessu sviði og hefur staðið í forsvari við virðulegustu stofnun landsins, Þjóðhagsstofnun, um árabil. Undrar mann nú e.t.v. ekki af hverju hæstv. ráðherra hefur ekki náð árangri á meðan hann var þar. Og hælir sér af því að með sameiginlegu átaki verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda hafi verið ákveðið að ná verðbólgunni niður á kostnað launþega, með dyggri hjálp núv. ríkisstjórnar sem hefur lagt á hærri skatta en hafa verið lagðir á í 20 -- 30 ár. Þetta eru staðreyndir málsins. Og þess vegna er verðbólgan lág. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þetta grundvallaratriði í almennri hagfræði geta menn lesið í hvaða kennslubók sem er.
    Ég ætla ekki að öðru leyti að hafa nein frekari orð um þetta en vil ítreka það fyrst ég er kominn hér í ræðustól á annað borð að ég tel að þessi till. sé þörf og enn þá þarfara væri að kenna ráðamönnum þjóðarinnar eitthvað í almennri hagfræði og bókfærslu og fjármálastjórn eftir það sem ég hef heyrt hæstv. ráðherra segja hér.