Rannsókn kjörbréfs
Mánudaginn 26. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi, Sigrún Jónsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti, með ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.``
    Sigrún Jónsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því kjörbréfanefnd að prófa kjörbréf hennar skv. 4. gr. þingskapa. Gert verður hlé á fundinum í 5 mínútur á meðan kjörbréfanefnd starfar. --- [Fundarhlé.]