Sérprentun á húsnæðislögunum
Mánudaginn 26. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða vill forseti ítreka að hann harmar að svo hafi farið að ekki beri saman sérprentun og Stjórnartíðindum og mun að sjálfsögðu beita sér fyrir því að dreifing þessarar sérprentunar verði tafarlaust stöðvuð og málið leiðrétt.