Flm. (Stefán Valgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Ég var dálítið hissa á hv. 1. þm. Reykv. hér áðan. Hvorki hann né aðrir munu segja mér fyrir verkum eða hvað ég eigi að gera eða segja. Ég hef alltaf rekist illa og a.m.k. mun ekki láta hv. þm. Sjálfstfl. segja mér hvað ég skuli gera.
    En ég var líka hissa á hæstv. forseta og raunar hv. 1. þm. Reykv. Það kom ekki fram í þeirra máli að neitt væri athugavert við það að greiða atkvæði með svona lögum eða þau vildu fá umsögn annarra sem hafa sérfræðilega þekkingu á þessu máli. Það finnst mér athyglisvert. Ég mótmæli því sem kom fram hjá bæði hæstv. forseta og hv. 1. þm. Reykv. að Alþingi geti ekki óskað eftir því að umboðsmaður Alþingis segi sitt álit eða gefi skýrslu í svona máli. Ég tók það fram í minni ræðu að það væri alveg undir honum komið hvort hann gerði það. Það liggur ljóst fyrir. Og það kom fram í minni ræðu að ég mundi sætta mig við það ef aðrir, sem til þess hefðu sérstaka þekkingu, mundu leggja fram slíka álitsgerð.
    Hæstv. forseti sameinaðs Alþingis og hv. 1. þm. Reykv. eru sammála um að vísa málinu frá vegna þess að þau þora ekki --- þau þora ekki að fá slíka álitsgerð. Það er málið. ( KP: Það er málið.) Það er málið. Ég mótmæli því að þessi tillaga sé þannig fram borin að hún sé ekki alveg eðlileg. Eðlilegast væri að nefnd fjalli um málið og leggi fram breytingu, ef henni sýnist, og málið sé skoðað hér í þinginu. En það er dálítið merkilegt með hæstv. forseta Sþ. að hann hefur ekki lagt neina tillögu fram svo að ég hafi séð hér á borðum alþingismanna eins og venja er þegar um slíkt er að ræða. Það er því dálítill flumbruháttur í þessu öllu saman. Ég geri ráð fyrir því að hæstv. forseti hafi leitað til einhverra lögmanna til að fjalla um þetta mál. Það væri þá gaman að vita hverjir þeir væru og hvaða þekkingu þeir hafa sérstaka á svona uppákomu. Ég segi: Þetta er einstakt mál á Alþingi eins og að því hefur verið unnið, það er einstakt. Ég er búinn að skoða það. Og siðferðilega er það rangt og það er aumingjaskapur Alþingis að láta ekki kanna þetta í nefnd, ekkert annað, að þora ekki að láta það koma fram hvað lögspekingar á þessu sviði telja. Þeir ætla sér sjálfsagt að samþykkja það. Þeir um það. Það er alls ekki 100%, ekki 90% hvernig þessi úrskurður fer.