Flm. (Guðni Ágústsson) :
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. þm. Stefáni Guðmundssyni að leggja hér fram till. til þál. svohljóðandi:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að kanna umfang virðisaukaskattssvika og ,,svartrar atvinnustarfsemi`` á Íslandi.``
Í grg. segir svo:
,,Á þessu kjörtímabili hafa átt sér stað miklar kerfisbreytingar í innheimtu skatta. Virðisaukaskattur tók við af söluskatti, staðgreiðsla skatta tók við af eftirágreiðslu. Margt bendir til að þessar skattalagabreytingar hafi skilað árangri í innheimtu og komi að einhverju leyti í veg fyrir undanskot og skattsvik.
Hinu er ekki að leyna að víða verður þess vart að nótulaus viðskipti eru í gangi og viðskiptavinum sé boðið upp á borgun með eða án virðisaukaskatts. Nú er komin það mikil reynsla bæði á staðgreiðslukerfið og virðisaukaskattinn að full ástæða er til að kanna umfang skattsvikanna, með svipuðum hætti og gert var 1984 -- 1986 af sérstökum starfshópi. Það er mikilvægt fyrir Alþingi og ríkisstjórn að fá upplýsingar um nýjar innheimtuaðferðir, hvernig og hvort þær skila þeim árangri sem búist var við. Líklegt er að slíka úttekt megi gera með tiltölulega ódýrum hætti eftir þá miklu vinnu sem starfshópurinn vann 1984 -- 1986. Slíka úttekt mætti gera með spurningakönnun sem einnig var notuð að hluta 1984 -- 1986 og sagði starfshópurinn þá að gagnlegt gæti verið að gera slíka könnun árlega. Hér eru mörg fyrirtæki orðin mjög þróuð í að gera margvíslegar kannanir sem reynst hafa marktækar. Enn fremur liggja fyrir aðferðir og upplýsingar erlendis frá um mjög marktækar spurningakannanir um umfang skattsvika og nótulausra viðskipta.
Samkvæmt könnuninni 1984 -- 1986 var niðurstaðan sú að umfang dulinnar starfsemi hérlendis væri á bilinu 5 -- 7% af vergri landsframleiðslu. Tap þess opinbera vegna vangoldinna beinna skatta og söluskatts var áætlað 2,5 -- 3 milljarðar króna árið 1985. Ríkissjóður er rekinn með halla og sífellt er rætt um að skattlagningu verði að auka þess vegna. Sé það hins vegar svo að einhverjir milljarðar króna séu á ferðinni í undirheimum þjóðfélagsins utan við lög og rétt sem skapar aðstöðumun einstaklinga og fyrirtækja verður að gera allt til að upplýsa og koma í veg fyrir slíkt. Fyrsta skrefið er að kortleggja og mæla skattsvikin, annað skrefið að koma í veg fyrir þau með hertum reglum, sektum eða sviptingu á atvinnuleyfi.``
Svo mörg eru þau orð, hæstv. forseti. Tilefnið er auðvitað það að þess verður mjög vart þrátt fyrir hinar miklu kerfisbreytingar að skattsvikin virðast vera töluverð. Þótt jafnvel ráðherrar fullyrði að svo sé ekki þá verður hinn almenni maður í þjóðfélaginu var við það að nótulaus viðskipti og undanskot eiga sér stað í kannski ótrúlega miklum mæli. Ég ætla ekki að fullyrða um hversu almennt það er en við leggjum hér til að þetta verði mælt og kannað.
Í hinni miklu vinnu sem þessi starfshópur innti af hendi árin 1984 -- 1986 var bent á ýmsar leiðir, bæði til
tekjuöflunar og til varnar gegn skattsvikum. Þar finnst mér að menn hafi farið eftir annarri leiðinni um að einfalda með ákveðnum hætti. Þess vegna var það eftir kosningarnar 1987 þegar ný ríkisstjórn var mynduð að menn heimtuðu að hér yrði tekinn upp matarskattur til þess að koma í veg fyrir skattsvik. Það var gert. En síðan hafa menn ekki farið eftir þeim ábendingum sem nefndin sendi frá sér um ýmsar úrbætur á öðrum sviðum.
Ég er með hér fyrir framan mig ábendingar nefndarinnar og ætla, með leyfi forseta, að benda á nokkur atriði. Þar er talað um að til þess að framfylgja hertu eftirliti þyrfti að gera breytingu á skattalögum til einföldunar, gæta þess að ýmsir skattstofnar væru ekki ofnýttir, fækka skatttegundum, breyta skipulagi skattayfirvalda o.s.frv. Ég vek athygli á því að þessi nefnd, sem þarna skilaði frá sér áliti, taldi ekki síst þörf á því að hér yrðu tekin upp ný refsiákvæði og sett inn í hegningarlög þannig að þeir sem yrðu uppvísir að skattsvikum og undanskotum fengju þyngri refsingar fyrir slíkt. Þarna finnst mér að Alþingi og ríkisstjórn hafi ekki fylgt eftir þeim tillögum þó það hafi að hluta til verið gert á öðrum sviðum.
Ég held að það sé afskaplega brýnt að fólkið í landinu hafi tilfinningu fyrir því, og að fyrirtækin í landinu hafi einnig tilfinningu fyrir því, að menn sitji við sama borð og það sé vel vakað yfir því að þeir sem ætla að skjóta sér undan lögum og reglum samfélagsins verði sóttir til saka fyrir slíkt athæfi.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri, hæstv. forseti. En að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til atvmn.