Byggðastofnun
Miðvikudaginn 28. nóvember 1990


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að tala mjög lengi en þetta er auðvitað mjög brýnt mál sem verið er að tala um sem allir hljóta að hafa áhyggjur af eins og það stendur nú.
    Ég gat ekki hlustað á alla ræðu formanns stjórnar Byggðastofnunar áðan en það sem ég heyrði af henni var einmitt það sem ég hefði viljað segja í sambandi við störf og stöðu Byggðastofnunar. Þess vegna mun ég ekki endurtaka það hér. En í sambandi við ferðir okkar í stjórn Byggðastofnunar til útlanda til að athuga fiskmarkaði og annað í sambandi við okkar útflutningsmál vil ég bæta því við það sem hv. 1. þm. Vestf. sagði að ég sannfærðist um það í þessari ferð að ekki væri vandi fyrir okkur að selja fisk. Ég sannfærðist um að það mundi verða mjög eftir því gengið að fá fisk frá Íslandi. Eftir að hafa séð þann fisk sem var á fiskmörkuðunum og heyrt í þeim í Hull og Grimsby sannfærðist ég um það að ekkert er eftir þar af fiski nema rusl, eins og það sem er veitt við bryggjurnar og jafnvel enn þá aumara en það. Þeir byggja mjög sína starfsemi í öllum þessum löndum, ekki síst í Vestur-Þýskalandi, á því að fá fisk frá Íslandi. Þeir munu sækja á að við munum fá að flytja fiskinn út án a.m.k. nokkurra verulegra tolla. Auðvitað er fleira í því sambandi sem ég ætla ekki að ræða hér.
    Eitt þótti mér mjög athyglisvert og ánægjulegt þegar ég var að hlusta á hv. 1. þm. Vestf. Matthías Bjarnason áðan og það voru þau orð sem hann viðhafði í sambandi við Efnahagsbandalag Evrópu. Þar kom andstæð skoðun við það sem hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir, flokkssystir hans, hélt fram á dögunum þar sem hún lagði til að við drægjum það ekki nema til morguns, að mér fannst þegar hún talaði, að það yrði sótt um inngöngu í Efnahagsbandalagið. ( MB: Systkin eru ekki alltaf sammála.) Nei, og það er gleðilegt. Ég veit að það munar um hv. 1. þm. Vestf. í þessu máli því eins og horfir held ég að það yrði dauðahöggið á byggðirnar ef við mundum fara þá leið.
    Við sjáum hvernig þetta stendur núna. Ég var á fundi á Vestfjörðum og þeir fullyrtu að á þessu ári hefðu flust 600 manns burtu frá Vestfjörðum --- á þessu ári. Hvernig endar þetta ef ekki verður eitthvað gert í byggðamálum? Vissulega hefur sú ríkisstjórn sem nú situr gert ýmislegt til þess að þau fyrirtæki sem eru burðarásar í hverju byggðarlagi geti haldið starfsemi sinni áfram, en þau eru samt sem áður nú það veik, sum hver, að það er spurning hve lengi þau geti haldið áfram nema breytt verði um stefnu.
    Það er alveg rétt sem kom fram hjá hv. þm. Ragnari Arnalds að það eru fyrst og fremst vextirnir sem ráða mestu um. Það er vaxtastefnan og það hvað hæstv. ríkisstjórn hefur tekið, ég segi linlega á þeim málum og langt frá því sem um var samið þar sem vextir eru jafnvel yfir 10% raunvextir fyrir þá sem þurfa að skuldbreyta. Yfir 10%. Það voru teknir upp þessir kjörvextir, t.d. í Búnaðarbankanum, strax þegar ég var farinn þaðan. Hvað þýddi það? Það þýddi að þeir hækkuðu til almennings úr 7,5% upp í 8,25%. Það þýddi að ef einhver viðskiptavinur væri það ríkur að hann hefði svo stórt veð að það væri minna en 30% sem hvíldu á eigninni eftir að hann væri búinn að taka lán gat hann fengið það jafnvel með 6,5% vöxtum. En á lán þeirra sem eru komnir í erfiðleika, sem þurfa að láta skuldbreyta, má með leyfi Seðlabankans bæta 2% við þessi 8,25%. Að vísu er misjafnlega að þessu staðið. Ég hef fréttir af því að ekki er farið eftir þessu í öllum útibúum á þann hátt sem ég er að tala um. En það er gert í aðalbönkunum og í flestum útibúum.
    Þetta er náttúrlega algjörlega óviðunandi ástand og þetta er skýringin á því að fólk er að missa íbúðir sínar í stórum stíl. Eins og stendur er á landsbyggðinni víða ekki hægt að selja hús fyrir þá sem gefast upp. Mér er sagt að t.d. sums staðar á Vestfjörðum standi íbúðirnar tómar. Það verður nefnilega að taka á þessum málum með öðrum hætti en hefur verið gert.
    Eitt af því sem verður að gera --- og það hefur verið umsókn og ósk stjórnar Byggðastofnunar --- er að ríkið taki við um 3 milljörðum af skuldum Byggðastofnunar við Framkvæmdasjóð og veitir ekki af eins og nú horfir. Það er alveg sama sagan með fiskeldið, það hefur nú alveg mistekist björgunarstarfið í sambandi við Tryggingasjóð fiskeldislána. Það fór eins og manni datt í hug að breytingin sem var gerð var til hins verra en ekki til að leysa málið. Og þær stöðvar sem upp úr standa enn þá og eru í rekstri horfa flestar, þó ekki allar, fram á að það geti verið kannski mánaðar spurning hvenær lokað verður. Eins hefur verið með loðdýraræktina, þau fyrirheit sem voru gefin um skuldbreytingar þar hafa í mörgum tilvikum ekki náð fram að ganga og það fólk er orðið meira en allslaust. Ýmsir fara þaðan slyppir og snauðir og ýmsir sem hafa reynt að hjálpa þeim hafa einnig misst sitt.
    Það var minnst á jöfnun orkukostnaðar áðan. Hún er athyglisverð staðan sem þar er. Nefnd er að störfum til að kanna þessi mál. Og upp hefur komið að Landsvirkjun stefnir að því að vera skuldlaus í árslok 2004, þ.e. búin að borga allar sínar skuldir. Það er enginn vandi að jafna að fullu orkukostnaðinn, sem er auðvitað sjálfsagt að krefjast, með því að lengja lánin. Réttast væri að taka Landsvirkjun eignarnámi frá Reykjavík og Akureyri og að ríkið ræki hana. Ef á að fara út í að virkja fyrir stóriðju er réttast að hafa þar sérstakt fyrirtæki sem stendur á bak við það til þess að ekki sé verið að færa á milli, að neytendur orkunnar í landinu þurfi ekki að borga þau afföll sem sýnileg eru ef á að semja á þann veg sem nú stefnir í þeim málum.
    En það er margt fleira sem verður að gera ef á að bjarga byggðunum. Það eru ekki síst kvótamálin. Sá sem hér stendur kom með tillögur um það, þegar lög um fiskveiðistefnu voru samþykkt á Alþingi á sl. vori, að hluti af kvótanum yrði færður yfir á byggðirnar. Mér var alveg ljóst að ekki var hægt að taka það alveg af skipunum. En ef þessu heldur áfram eins og nú er verða sumar byggðirnar alveg kvótalausar. Það er fjármagnið sem nær þessu. Þrátt fyrir 1. gr. laganna um að þjóðin eigi fiskinn í sjónum selja þeir kvótann sem fá hann eins og þeir eigi hann. Ef það verður liðið þýðir það að eins fer með það og aðrar eignir að því verður ekki haggað nema að taka kvótann eignarnámi og þá verður að borga verð fyrir eftir mati. Eins og fiskveiðistefnan er mun þetta þróast í það að peningamennirnir nái öllum tökum á þessari auðlegð þjóðarinnar. Og 1. gr. í lögunum reynist þá marklaus vegna þess að valdhafarnir gera ekkert í því að stöðva að kvótinn gangi kaupum og sölum eins og hefur verið á undanförnum árum.
    Það er sýnilegt að allt horfir í að stórir hlutar af landsbyggðinni fari í auðn. Ekki er bjartara yfir ef á að fara að byggja álbræðslu á Reykjanesi. Eins og fram hefur komið t.d. hjá Jóhannesi Nordal seðlabankastjóra verður þá í leiðinni að draga úr framkvæmdum annars staðar til þess að hamla gegn þenslu, verðbólgu. Við vorum á fundi í dag þar sem þessi stefna, þessi skoðun, kom fram hjá embættismanni ríkisins. Ofan á það, svo ég taki aftur Vestfirði, að þar hefur fækkað um 600 manns og margir eru á förum
eftir því sem mér er tjáð. Það er ekki séð fyrir hvort sum af þeim aðalfyrirtækjum sem standa undir þeirri atvinnu sem þar er þó, það er nóg atvinna þar núna, en það er öryggisleysið sem verður til þess að fólkið flýr. Ef þetta fer eins og horfir erum við illa stödd.
    Ég held að það hafi sýnt sig á undanförnum árum og alla tíð að síðan Byggðastofnun tók til starfa að tillögu Gísla heitins Guðmundssonar hafi hún þó hamlað verulega á móti þeirri röskun sem hefði annars orðið, en þrátt fyrir það er þetta svona. Þrátt fyrir þetta hefur á nokkrum árum fjölgað hér á suðvesturhorninu um 24 þús. manns en aðeins um 400 á sama tíma á landsbyggðinni. Og svo eru menn að tala um að það sé byggðastefna í gangi og eigi að gera eitthvað fyrir byggðirnar á sama tíma og þær ráðstafanir sem eru gerðar, eins og t.d. að byggja álver, auka þetta misvægi, auka enn á fólksflutningana hingað á suðvesturhornið. Og þeir sem fara koma fáir til baka.
    Ég held að menn verði að athuga svolítið sinn gang betur. Ég mun tala á næstunni fyrir frv. um vaxtalækkun, sem ég legg til að verði gerð á meðan þjóðarsáttin stendur a.m.k., því það er auðvitað ekki hægt að setja allt í fjötra nema frelsi þeirra sem eiga fjármagnið eins og gert er. En það kann að vera að menn treysti sér ekki í það frekar en að taka á sumum öðrum þáttum í þessu þjóðfélagi.