Frsm. minni hl. fjvn. (Pálmi Jónsson) :
Virðulegi forseti. Fjvn. hefur nú haft til meðferðar að undanförnu frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1990. Nefndin hefur eigi orðið sammála um afstöðu til málsins. Afstaða minni hl. byggist ekki einvörðungu á því að minni hl. sé andvígur öllum þeim brtt. sem fluttar eru af meiri hl. á þskj. 202, heldur ekki síður og raunar fyrst og fremst vegna þess að stjórn á fjármálum ríkisins er þannig í höndum núv. hæstv. ríkisstjórnar að minni hl. getur enga aðild átt að þessu frv. eða öðrum sem lúta að stjórn ríkisfjármála. Hluti af þessu dæmi öllu kemur fram í því frv. til fjáraukalaga sem hér er til 2. umr. Ég held engum þurfi að blandast hugur um það að sú afstaða minni hl. er eðlileg og rökrétt. Minni hl. stendur því ekki að afgreiðslu þessa máls og flytur ekki þær brtt. sem meiri hl. hefur flutt á þskj. 202.
Mér þykir rétt að rifja það upp að þegar frv. til fjárlaga fyrir þetta ár, 1990, var lagt fram fyrir rúmu ári taldi hæstv. fjmrh. að megináhrif af stefnumiðum þess frv. mætti greina í eftirfarandi atriðum:
1. Tekjur ríkissjóðs ættu að lækka á árinu 1990 um 1,5% að raungildi eða um 1500 millj. kr.
2. Útgjöld ríkissjóðs ættu að lækka um 4,2% að raungildi eða um 4 milljarða króna.
3. Halli ríkissjóðs ætti að lækka og verða um 2,9 milljarðar króna.
Hæstv. fjmrh. lýsti þessu afkvæmi sínu, þ.e. frv. til fjárlaga fyrir árið 1990, með býsna fjálglegum orðum og taldi það marka tímamót. Í því væri fólginn nýr hornsteinn jafnvægis og stöðugleika í fjármálum ríkisins. Ég held að rétt sé að rifja það aðeins upp að ári áður hafði þessi sami hæstv. fjmrh. flutt sitt fyrsta fjárlagafrv. Þá lýsti hæstv. ráðherra markmiðum ríkisstjórnarinar á þann hátt að nú skyldi hverfa frá hallarekstri hjá ríkissjóði, hverfa frá eyðslustefnu, hverfa frá því að reka ríkisbúskapinn með halla. Þess í stað yrði tekið upp það vinnulag að nú skyldi ríkissjóður rekinn með jöfnuði og hætt allri eyðslustefnu undangenginna ára. Þá voru gefnar býsna sterkar yfirlýsingar af þessum hæstv. ráðherra sem alþingismenn allir muna eftir. Frv. var þá lagt fram með rekstrarjöfnuði og það var afgreitt sem lög frá Alþingi með rekstrarjöfnuði. Samt tók það hæstv. fjmrh. ekki nema fáa mánuði að kollvarpa því stefnumarki sem hann hafði lýst þegar hann lagði það fjárlagafrv. fram. Niðurstaðan varð sú að hallarekstur hjá ríkissjóði á því ári varð 6 -- 7 milljarðar kr. miðað við verðlag þess árs. Miðað við verðlag nú þegar þetta fjárlagafrv. er flutt, sem hér er til umræðu, eru það um 7,4 milljarðar kr.
Stefnubreytingin hjá hæstv. fjmrh. sem nýjum ráðherra í núverandi hæstv. ríkisstjórn varð að engu á fyrsta ári hans sem fjmrh. og snerist upp í andhverfu sína. Það er því ekkert að undra þó að þau stefnumið sem hann kynnti við framlagningu frv. til fjárlaga fyrir árið 1990 væru eitthvað málum blandin. Það kom líka fljótt í ljós þegar fjvn. hóf athugun á því frv. að það var losaralega unnið og götótt. Forsendur þess voru afar óljósar og samanburðartölur í ýmsum greinum villandi. Ljóst var þó að skattbyrðin átti að halda áfram að vaxa en ekki minnka, rekstrarumfang ríkisins átti að halda áfram að vaxa og útgjöldin þar með að vaxa en ekki minnka. Á hinn bóginn var tekinn upp nýstárlegur feluleikur í frv. sjálfu til þess að reyna að leyna því í allra lengstu lög hversu mikil hækkun yrði á hinum raunverulegu útgjöldum ríkissjóðs. Þetta var það sem við blasti og þetta voru megineinkenni frv. til fjárlaga fyrir yfirstandandi ár þegar farið var að kafa í þau gögn öll sem þar lágu fyrir.
Fjárlagafrv. fyrir þetta ár var síðan afgreitt hér á Alþingi með nálega 3,7 milljarða kr. halla. Nokkrar breytingar urðu í meðförum Alþingis, m.a. var hulunni svipt af feluleiknum með gjaldahliðina í ýmsum smærri atriðum. Leiðréttar voru ýmsar augljósar villur sem voru í frv. þegar það var lagt fram. En á hinn bóginn var sama feluleiknum haldið áfram næsta staðfastlega í fjölmörgum og raunar flestum hinna stærri mála. Hvergi var í því fjárlagafrv. né í fjárlögunum sjálfum vegið að rótum vandans í fjármálum ríkisins, þ.e. þenslu í rekstrarumsvifum ríkiskerfisins og eyðslu hjá ráðherrunum sjálfum.
Við sem skipuðum minni hl. fjvn. þá og skipum hann enn gagnrýndum þessa afgreiðslu harðlega og sýndum lið fyrir lið fram á skekkjur í niðurstöðu þar sem stjórnarliðið kaus að loka augunum til þess að geta haldið feluleiknum áfram. Okkar mat var að við afgreiðslu fjárlaga væri halli á fjárlagadæminu eigi minni en 6 -- 7 milljarðar kr. og þó væri gífurlegum vanda í útgjöldum ríkisins slegið á frest og þannig velt yfir á herðar framtíðarinnar.
Það fjáraukalagafrv. sem hér er til 2. umr. er annað í röðinni á þessu ári af slíkum frv. til breytinga á fjárlögum ríkisins. Það fyrsta var afgreitt í byrjun maímánaðar sl. og fól það í sér nokkurn niðurskurð á einstökum útgjaldaliðum en einnig hækkun annarra. En meginbreytingin var þá bæði tekna- og gjaldamegin af þeim orsökum að forsendur höfðu breyst við hina svokölluðu þjóðarsátt sem aðilar vinnumarkaðarins höfðu mótað.
Svo sem kunnugt er hafði hæstv. ríkisstjórn lagt upp með þá stefnu í fjárlagafrv. fyrir árið 1990 og við þjóðhagsáætlun og kynnt hana
sem stefnu ríksstjórnarinnar að verðlag á milli áranna 1989 og 1990 mundi hækka um 16 -- 17% og að erlendur gjaldeyrir mundi hækka á milli sömu ára um 13 -- 14% og laun um 11%. Þetta þýddi samdrátt í kaupmætti launafólks um 5,5% ofan á þá gífurlegu kaupmáttarskerðingu sem orðið hafði árin tvö á undan. Þetta var stefna hæstv. ríkisstjórnar þegar hún lagði fram fjárlagafrv. fyrir þetta ár, árið 1990. Þetta var stefna hæstv. ríkisstjórnar í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1990 og þetta var sú stefna sem hæstv. ríkisstjórn kynnti fyrir Alþingi og þjóðinni á þessum tíma.
Það var því ekkert að undra þó að aðilar vinnumarkaðarins, sem þurftu að ganga að því verki að móta kjarasamninga, vildu ekki una þessum niðurstöðum. Og það fór svo að þeim tókst að mynda nýjan efnahagsgrundvöll. Og þann efnahagsgrundvöll
færðu þeir hæstv. ríkisstjórn og þjóðinni. Í þessum nýja efnahagsgrundvelli var lagt upp með það að verðlagsbreytingar á milli áranna 1989 og 1990 skyldu færast niður í eins stafs tölu í prósentum. Miðað var við að þær færðust niður í 7%. Og að kjaraskerðingunni, kaupmáttarrýrnuninni, skyldi að mestu eytt með þessum nýja efnahagsgrunni. Þetta var sá nýi efnahagsgrundvöllur sem aðilar vinnumarkaðarins færðu hæstv. ríkisstjórn á silfurdiski. Þessum nýja efnahagsgrundvelli fylgdu ekki neinir afarkostir til hæstv. ríkisstjórnar. Í raun fylgdu þessum nýja efnahagsgrundvelli ekki aðrir skilmálar en þeir að hæstv. ríkisstjórn tryggði að hið sama gilti fyrir alla aðila í þjóðfélaginu varðandi kjaramál og að ríkisstjórnin tryggði niðurskurð eða samdrátt í útgjöldum ríkissjóðs sem svaraði um 1 milljarði kr. Það var því létt verk fyrir hæstv. ríkisstjórn að taka við þessum nýja efnahagsgrundvelli. Ekki síður fyrir það að þessi nýi efnahagsgrundvöllur hafði það líka í för með sér vegna breyttra forsendna að útgjöld ríkissjóðs lækkuðu þess vegna um liðlega 2 milljarða kr.
Hæstv. ríkisstjórn flutti sitt fyrsta fjáraukalagafrv. fyrir árið 1990 til breytinga á fjárlögum til þess að mæta þessum þætti mála. Þar var þó ekki um að ræða þann niðurskurð á útgjöldum ríkissjóðs sem í raun hafði verið gerður að skilyrði vegna þess að niðurskurðurinn sem birtur var í því frv. og lögfestur í maímánuði sl. var að meira og minna leyti sýndarniðurskurður. Að öðru leyti var um samtíningsniðurskurð að ræða á einstökum liðum opinberra framkvæmda sem síst mátti við hrófla. Á hinn bóginn var hvergi vegið að þeim rekstrarliðum ríkisins eða útgjaldaliðum sem hæstv. ríkisstjórn og ráðherrar sjálfir höfðu nokkurn veginn til frjálsrar ráðstöfunar og gátu því mest haft áhrif á hvernig með væri farið.
Ég held að ekki þurfi að rifja það upp að það er skoðun mín og okkar sjálfstæðismanna, og ég tel minni hl. fjvn., að þessi nýi efnahagsgrunnur, sem aðilar vinnumarkaðarins mótuðu og kallaður hefur verið þjóðarsátt, hafi verið til mikillar giftu fyrir þetta þjóðfélag. Það er sannarlega til mikillar giftu ef aðilar í þjóðfélaginu taka ráðin af hæstv. ríkisstjórn sem nú situr þegar við kemur efnahagsmálum, þegar við kemur kjaramálum og þegar við kemur ríkisfjármálum. Því hæstv. ríkisstjórn hafði lagt upp, eins og áður sagði, með allt aðrar og verri forsendur, allt aðra stefnu, sem hefði haldið áfram að magna þá verðbólgu sem geisaði hér í þjóðfélaginu og þá úlfúð sem var á milli stétta í þjóðfélaginu.
Þó að þetta fjáraukalagafrv., sem er hér til meðferðar og nú til 2. umr., kunni að breytast eitthvað við 3. umr. frá því sem hér er lagt til af hálfu meiri hl. fjvn., er þó ljóst að hið þriðja fjáraukalagafrv. verður flutt einhvern tímann snemma á næsta ári til þess að leita heimilda fyrir þeim útgjöldum af hálfu ríkissjóðs sem fara fram úr þeim heimildum sem hér er verið að lögfesta. Reynslan frá fyrra ári vísar kannski eitthvað veginn um hvað þá geti gerst þó að þessu sinni sé ekki á nokkurn hátt hægt að segja fyrir um hvernig það fjáraukalagafrv. muni líta út. En reynslan frá fyrra ári segir okkur að þá hafi hæstv. fjmrh. lagt fyrir fjáraukalagafrv. með sambærilegum hætti og nú. Frv. sem að vísu var ófullburða að gerð en var fært í nýtilegt horf og formlega gerð af hálfu fjvn. og Alþingis. En það fjáraukalagafrv. sem var afgreitt 21. desember, 10 dögum fyrir áramót, færði hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórn heimildir til útgjalda úr ríkissjóði sem námu 8,5 milljörðum umfram fjárlög. Eigi að síður þurfti hæstv. fjmrh. að koma með nýtt fjáraukalagafrv. snemma á þessu ári til þess að fá lagaheimild fyrir 1.073 millj. kr. sem eyðst höfðu umfram heimildir síðustu 10 daga ársins, þar með talda jóladagana og gamlársdag.
Þannig að þó að þetta frv. sem hér er flutt feli í sér að farið er fram á auknar útgjaldaheimildir fyrir ríkissjóð upp á 4,5 milljarða, ef meðtaldar eru brtt. meiri hl. fjvn., er fullljóst, a.m.k. miðað við fyrri reynslu, að þar eru ekki öll kurl til grafar komin. Ég mun einnig draga fram röksemdir hér á eftir sem sýna þann stórkostlega feluleik sem enn er haldið gangandi varðandi raunveruleg útgjöld þessa árs og verður þó ekki drepið á þau atriði nema í örfáum greinum.
Í nál. minni hl. fjvn. á þskj. 211 er birt tafla sem sýnir skiptingu útgjalda A-hluta ríkissjóðs í þúsundum kr. skv. einstökum ráðuneytum og í heild. Í fyrsta lagi skv. fjárlögum. Í öðru lagi skv. fjáraukalögum í maí. Í þriðja lagi skv. fjáraukalagafrv. sem hér er til meðferðar ásamt þeim brtt. sem fyrir liggja frá meiri hl. nefndarinnar og síðan samandregnar hækkanir.
Þessi tafla sýnir það að þær niðurskurðartillögur sem lögfestar voru með fjáraukalögum í maí hafa orðið að litlu og sumpart engu í höndum hæstv. ríkisstjórnar og hæstv. fjmrh. miðað við það sem hér er nú til meðferðar Alþingis og ætlunin er að lögfesta. Ég skal ekki fara út í það í mörgum greinum en þessi tafla sannar það að sá niðurskurður sem gerður var í maímánuði hefur að ýmsu leyti verið sýndarmennska og sú meðferð mála sem þessi tvö frv. sýna sannar þann hringlandahátt sem á þessu hefur verið af hálfu hæstv. fjmrh.
Í töflu 2 í nál. minni hl. á þskj. 211 er sýnt fram á breytingar sem orðið hafa í tekjum og gjöldum A-hluta ríkissjóðs miðað við fjárlög, fjáraukalög í maí og fjáraukalagafrv. nú og hvernig þessir liðir hafa áhrif á hallarekstur ríkissjóðs miðað við þessi gögn. Þar sést að fjárlög voru afgreidd með tæplega 3,7 milljarða halla. Þegar fjáraukalögin í maí voru afgreidd þá er hallinn kominn í 4,5 milljarða og miðað við það frv. sem hér er til meðferðar og brtt. hv. meiri hl. fjvn., sést að hallinn er kominn yfir 5,1 eða nærri 5,2 milljörðum. Þrátt fyrir það liggja stórir útgjaldaliðir eftir sem hér skal ekki spáð um að sinni hvernig með verður farið þó það liggi á borðinu með suma þeirra hvernig þá beri að færa í útgjöldum ríkissjóðs.
Þessar töflur sýna að ýmsu leyti haldleysi þeirra fjárlaga sem afgreidd voru fyrir tæpu ári. Þær sanna líka að niðurskurðurinn í fjáraukalögunum í maí var að meira og minna leyti sýndarmennska. Þær sanna enn að hallareksturinn fer vaxandi eftir því sem líður á árið en fer ekki lækkandi eins og hæstv. fjmrh. boðaði við framlagningu fjárlagafrv. fyrir þetta ár.
Ég vek enn athygli á því að þessar tölur ber að skoða í ljósi þess að þjóðarsáttin, sem aðilar vinnumarkaðarins færðu hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórn á silfurdiski, hefur orðið til þess að útgjöld ríkissjóðs á þessu ári eru yfir 2 milljörðum lægri heldur en ella væri ef stefnu hæstv. ríkisstjórnar hefði verið fylgt. Þannig að sú staðreynd kemur einnig til athugunar í þessum samanburði.
Það sem hér hefur verið rakið sýnir að það sem hæstv. fjmrh. sagði í frv. til fjárlaga fyrir þetta ár, 1990, um megináhrif af stefnumiðum frv., hefur allt reynst markleysa. Eins og málin liggja nú fyrir við afgreiðslu á þessu frv. er það ljóst að tekjur ríkissjóðs lækka ekki að raungildi á árinu 1990 um 1,5 milljarða kr., eins og ráðherra sagði fyrir ári, heldur hækka þær um 2,5 milljarða að raungildi. Það sannast einnig að útgjöld ríkissjóðs lækka ekki frá árinu á undan um 4 milljarða, eins og hæstv. fjmrh. boðaði, heldur hækka þau yfir 5 milljarða að raungildi. Og það sést að halli ríkissjóðs er kominn yfir 5 milljarða og er þá hvergi nærri öllu til skila haldið.
Þær yfirlætisfullu staðhæfingar hæstv. fjmrh., sem hann viðhafði þegar hann kynnti frv. til fjárlaga fyrir árið 1990, um nýjan hornstein, nýjan grundvöll að jafnvægi og stöðugleika í fjármálum ríkisins o.s.frv., hafa að sjálfsögðu reynst markleysa, eins og þegar blasti við öllum þeim sem kunna að lesa í þessi mál. Það er nú svo að hverju sinni sem hæstv. fjmrh. leggur fram fjárlagafrv. eða önnur gögn er varða stefnuna í fjármálum ríkisins þá kynnir hann þau gögn sem tímamótafrv. og tímamótagögn og sem nýjan hornstein, nýjan grundvöll að stöðugleika, nýjan grundvöll að jafnvægi. Allt hafa þetta reynst orðin tóm. Allt er þetta skrum og markleysa. Samt er þessi hæstv. ráðherra haldinn þeirri þráhyggju að halda í sífellu áfram að tönglast á sömu einkunnarorðum um eigin verk, þ.e. sín eigin afkvæmi sem eru þau frv. sem hann er að flytja. Hversu oft sem þessi orð eru rekin ofan í hann og hversu oft sem það sannast að þau eru markleysa.
Í þessum orðum felst að hornsteinarnir í stefnu hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar í fjármálum ríkisins eru einhverjir aðrir en þeir sem hæstv. ráðherra tekur sér í munn. Í raun eru hornsteinarnir þenslustefna, útþensla í rekstrarumsvifum ríkiskerfisins. Og skattastefna, útþensla í sköttum á þjóðina. Endalaus hækkun á sköttum til þess að reyna að bera uppi útþenslu í útgjöldum ríkiskerfisins. Það eru hornsteinarnir í stefnu hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórnar í fjármálum ríkisins.
En þessi stefna hefur einnig mistekist að því leyti að þó skattarnir hafi verið hækkaðir --- ég hef sýnt fram á það fyrr að skattar hafa á þremur árum, 1988, 1989 og 1990, miðað við áætlun um útgjöld ríkissjóðs á þessu ári, sem ekki eru að fullu komin í ljós þar sem nokkuð lifir ársins, hækkað um yfir 13 milljarða kr. á verðlagi þessa árs --- og samt hefur ekki tekist að ráða við hallann vegna þess að útgjöldin
vaxa enn þá meira.
Þessir 13 milljarðar kr., sem almenningur í landinu á erfitt með að gera sér grein fyrir hvað er stór tala, hafa auðvitað mikið að segja í rekstri á því fyrirtæki sem heitir ríkissjóður Íslands. Ef litið er á einhver dæmi af handahófi þá sést að útgjöld annars stærsta ráðuneytisins, menntmrn., eru skv. fjárlagafrv. 15,4 milljarðar.
Það dregur því langt í það að skattahækkanir á þremur árum dugi til þess að bera uppi útgjöld menntmrn. í heild, það vantar aðeins tvo milljarða á. Ellegar að þessir 13 milljarðar kr. gera meira en duga fyrir útgjöldum æðstu stjórnar ríkisins, forsrn., utanrrn., landbrn., sjútvrn. og dómsmrn., svo miðað sé við þær tölur sem þessum ráðuneytum eru ætlaðar í fjárlagafrv. fyrir næsta ár. Hér er því ekki um smáar tölur að ræða. Þetta er gífurleg fjárhæð sem á þessum árum hefur lagst á þjóðina í nýjum sköttum og allir hafa fundið fyrir. Samt hefur ekki tekist að ráða við hallann á ríkissjóði. Við sögðum í minni hl. fjvn. við afgreiðslu fjárlaga: Raunverulegur halli verður eigi minni en 6 -- 7 milljarðar á þessu ári og það var varlega áætlað. Þegar er hann kominn á pappírunum sem fyrir liggja hér í þingskjölum yfir 5 milljarða. Hornsteinar hæstv. fjmrh. eru því eins og ég sagði áður auknir skattar, aukið rekstrarumfang, áframhaldandi halli í rekstri ríkissjóðs.
Ég mun þá víkja í nokkrum orðum að afgreiðslu á því frv. sem hér er til meðferðar en með frv. eins og það var lagt fram var farið fram á hækkun útgjalda hjá ríkissjóði um 4056 millj. kr. Í þessum útgjöldum kennir vitaskuld margra grasa og væri ástæða til að fara ofan í saumana á þeim ýmsum hverjum. Ég mun nú ekki víkja að því í mörgum atriðum en ef litið er á einstaka útgjaldaliði, þá ber hæst útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins þar sem farið er fram á auknar heimildir til útgjalda um 1200 millj. kr. Þar af um 1100 millj. kr. til sjúkratrygginga. Um helmingurinn af þeirri fjárhæð er ætlast til að gangi til að bera uppi aukinn lyfjakostnað og það vekur að sjálfsögðu því meiri athygli fyrir þá sök að gert var ráð fyrir því við afgreiðslu fjárlaga að unnt væri að spara í lyfjakostnaði nálega sömu fjárhæð eða um 500 millj. kr.
Það þarf ekki að rifja það upp fyrir hv. alþm., sem ég verð þó að segja að hlýða ekki mjög staðfastlega á umræður um fjármál ríkisins, jafnþýðingarmikil mál og þar er um að tefla, að við í minni hl. fjvn. drógum í efa við afgreiðslu fjárlaga að þetta væri raunhæft. Það hefur enda komið í ljós að útgjöldin vegna lyfjakostnaðar hafa farið milli 500 og 600 millj. kr. fram úr því sem fjárlög gerðu ráð fyrir þannig að það sem við sögðum við afgreiðslu fjárlaga hefur í þessu eins og öðru reynst rétt.
Ég hlýt að vekja athygli á því að útgjöld á vegum fjmrn. vaxa um hvorki meira né minna en 909 millj. kr. skv. þessu frv. umfram það sem fjárlög heimila. Ég vék að þessu atriði við 1. umr. um þetta mál hér á Alþingi og dró fram nokkra af þeim liðum sem valda þessari gífurlegu hækkun hjá fjmrn. Ég skal ekki endurtaka margt af því sem ég sagði þá. En það
er auðvitað engin afsökun í því hjá hæstv. fjmrh. sem hann bar á borð í þeim umræðum að sumir af þessum liðum væru vegna þess að ekki hefði tekist að ná sparnaði hjá öðrum ráðuneytum. En ástæðan fyrir því að ekki hefur tekist að ná sparnaði er vitaskuld sú að ekki eru nægilega sterk tök á fjármálastjórninni og þó umfram allt hitt að þegar svo veður á súðum hjá fjmrn. sjálfu sem hér kemur fram, þá er ekkert að undra þó eitthvað leki úr böndunum hjá fagráðuneytum þannig að ábyrgðin og orsökin eru að sjálfsögðu hæstv. fjmrh. sjálfs og afsakanir hans um þetta efni voru því næsta klúðurslegar.
Það var heldur engin afsökun í því hjá hæstv. fjmrh. þó að það kæmi í ljós, eins og bent var á hér af okkur fulltrúum minni hl. við afgreiðslu fjárlaga, að það vantaði ýmislegt inn í fjárlögin, eins og t.d. liðinn Uppbætur á lífeyri sem við röktum hér fyrir ári síðan. Svo sagði hæstv. fjmrh. það hér við 1. umr. að þetta væri ekki fjmrn. að kenna, það þyrfti að borga þetta til þess að greiða m.a. lífeyri alþingismanna og ráðherra. Það er auðvitað algjörlega á ábyrgð fjmrn. að sjá til þess að þessir liðir eins og aðrir séu áætlaðir í fjárlögum þannig að það sé raunhæft og á þetta var bent af okkur í minni hl. fyrir ári síðan.
Ég verð hins vegar að segja það að kostnaður fjmrn. við þær skattkerfisbreytingar sem gerðar hafa verið er hreint með ólíkindum og kostnaður fjmrn. við hönnun ýmiss konar hugbúnaðar fyrir tölvukerfi er hreint með ólíkindum og ég held nú að það mætti halda í spottann á einhverju af þessum mikla kostnaði sem þarna er á ferðinni.
Ég kemst ekki hjá því að minna enn á einn af þeim liðum sem þarna eru á blaði af þessum 909 millj. kr. en það er sú heimild sem samþykkt var við lokaafgreiðslu fjárlaga hér fyrir tæpu ári síðan um kaup á 500 eintökum af dagblöðum til viðbótar við þau 250 dagblöð sem áður höfðu verið keypt fyrir stofnanir ríkisins. Hv. þm. míns kjördæmis, Norðurl. v., Páll Pétursson, flutti þessa tillögu og gerðist baráttumaður fyrir því að fá þessa heimild lögfesta. Ég hlýt að vekja á því athygli að útgjöldin koma fram í þessu frv. og þau eru 50 millj. kr. til aukinna kaupa á dagblöðum fyrir stofnanir ríkisins.
Nú er það svo að fyrir 50 millj. kr. má gera ýmislegt. Það hefði t.d. mátt fella niður niðurskurð á öllum þeim tíningi fjárfestingarliða í fjáraukalögum sem samþykkt voru í maí til skólabygginga, til sjúkrahúsa og til hafnamála. Og hefði þeim peningum verið betur varið að mínum dómi til þess að standa við það sem fjárlög höfðu afgreitt í þessum efnum heldur en til að kaupa 500 eintök til viðbótar af því sem áður hafði verið keypt af dagblöðum sem eru sum hver þess efnis að fáir vilja lesa. Þau skulu í starfslið stofnana ríkisins samt.
Niðurskurður var á fjárfestingarliðum sem þegar höfðu verið ákveðnir á fjárlögum. Þegar Alþingi hefur afgreitt tiltekna fjárhæð í einhvern framkvæmdalið, þá þýðir það í fyrsta lagi að eftir að fjárlög eru ákveðin eru í ýmsum tilvikum verk boðin út, kaup eru ákveðin á tækjum, skuldbindingar eru gerðar o.s.frv.
Síðan er fjárlögum breytt með fjáraukalögum og í fjölmörgum liðum var í þeim fjáraukalögum breytt ákvörðunum fjárlaga um fjárfestingarliði þannig að þar var um niðurskurð að ræða. Sums staðar um 1 og 2 og 3 millj., sums staðar um stærri fjárhæðir. Og mér er kunnugt um það að sums staðar í ríkiskerfinu, í fjárfestingarliðunum rak þetta í mikil vandræði.
Sem dæmi má nefna að fjárveiting sem ákveðin hafði verið í fjárlögum í svokallað sjálfvirkt tilkynningakerfi fyrir fiskiskip, sem hannað er af hugvitsmönnum í Háskóla Íslands og er stórmerkilegt mál, var skorin af í fjáraukalögum. Þeir aðilar sem að þessu máli standa höfðu pantað tölvu og hún lá á hafnarbakkanum. Og til þess að bjarga málinu þurfti Slysavarnafélag Íslands að láta fé úr sínum sjóðum, láta af sínu gjafafé til þess að leysa þetta mál vegna þess að hæstv. ríkisstjórn og stjórnarliðið hér á hinu háa Alþingi hafði ákveðið í fjáraukalögum að skera niður litla fjárhæð sem verið hafði á fjárlögum og menn treystu á að stæði.
Þannig voru mörg dæmi sem sanna það hvað þessi vinnubrögð eru fráleit. Það þótti hins vegar ekki hlýða að skera niður ráðstöfunarfé ráðherra eða þá liði sem ríkisstjórnin sjálf hafði nokkuð til frjálsrar ráðstöfunar í meðferð fjármuna ríkisins. En á sama tíma þótti hlýða að auka kaup ríkisins á dagblöðum um 500 eintök fyrir 50 millj. kr.
Ég segi það eins og er að mér þykir leitt að þingmaður úr mínu kjördæmi, sem því miður er hér ekki viðstaddur, skyldi vilja gerast sporgöngumaður í þessu máli fyrir hæstv. ríkisstjórn. En þetta er dæmi um það hvert mat hæstv. ríkisstjórn leggur á einstaka útgjaldaliði.
Ég skal svo ekki fara ofan í þá einstöku liði fjmrn. sem ráða því að hér er farið fram á aukin útgjöld umfram fjárlög um 909 millj. kr. í því ráðuneyti vegna þess að ég rakti það býsna rækilega við 1. umr. En það verður ekki hjá því komist að segja frá því að útgjöld fjmrn. hafa vaxið með ótrúlegum hraða síðustu tvö árin. Ef það er dregið saman miðað við það sem hér liggur fyrir, og er þó þetta ár ekki komið til loka, þá sést að útgjöld fjmrn. hafa hækkað á tveimur árum, þ.e. frá árinu 1988, um 112% og útgjöld aðalskrifstofu fjmrn. hafa hækkað enn þá meira eða um 129% á meðan útgjöld ríkissjóðs í heild höfðu þó ekki hækkað nema um 54,6%. Er nú furða þegar þannig er haldið á málum af hálfu hæstv. fjmrh. í hans eigin ráðuneyti að þá gangi ekki vel að ráða við hallarekstur ríkissjóðs? Því það höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það. Og ef hæstv. fjmrh. heldur þannig á málum í eigin garði, þá er nú ekki von að hann hafi burði til þess að takast á við útgjöld þeirra ráðuneyta og þeirra stofnana ríkisins sem fjær honum standa.
Þetta er auðvitað alveg lagið til þess að styðja þann hornstein í stefnu hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórnar, að auka rekstrarumfang og útgjöld ríkissjóðs og ganga svo æ dýpra í vasa skattborgaranna til þess að reyna að fjármagna allan þennan rekstur, svo að maður velji honum ekki önnur orð.
Ég vil greina hér frá því að brtt. meiri hl. fjvn.
nema í það heila tekið 157,7 millj. kr. til hækkunar útgjalda. Þegar litið er á þessar brtt. er ljóst að þar er varfærnislega farið í sakir og vekur kannski meiri athygli hvað ekki eru gerðar tillögur um heldur en tillögurnar sjálfar. Sum þeirra mála sem ekki koma fram í brtt. fjvn. eru þess efnis að það er ekki sýnilegt annað en að þar verði að gera nýjar brtt. við 3. umr. ellegar þá a.m.k. við fjáraukalagafrv. sem flutt verður snemma á næsta ári, en þessi aðferð hæstv. ríkisstjórnar nú og hv. meiri hl. fjvn. sýnir það að enn er starfað eftir þeirri stefnu að gera tilraun til þess að leyna raunveruleikanum eins lengi og fært er.
Ég vil þó taka það fram að frsm. meiri hl. fjvn., hv. 1. þm. Vesturl., greindi hér frá því í sinni ræðu áðan að ástæða væri til að taka til athugunar nokkur atriði á milli 2. og 3. umr. sem sýnir það að honum er þetta ljóst og ég hlýt að fara um það viðurkenningarorðum að hv. frsm. meiri hl. skyldi láta þetta koma hér fram. Það sannar að hann veit auðvitað hvernig málin standa sem reyndur maður og maður sem leggur sig fram við það að fara ofan í málin alveg eins og við í minni hl. Það kom fram í hans máli hér áðan og mér þótti í raun vera stórum betur að fá að heyra það að hv. frsm.
nefndarinnar skyldi greina frá þessu sem er í samræmi við raunveruleikann þannig að það er nú ómaklegt af minni hálfu að gera einhverja hríð að honum í þessu efni. En það sem fram er komið í þeim brtt. sem hér liggja fyrir ber auðvitað þess vitni að þar hafa menn lokað augunum fyrir raunveruleikanum, a.m.k. enn sem komið er.
Ég vil taka það fram að langstærst af þeim málum sem hér eru ekki tekin inn í brtt. meiri hl. er yfirtaka ríkissjóðs þann 1. júní sl. á yfirdráttarskuld Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins í Seðlabankanum. Strax og þetta frv. kom fram lét ég þess getið að mér sýndist það eigi standast að þessum yfirtökum ríkissjóðs væri eigi gerð skil í fjáraukalögum og fengin þar lagaheimild fyrir þeim útgjöldum, enda verður eigi hjá því komist að þessi útgjöld sem eru um 1,5 milljarðar kr. komi fram í greiðsluyfirliti ríkissjóðs og í ríkisreikningi. Hjá því verður ekki komist.
Hæstv. fjmrh. hefur á hinn bóginn haldið því fram að það megi meðhöndla þetta mál með þeim hætti að taka það inn án þess að fram komi í greiðsluyfirliti ríkissjóðs og síðan verði það fært á greiðsluyfirlit ríkissjóðs eftir því sem greiðslur af láninu komi til gjalda. Fyrir þessu eru fordæmi að því er lýtur að yfirtöku lána sem eru í fast bundnum skuldabréfum, þ.e. lögformlegum lánsskjölum sem eru í skilum. Fyrir því eru fordæmi að meðhöndla mál á þann hátt þegar um slík lánsskjöl er að ræða. En þær yfirdráttarskuldir sem hér er um að tefla eru lausaskuldir og þeim fylgdu engin lánsskjöl. Þar er aðeins um lausaskuldir að ræða sem eru yfirteknar af ríkissjóði.
Eftir að fjmrh. hafði borið brigður á að ég færi með rétt mál í þessum efnum og hv. meiri hl. fjvn. hafði gefið óljós svör, þá óskaði ég eftir greinargerð Ríkisendurskoðunar um þetta mál og sú greinargerð er prentuð hér með sem fskj. með nál. minni hl. ásamt
þeim fylgibréfum er þetta mál varða. Þessi gögn sanna öll atriði málsins.
Í fyrsta lagi að á bak við þennan yfirdrátt í Seðlabankanum standa engin lánsskjöl heldur einungis yfirlýsing undirrituð af tveimur mönnum, að sjálfsögðu valinkunnum mönnum, Árna Kolbeinssyni, ráðuneytisstjóra í sjútvrn., og Ólafi Ragnari Grímssyni fjmrh. Aðeins yfirlýsing um það að ríkissjóður stæði á bak við þessa lántöku.
Í greinargerð Ríkisendurskoðunar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta: ,,Eins og á stóð er að mati Ríkisendurskoðunar ekki hægt að horfa fram hjá því að ríkissjóður yfirtók gjaldfallna yfirdráttarskuld sjóðsins en ekki ógjaldfallna skuld skv. skuldabréfi.`` Þar segir einnig: ,,Því virðist umrætt ákvæði Seðlabankans girða fyrir þennan möguleika.`` Þ.e. eins og áður kemur hér fram að hægt sé að yfirtaka þessa skuldbindingu á þann hátt að það komi ekki fram í greiðsluyfirliti ríkissjóðs á þessu ári.
Síðar segir í greinargerð Ríkisendurskoðunar, með leyfi forseta:
,,Með hliðsjón af því sem að framan er rakið lítur Ríkisendurskoðun svo á að ofangreindar skuldbindingar Verðjöfnunarsjóðs hafi allar verið gjaldfallnar þegar ríkissjóður tók þær yfir þann 1. júní sl. Af þeim sökum verður ekki komist hjá því að afla fullgildrar lagaheimildar til greiðslu og lántöku ef með þarf vegna uppgjörs ríkissjóðs á skuldum Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins við Seðlabanka Íslands.``
Hér er ótvíræð niðurstaða Ríkisendurskoðunar þess efnis að ekki verði komist hjá því að afla lagaheimildar til yfirtöku á þessum skuldum, sem verður að gera í fjáraukalögum úr því það er ekki í fjárlögum. Og ef ríkissjóður óskar að afla lánsfjárheimildar, þá mundi það verða gert með lánsfjárlögum. Þetta er ótvírætt. Ég hlýt því að líta svo á og ég trúi ekki öðru en hv. meiri hl. fjvn. taki þessa fjárhæð upp við 3. umr. og hún komi þannig til gjalda hjá ríkissjóði á þessu ári. Það er reyndar viðurkennt af fjmrn. sjálfu að ekki verði hjá því komist að þessi fjárhæð komi fram í ríkisreikningi.
Ég held að ég fari ekki frekar út í þetta mál. Ég tel það liggja alveg skýlaust fyrir. Ég get þó aðeins bætt því við sem hér segir í fylgibréfi frá Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, þ.e. frá Árna Kolbeinssyni, formanni sjóðsins, þann 6. nóv. 1990. Þar segir m.a, með leyfi hæstv. forseta: ,,Með lögum nr. 39 15. maí 1990 er Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins lagður niður og skal ríkissjóður taka við skuldbindingum sjóðsins samkvæmt bráðabirgðaákvæði sömu laga. Samkvæmt því er fullljóst að skuldbindingar sjóðsins samkvæmt fyrrgreindri yfirdráttaryfirlýsingu falla á ríkissjóð og telur Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins frekari afskipti af frágangi skuldarinnar því ekki í verkahring sjóðsins.``
Hér er einnig algjörlega afdráttarlaus skoðun Árna Kolbeinssonar, formanns þess Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins sem tók við af hinum gamla sem lagður var niður með lögum, og sá Árni Kolbeinsson er jafnframt ráðuneytisstjóri sjútvrn. eins og kunnugt er.
Ég tel þetta mál sem sagt þá liggja gjörsamlega ljóst fyrir og þarf ekki að vera að vefja það með sér að þarna er um að tefla útgjöld ríkissjóðs á þessu ári sem losa 1,5 milljarða kr. og er þar með halli ríkissjóðs bara við þennan eina lið kominn yfir 6,5 milljarða kr. eða 6,7 milljarða kr.
Ég vil aðeins víkja að því eins og hv. frsm. meiri hl. gerði að hallarekstur er mjög alvarlegur hjá mörgum sjúkrahúsum landsins og heilsugæslustöðvum. Sumpart stafar þessi halli af því að virðisaukaskattur leggst mun þyngra á rekstur þessara stofnana en söluskattur gerði áður. Ekki var gert ráð fyrir þessum kostnaðarauka í fjárlögum og sömu sögu er að segja um margar stofnanir í ríkiskerfinu.
Ég tók eftir því að hv. frsm. meiri hl. skýrði það að hjá einni stofnun hefði verið tekið tillit til þessa, eins og kemur fram í brtt. meiri hl., það er hjá Alþingi. Þetta var staðreynd og það varð að viðurkenna í fjáraukalögum, sagði hv. frsm. meiri hl. En skyldi nú ekki þessi kostnaðarauki líka vera staðreynd hjá sjúkrahúsunum og skyldi nú ekki þessi kostnaðarauki vegna virðisaukaskattsins sem ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið líka vera staðreynd hjá ýmsum öðrum stofnunum ríkisins sem eru undir sömu sök seldar? Og hafi nú verið rétt áætlað fyrir rekstri þessara stofnana í fjárlögum plús þeim fjáraukalögum sem hér eru til meðferðar, þá stendur þetta út af. Ef hv. stjórnarliðar ekki koma með tillögur um það hvernig eigi að draga úr starfsemi þessara stofnana á móti því sem þessi skattlagning til ríkisins segir til um, þá myndast auðvitað halli sem á þá að koma inn á gjaldahlið fjárlaga í fjáraukalögum, og ekki um það að tefla að það sé fært að leyna slíkum halla til langframa eða geyma hann þangað til þessi ríkisstjórn er farin frá þó að það sé auðvitað það sem hæstv. fjmrh. langar til.
Þessi mismunur á kostnaði spítalanna, ekki einungis ríkisspítalanna heldur spítalanna í landinu, sjúkrahúsanna, sem hlýst af virðisaukaskattinum umfram söluskattinn áður er talinn vera um 90 millj. kr. Aðeins hjá sjúkrahúsunum. Og enn þá er ekki sýnt annað en að sjúkrahúsin sem rekin eru af ríkissjóði verði að borga þennan skatt. En þessi skattur er álíka mikill og sú fjárhæð sem þyrfti til þess að halda gangandi 50 legurúmum fyrir aldraða á einu ári. Til þess að geta borgað þennan skatt þyrfti því sem sagt að reka út af spítölunum sem svarar því sem kostar að hafa 50 aldraða í vist á sjúkradeild í heilt ár.
Þó að ég mæli með því að á ýmsan hátt sé reynt að spara í þessu kerfi eins og annars staðar, þá höfum við orðið vör við það að sparnaðurinn lýtur kannski ekki síst að þessu, að reka út af sjúkrahúsunum, að loka deildum og jafnvel svo, eins og fram hefur komið, að það verður að spara þau lyf sem best eru og nota önnur lakari af því að þau eru ódýrari. Hér er því um býsna alvarleg mál að tefla sem ekki er hægt að hafa að gamanmálum eða í flimtingum, heldur eru þau stórkostlega alvarleg og ég fagna því að hv. frsm. meiri hl., 1. þm. Vesturl., lét þess getið að þessi mál mundu verða könnuð og athuguð á milli
2. og 3. umr.
Samkvæmt upplýsingum fjmrn. hafa ráðherrar, þ.e. hæstv. fjmrh. og hæstv. iðnrh. og væntanlega fleiri hæstv. fagráðherrar, náð samkomulagi um það sem áður hafði verið borið til baka af til að mynda iðnrn. að jöfnunargjald skyldi ekki endurgreitt nema til loka nóvembermánaðar. Jöfnunargjaldið er innheimt í desembermánuði en samkvæmt þessu samkomulagi --- og nú hefði ég að sjálfsögðu kosið að hér væri t.d. hæstv. iðnrh. sem þó hefur fjarvistarleyfi eða aðrir ráðherrar fleiri en þeir sem hér eru staddir --- en samkvæmt þessu samkomulagi, ef þetta er rétt, þá á ekki að endurgreiða til atvinnuveganna það sem innheimt er í verðjöfnunargjöldum í desembermánuði sem samtals er talið vera um 260 millj. kr. sem ætti að endurgreiðast til allra atvinnugreina, þar af um 50 millj. til iðnaðarins. Með því að taka slíka ákvörðun, þá kemur hún þvert á loforð sem gefin hafa verið, þvert á venjur sem ríkt hafa, þvert á það sem forstöðumenn þessara fyrirtækja, sem hér eiga hlut að máli, hafa treyst á. Með þessum hætti er meiningin að fara inn um bakdyrnar í skattheimtu á atvinnulífið og er eitt dæmið af fjölmörgum um það að þó samkomulag hafi verið gert, þó venjur hafi ríkt, jafnvel þá sé það að engu haft þegar hæstv. ríkisstjórn býður svo við að horfa.
Það eru fjölmörg dæmi um það að lagaákvæði eru sniðgengin af þessari hæstv. ríkisstjórn og skal ég ekki fara í það hér að telja það upp. En það er sannarlega illa komið þegar ráðamenn þjóðarinnar, æðstu valdhafar, virða ekki samkomulag sem gert er við aðila í þjóðfélaginu, virða ekki samninga svo sem kunnugt er og í ýmsum tilvikum virða ekki þau lög sem gilda í landinu. Það er mál til komið að sú hæstv. ríkisstjórn, sem þannig heldur á málum, víki.
Samkvæmt því sem upplýsingar liggja fyrir um við meðferð þessa máls, þá vantar til að standa straum af starfsemi Atvinnuleysistryggingasjóðs, þ.e. til atvinnuleysistrygginga eða atvinnuleysisbóta, um 200 millj. kr. til loka ársins. Ekki er gert ráð fyrir því að mæta því við þessa afgreiðslu frv. Á hinn bóginn hafa verið gefnar þær skýringar
að ætlunin sé að mæta þessu á þann hátt að selja verðbréf í eigu sjóðsins. Jafnframt hefur verið upplýst að þau muni seljast með svo miklum afföllum að ekki sé líklegt að þau seljist á frjálsum markaði með minna en 30% afföllum. Ef þau ættu að seljast á nafnverði þá væri ljóst að enginn gæti keypt nema ríkissjóður. Sú lausn sem menn hugsa sér að fara í þessum efnum er því meira og minna málamyndalausn.
Það er upplýst að viðbótarfjárþörf Lánasjóðs ísl. námsmanna, miðað við það hvernig starfsemi þess sjóðs er rekin, muni vera til loka þessa árs 452 millj. kr. Þessu er reiknað með að mæta með enn aukinni lántöku þessa sjóðs. Á þennan hátt, með sífelldum lántökum sjóða, þar á meðal Lánasjóðs ísl. námsmanna eins og hér kemur fram, er verið að rýra eigið fé sjóðanna, í þessu tilliti Lánasjóðs ísl. námsmanna, og varpa vandanum á herðar framtíðarinnar
sem mun þá kosta annað tveggja, stóraukin útgjöld úr ríkissjóði ellegar að þrengt verður að þeim sem eiga að njóta starfsemi þessara sjóða. Aðrar leiðir verða ekki til þegar að því rekur að sjóðirnir stefna í gjaldþrot. Hér er verið að stíga eitt skref á þeirri feigðargöngu.
Í fjárlögum fyrir þetta ár er heimild í 6. gr. til hæstv. fjmrh. um að semja við nokkur stærri sveitarfélög um greiðslu á skuldum ríkissjóðs. Þessar skuldir eru öðru hvoru megin við milljarð. Þess má geta að Reykjavíkurborg ein telur til skulda ríkissjóðs um einn milljarð króna ef fjárhæðin er framreiknuð með verðlagsbótum án vaxta. En ef um fasta tölu væri að ræða væri þetta 600 -- 700 millj. kr. Ýmis önnur sveitarfélög eiga þar einnig stóran hlut að máli þar sem ríkissjóður skuldar vegna fjárfestinga eða framkvæmda í þeim sveitarfélögum.
Samkomulag var gert við afgreiðslu fjárlaga fyrir ári síðan, fyrir forgöngu hv. 1. þm. Reykv. og hlut áttu að ýmsir fleiri þingmenn, við hæstv. fjmrh. um að taka inn slíka heimild í 6. gr. fjárlaga. Ég hef ekki heyrt eitt eða neitt af því hvernig þeir samningar hafa gengið og hvergi kemur fram að ein einasta króna sé greidd úr ríkissjóði til að fullnægja slíku samkomulagi. Það væri fróðlegt að heyra frá hæstv. fjmrh. hvað þessu máli líður. Það sem hér hefur verið talið í ræðu minni, og einnig er vikið að í nál. minni hl. fjvn. á þskj. 211, sannar að hvergi nærri eru öll kurl til grafar komin um útgjöld ríkissjóðs á þessu ári.
Auðvitað mun hæstv. fjmrh. leitast við að halda feluleiknum áfram, reyna að dylja eftir föngum raunveruleg útgjöld ríkissjóðs og ýta því á undan sér af þeim málum sem ég hef hér talið sem mögulegt er. Það er í samræmi við það stefnumið hans, að leitast við að halda þessum útgjöldum sem mest leyndum og láta þau skella á herðum framtíðarinnar, þegar aðrir eru teknir við stjórn landsins. Eigi að síður eru sum af þessum atriðum þess efnis að ekki verður komist hjá því að færa þau inn á greiðsluyfirlit ríkissjóðs. Er þar eins og áður sagði stærst yfirtaka ríkissjóðs á lausaskuldum Verðjöfnunarsjóðsins sem gerðist þann 1. júní sl. sem er um 1,5 milljarðar króna. Það sést því að þótt nú sé gert ráð fyrir að afgreiða þetta frv. á þann hátt að halli á ríkissjóði á þessu ári verði um 5,1 -- 5,2 milljarðar kr. þá er komið í ljós að sú spá sem við í minni hl. fjvn. lögðum fram við afgreiðslu fjárlaga fyrir ári síðan um raunverulegan halla á fjárlagadæminu upp á 6 -- 7 milljarða kr. var varfærin eins og við sögðum þá. Þó aðeins þessi eina tala sé tekin inn, um 1,5 milljarðar, er hallinn kominn upp í 6,7 milljarða kr.
Þetta atriði í málflutningi okkar fyrir ári síðan eins og önnur hafa sannast. Ég er auðvitað viss um það að þeir meðnefndarmenn mínir úr hv. meiri hl. sem starfa að þessum málum í fjvn. vissu þetta einnig. En þeir létu undan þeirri stefnu hæstv. ríkisstjórnar og hæstv. fjmrh. að reyna að breiða yfir raunveruleg útgjöld, reyna að leyna raunverulegum útgjöldum í lengstu lög, halda feluleiknum gangandi eins lengi og mögulegt væri, til þess að reyna á pappírnum að sýna skárri útkomu en raunveruleikinn er. En það kemur alltaf að skuldadögum og sannleikurinn kemur í ljós fyrr en síðar. Að hluta er hann nú kominn í ljós, að hluta til á hann eftir að koma í ljós. Við skulum sjá hvernig ríkisreikningur lítur út og við skulum sjá hvernig fjáraukalagafrv. lítur út sem flutt verður hér á nýju ári.
Ég tel auðvitað ekki tímabært að fara hér með neinar fullyrðingar um það hvernig staðan verður þá. Ég hef rakið ýmislegt sem gefur bendingar um það hvernig hún verður. Ég tel heldur ekki tímabært að gefa hæstv. fjmrh. neina lokaeinkunn fyrir fjármálastjórnina á þessu ári. En bæði það sem ég hef sagt hér í þessari ræðu minni og sá sannleikur sem birtist í þingskjölum er varða fjármál ríkisins gefa bendingar um hvernig sú einkunn muni verða.