Fjáraukalög 1990
Fimmtudaginn 29. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill gera alvarlegar athugasemdir við þann dapurlega atburð sem átti sér stað hér áður en fundi var frestað fyrir hádegi. Svo að allar staðreyndir þess máls séu ljósar vill forseti upplýsa eftirfarandi:
    Eftir að fundur hófst í morgun kom hv. 2. þm. Norðurl. e. að máli við forseta og óskaði utandagskrárumræðu. Eins og segir í 32. gr. þingskapalaga þarf að bera fram slíka ósk við forseta eigi síðar en tveim klukkustundum áður en þingfundur hefst. Þetta hélt ég að hv. 2. þm. Norðurl. e. vissi. Ég benti honum því á að þetta gæti ekki orðið og spurði hann hvað hann óskaði að ræða. Og skýringin sem forseta var gefin var að á nefndarfundi í morgun hefði honum verið neitað um upplýsingar svo forseti sagði að sjálfsögðu: Það er efni til umræðna um þingsköp. Um frekara efni vissi forseti ekki. Það er fjarri lagi að forseti hafi óskað eftir nærveru hæstv. sjútvrh. hér í þingsal. Það mun hv. þm. að hafa gert sjálfur. Þetta er þá öllum þingmönnum ljóst.
    En það sem er e.t.v. alvarlegra í þessu máli er að hæstv. forseti þessa þings, í þessu tilviki hæstv. annar varaforseti sameinaðs Alþingis, rétt kjörinn, reyndi hér að gæta sinna starfa eins og henni bar og gerði það án þess að nokkuð væri athugavert við þau störf, en réttmæti annars varaforseta var dregið í efa sem forseta þessa þings á meðan forseti sameinaðs Alþingis þurfti að gegna öðrum störfum í skrifstofu sinni. Þetta harma ég og vona að annað eins og það komi aldrei oftar fyrir.