Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú ekki að taka til máls við þessa umræðu en vegna þess að hæstv. fjmrh. kom aðeins inn á að efnahagslegur bati, sem ég tek undir að hafi orðið, hefði orðið verulegur vil ég segja í sambandi við það að hann hefði getað orðið enn þá meiri ef tekið hefði verið á þessum málum eins og gert er í öðrum þjóðlöndum þar sem hlutirnir eru nokkuð í lagi. T.d. þegar teknar eru ákvarðanir um efnahagsumhverfi í Svíþjóð er það á þann veg að þeir sem eiga fjármagn hafa mesta hagnaðarvon af því að fara í framleiðslu en ekki að setja peninga sína í banka og sjóði sem lána út fé á háum vöxtum. Efnahagsbatinn hefði líka verið mikið meiri ef það hefði verið farið eftir því sem lofað var, að lækka raunvexti niður í 6% eins og talað var um þegar ég var með öðrum að mynda þessa ríkisstjórn. Við það hefur ekki verið staðið, langt í frá. Af því að hæstv. fjmrh. var ekki hér inni þegar ég ræddi um þessi mál lítillega í gær þá vil ég endurtaka það að t.d. vextir eru þannig að ef hann ætti einbýlishús og á því hvíldi ekki neitt og hann færi í banka og bæði um lán sem væri allt að 30% af verðmæti hússins þá mundi hann eiga kost á því að fá 6,5% vexti. En allur almenningur verður nú að borga allt að 8,25% í raunvexti og þeir sem þurfa að skuldbreyta yfir 10%, því Seðlabankinn hefur leyft að leggja 2% ofan á þessa vexti, og t.d. í Íslandsbanka eru hinir almennu vextir 8,75%. Þetta er nú jafnréttið sem þetta fólk býr við og væri áreiðanlega hægt að gera meira, ná meiru í ríkissjóð með því að hygla ekki svona fjármagninu.
Þegar við vorum úti í Hull og Grimsby hér á dögunum þá var mér sagt að verðbólgan þar væri 10,9% en vextirnir 14 -- 15%, sem sagt meira en helmingi minni raunvextir þar en á Íslandi.
Þetta vil ég mjög átelja og tel rétt að komi fram við þessa umræðu vegna þess að nú er verið að vinna að afgreiðslu fjárlaga og það þarf að fá meiri tekjur í ríkissjóð með einhverjum hætti vegna þess að það er rétt, sem hv. 1. þm. Vestf. sagði hér áðan, að sjúkrahúsin, heilsugæslustöðvarnar, hafa ekki fjármagn eða a.m.k. er því ráðastafað á þann veg að þar er ófremdarástand. Það er upp undir 20 mánaða biðlisti, t.d. fyrir þá sem eru bæklaðir, til að komast í meðferð. Þetta er auðvitað algjörlega ólíðandi ástand. Þetta fólk er að brotna niður. Og það eru þeir sem eru verst settir, bæði þroskaheft fólk, fatlaðir og fjölskyldur þeirra. Þar er áreiðanlega þörf á að líta til meira en gert er. Þessir málaflokkar eru ekki í lagi og langt frá því.
Ég mun aldrei mæla með því að ekki séu teknir skattar til þess að halda uppi velferð í þessu þjóðfélagi. Það verður að miða við þessa þörf og það verður náttúrlega að setja aðrar stærðir í þjóðfélaginu eftir því að þetta sé í fyrirrúmi.
Í stjórnarsáttmálanum frá 1987 var talað um að leggja tekjuskatt á fjármagnstekjur. Nú er stutt til kosninga, hæstv. fjmrh., og hvar er það á vegi statt? Hvers vegna er allt í böndum nema frelsi fjármagnsins? Það er frjálst. Allt annað er í böndum.
Ef ég ætti einhverja eign og seldi hana og léti peningana í banka þá þyrfti ég ekki að borga tekjuskatt af því. En af öllum rekstri þarf aftur á móti að borga tekjuskatt. Ég hef upplýsingar um það að þetta sé eina landið í Evrópu sem svona er ástatt með. Þess vegna vil ég leggja þá spurningu fyrir hæstv. fjmrh.: Hvað verður gert í þessum málum? Er eitthvað á döfinni? Er þess að vænta á þessu þingi að á þessu máli verði tekið og á þennan hátt verði reynt að fá fjármagn til þess t.d. að láta í heilbrigðisgeirann þar sem vöntunin mun vera mest?