Fjáraukalög 1990
Fimmtudaginn 29. nóvember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs, umræðu er lokið og hefst nú atkvæðagreiðsla. ( FrS: Þetta gengur ekki forseti, ég var búinn að biðja um orðið.) ( Gripið fram í: Um þingsköp, ég var búinn að biðja um orðið.) Ég bið hv. þingmenn afsökunar. Ætlaði hv. 1. þm. Reykv. að tala um ...? ( FrS: Ef þetta er tekið sem ég sé að biðja um orðið þá vildi ég biðja um orðið og ég bað um orðið.) Forseta hefur bara yfirsést það, hv. þm., því þingmaðurinn hefur ekki verið skráður á lista. Ég bið auðvitað afsökunar á því. (Bankað í borð.) Vill hv. þm. komast á mælendaskrá? ( HBl: Ég var búinn að biðja um orðið fyrir löngu.) ( Gripið fram í: Fyrir löngu?) ( HBl: Já.) Ég held að þingmenn hafi nú ágæta heyrn. ( HBl: Það verður kannski að senda miða.)