Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Ég harma það nú að það skuli ekki vera tekið eftir því þegar menn biðja um orðið. Það voru allir vitni að því þegar hv. 2. þm. Norðurl. e. bað um orðið hér fyrr og eins þegar ég bað um orðið. Og þótt það fari í taugarnar á hv. forseta að umræður skuli hér dragast meira á langinn en hv. forseta finnst réttlætanlegt, þá held ég að hv. forseti verði að átta sig á því að menn hafa hér enn þá málfrelsi. --- [Fundi frestað.]