Stjórn fiskveiða
Mánudaginn 03. desember 1990


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. forseta fyrir að hann skyldi hafa séð til þess sl. fimmtudag að sú umræða um þingsköp sem ég hafði þá beðið um skyldi hafa farið fram. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að gefa mér þá tækifæri til þess að beina þeim tilmælum til hans að forseti beitti sér fyrir að nefndarmenn í sjávarútvegsnefndum fengju skrár yfir þær veiðiheimildir á næsta ári sem einstökum útgerðarmönnum smábáta hafa verið sendar. Þessar veiðiheimildir liggja nú fyrir hjá einstaklingum úti í þjóðfélaginu og ég hafði vænst þess að við í sjávarútvegsnefndum gætum fengið upplýsingar um hverjar þær eru. Ég er þakklátur hæstv. forseta fyrir að umræðan skyldi hafa farið fram. Henni lauk sl. fimmtudag og ég er þakklátur einstökum þingmönnum sem tóku undir þau sjónarmið sem ég setti fram í ræðu minni þá, hv. þm. Skúla Alexanderssyni, hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni, forseta Nd. hv. þm. Árna Gunnarssyni og hv. þm. Kristni Péturssyni. Umræðan var mjög málefnaleg sl. fimmtudag undir stjórn forseta þingsins, Guðrúnar Helgadóttur, og ég vil þakka fyrir að sú umræða gat farið fram.
    Ég verð á hinn bóginn, gerði það þá og ég veit ekki hvort ég harma það svo mjög nú, vegna þess að sú umræða sem fer fram í dag um stjórn fiskveiða verður ítarlegri en ég hafði þá búist við. Ég taldi rétt að gera hæstv. sjútvrh. aðvart sl. fimmtudag þegar ég tók málið upp hér í þinginu, sem er í samræmi við gamla hefð. En vegna þess að hann var tímabundinn þurfti hann að hverfa af fundi sem var ástæðan fyrir því að ég kaus að taka málið upp á breiðum grundvelli nú í dag og er hæstv. forseta þakklátur fyrir að hann skyldi hafa gefið heimild til þess að sú umræða gæti verið ótakmörkuð í tíma.
    Ég vil í upphafi máls míns vekja athygli þingheims á því að nú er í fyrsta skipti ákvarðaður sérstakur aflakvóti fyrir báta innan við tíu tonn. Einstakir útgerðarmenn hafa verið að fá bréf og sumir þeirra standa nú frammi fyrir því að þeir fá mun minni kvóta en þeir höfðu vænst og sumir fá engan þó að þeir hafi búist við öðru, m.a. vegna þeirrar aflareynslu sem þeir einstaklingar höfðu á árunum 1985 -- 1987. Eins liggur það fyrir að einstakir eigendur smábáta hafa verið að láta gera við báta sína þar sem þeir hafa talið að þeir mundu fá kvóta á þá.
    Það er auðvitað erfitt mig, þó ég eigi sæti í sjútvn., að tala um þetta mál á breiðum grundvelli. Ég veit einungis um einstök dæmi vegna þess að hæstv. sjútvrh. hefur synjað mér um skrárnar, synjað mér um að bera mig saman við aðra og fara yfir þær aflaheimildir sem einstakir útgerðarmenn hafa fengið sendar. Þetta er, hæstv. forseti, ekki í samræmi við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru þegar aflakvótinn var samþykktur í þinginu í fyrsta skipti. Þetta er heldur ekki í samræmi við þau vinnubrögð sem viðhöfð voru í sjávarútvegsnefndum þegar frv. um stjórn fiskveiða var til athugunar í sjávarútvegsnefndum á síðasta þingi. Þvert á móti vann sjútvrn. þá með þeim hætti

að það reiknaði út fyrir okkur einstök atriði og ég vissi ekki betur en nefndarmenn í sjávarútvegsnefndum, ég vil segja yfir höfuð að tala, hafi verið menn fyrir þeim trúnaði sem þeim var sýndur. Ég vil taka fram að sennilega vita fleiri menn og hafa undir höndum þær skrár sem ég er hér að tala um en þeir þingmenn sem sæti eiga í sjávarútvegsnefndum Alþingis. Það olli mér verulegum vonbrigðum að hæstv. sjútvrh. skyldi bregðast svo við.
    Ég vil í öðru lagi vekja athygli á því að það orkar að sjálfsögðu mjög tvímælis þegar aflakvóta er úthlutað í fyrsta skipti. Ég talaði við einn trillusjómann í Grímsey, sem var ástæðan fyrir því að ég óskaði eftir þessu, ekki til þess að taka málið upp á opinberum vettvangi heldur til að setja mig inn í málið. Hann sagði mér að aflakvóti hans væri nú 80 tonn en hann hefði veitt 148 tonn. Nú vill svo til að í þessu sérstaka dæmi, samkvæmt upplýsingum sem ég hef fengið hjá starfsmanni sjútvrn., hefur einhver misskilningur orðið. Kvótaúthlutunin er ekki öldungis rétt. Það staðfestir einungis hversu nauðsynlegt er að einstakir þingmenn fái þessa skrá og geti lesið hana yfir sem og önnur þau mál sem upp hafa komið.
    Mér er sérstök ánægja, hæstv. forseti, að skýra frá því að fjölmargir útgerðarmenn, bæði eigendur smábáta og stærri báta, hafa haft samband við mig síðan á fimmtudag og vakið athygli mína á ýmsum hlutum sem a.m.k. orka mjög tvímælis. Ég get í því sambandi aðeins vikið að því að nú er á nýjan leik tekinn upp aflakvóti fyrir kola. Má búast við því að á árinu 1992 verði tekinn upp aflakvóti fyrir steinbít? Við vitum að þessi aflakvóti á að bætast við venjulegan aflakvóta. En þá er auðvitað spurningin hvort sú viðmiðun sem er í lögum, reglugerð og almennum reglum sjútvrn. sé ekki of þröng og þar af leiðandi villandi, hvort ekki geti verið nauðsynlegt að hafa viðmiðun víðari en gert hefur verið, láta hana ná yfir lengra tímabil og taka tillit og hliðsjón af útgerðarháttum á hverjum stað og vinnslunni á hverjum stað.
    Ég get í þessu sambandi rifjað upp að sá maður í Eyfjafirði sem var brautryðjandi á sviði úthafsrækjuveiða fyrir Norðurlandi. Sá maður býr ásamt með Snorra Snorrasyni. Ég er hér að tala um eiganda báts á Árskógssandi. Þegar hann fékk á sínum tíma árskvóta fyrir sitt skip missti hann auðvitað veiðiheimildir borið saman við aðra vegna þess að hann hafði haldið skipi sínu úti á rækjuveiðum hluta af árinu. Svo hittist á hjá þessum manni að hann hafði skipt um skip þegar aflakvótinn var settur á rækjuveiðar. Þá voru reglur sjútvrh. með þeim hætti að hinn nýi eigandi, sem engan þátt átti í rækjuveiðum fyrir Norðurlandi, fékk rækjukvótann í sinn hlut en aflamaðurinn á Árskógssandi engar rækjuveiðiheimildir vegna þess að hann hafði skipt um skip. Það sjá auðvitað allir að þetta var ranglátt, þarna var farið vitlaust að. Auðvitað vegna þess að þær forsendur sem lágu til grundvallar við aflaúthlutun voru rangar. Tóku ekki tillit til sérstakra aðstæðna.
Eins er það nú um úthlutun á kola, það er mjög hætt við því að sú úthlutun geti orkað tvímælis á ýmsum

stöðum. Ég tel af þeim sökum að óhjákvæmilegt sé að sjávarútvegsnefndir Alþingis fái upplýsingar um hvernig það mál standi nú og fái að fylgjast með framvindunni eins og hún verður. Ég vil jafnframt minna á að steinbítsveiðar út af Vestfjörðum eru mjög sérstaks eðlis. Við vitum auðvitað öll sem hér erum inni að orðrómur er uppi um að á síðustu árum hafi fiskur verið lagður upp á erlendum mörkuðum þar sem þorskur hefur verið kallaður ýmsum nöfnum öðrum sem ekki byrja á þ, sem byrja t.d. á stafnum steinbítur eða koli. Undir slíkum kringumstæðum yrðu þvílíkar sölur forsenda fyrir nýjum veiðiheimildum á næsta eða þarnæsta ári.
    Ég vil rifja það upp að þegar frv. um stjórn fiskveiða var í nefnd í Ed. á síðasta þingi hafði samstarf lengst af verið mjög gott milli stjórnar og stjórnarandstöðu. En þegar dró að úrslitum brá svo við að nefndarmenn meiri hlutans höfðu æ minna við stjórnarandstöðuna að segja og svo lauk, hæstv. forseti, að formenn stjórnarflokkanna, að ég ætla, a.m.k. voru þar ráðherrar úr stjórnarflokkunum uppi í ráðherrabústað og kölluðu fyrir sig, ég veit ekki hvort það var alla nefndarmenn meiri hlutans í sjávarútvegsnefndum, en a.m.k. suma, og sömdu þar um texta sem átti að verða grundvöllur að stjórn fiskveiða hér á landi um næstu ár. ( Gripið fram í: Það á ekki við um alla.) Það er rétt sem hv. þm. Karvel Pálmason segir, ég hygg að ég muni það rétt að honum hafi ekki verið treyst til að sitja þennan fund uppi í ráðherrabústað. Við fengum síðan í hendur uppáskrift frá fundinum uppi í ráðherrabústað. Ég spurði þá formann sjútvn., hv. þm. Stefán Guðmundsson, þeirrar spurningar, ég man nú raunar ekki hver var formaður, hvort Karvel Pálmason var formaður, en hv. þm. Stefán Guðmundsson var sá sem réri stjórnarfleyinu í nefndinni, hvort það hefði einhvern tilgang að stjórnarandstaðan hreyfði sérstökum málum, reyndi að koma fram einhverjum lagfæringum eða breytingum á frv. um stjórn fiskveiða til að breikka grunninn og bæta lögin auðvitað að okkar mati. Ég nefndi atriði sem við höfðum oft rætt um. Það vill svo til að í ræðu minni í Ed. var ég spurður um eitthvert þessara atriða og þar vakti ég athygli á því að sú breyting sem gerð var á veiðiheimildum sóknarskipa er svo veruleg að ég vil segja að hún jaðri við eignaupptöku og geti ráðið úrslitum um það að fjárhagur einstaklinga sem slík skip eiga eða fyrirtækja geti ráðið úrslitum um hvernig atvinnuástand sé í einstökum byggðarlögum og hvort þar sé yfirleitt byggilegt.
    Ég spurði meiri hlutann að því þá hvort einhver grundvöllur væri fyrir því að við reyndum að gefa sóknarmarksskipum aðlögunartíma. Því var neitað. Algjörlega neitað.
    Ég hef í höndum upplýsingar um, vegna þess að hæstv. sjútvrh. var í morgun spurður um Grímsey af fréttamanni í Ríkisútvarpinu og kem ég nánar að því síðar, að 12 tonna bátur sem þar veiddi á sl. ári 240 tonn en á að fá í sinn hlut 100 tonn á þessu ári. Aflaheimildir minnka úr 240 tonnum í 100 tonn. Ég hef jafnframt upplýsingar um það að tveir togarar, ég hef

ekki við höndina hvernig einstök skip fiskuðu á sl. ári, ég man það þó um tvo togara að annar þeirra veiddi á sl. ári 3000 tonn, fær 2200, hinn veiddi 4200 tonn, fær 3100 tonn.
    Ég vil þakka hæstv. sjútvrh. fyrir það að hann skyldi hafa íhugað málefni Grímseyinga. Það er laukrétt sem hann sagði í útvarpinu í morgun, þá var hann spurður um það hvað hægt væri að gera fyrir slíka staði. Hann sagðist ekki hafa sérstaklega tölur fyrir Grímsey en minnti á að mjög hefði verið rætt um það þegar lögin voru sett hvort byggðarlög eins og Grímsey, Bakkafjörður, Borgarfjörður eystri, ættu að hljóta einhverja sérstaka meðferð. Og síðan segir hæstv. ráðherra: Það má segja að því hafi verið hafnað.
    Þetta er öldungis rétt hjá ráðherra, því var hafnað og um það hafði enginn meira að segja en hæstv. ráðherra sjálfur. Hæstv. ráðherra minnir síðan á Hagræðingarsjóð, hann sagði réttilega að samkvæmt lögum um hann væri hægt að koma byggðarlögum til hjálpar. Síðan segir hann, með leyfi hæstv. forseta: ,,... ef þar blasir við atvinnuleysi og þau hafa misst skip í burtu.``
    Ég hefði í hans sporum orðað þetta öðruvísi. Ég hefði látið atvinnuleysið koma á eftir vegna þess að í lögum um Hagræðingarsjóð er tekið skýrt fram í 9. gr. að það sé skilyrði fyrir aðstoð sjóðsins að sala fiskiskips eða fiskiskipa hafi valdið straumhvörfum í atvinnuháttum viðkomandi byggðarlags, þannig að fyrirsjáanleg sé veruleg fækkun starfa og byggðarröskun sé yfirvofandi. Þessi grein útilokar að Hagræðingarsjóður geti komið til hjálpar ef um það er að ræða að stórfelldur samdráttur verði í aflaheimildum fiskiskipa vegna þess að þær hafa dregist saman á grundvelli þess að um sóknarmarksskip var áður að ræða sem nú fá aflamark eins og ég hef áður lýst. Ég veit heldur ekki hvort það er ævinlega besta lausnin að bíða þess að staðirnir missi skipin, ég hef ekki sannfæringu fyrir því að slík byggðarstefna sé heilbrigð eða eðlileg.
    Ég vil að lokum, hæstv. forseti, taka það fram að ég tel mjög hafa skort á það að hæstv. sjútvrh. hafi haft forustu um það að hér yrði mörkuð fiskvinnslustefna, án þess að ég ætli að fara út í það hér vegna þeirra skorða sem þessari umræðu eru settar.
    Ég vil svo að síðustu spyrja hæstv. ráðherra um það hvaða forsendur séu fyrir því að skreiðarverkendur greiði í Verðjöfnunarsjóð. Það liggur fyrir að þeir sitja uppi með birgðir frá sl. ári og enginn vafi á því að verðmæti þeirra hefur rýrnað verulega, m.a. vegna verðfalls dollara auk þess sem mikill vaxtakostnaður hefur fallið á þessar birgðir. Ég vil ítreka beiðni mína til hæstv. sjútvrh. um að nefndarmenn í sjávarútvegsnefndum fái skrá yfir þær veiðiheimildir sem einstökum smábátaeigendum hafa verið sendar til þess að þeir geti rækt starf sitt með sómasamlegum hætti.