Flm. (Halldór Blöndal) :
Herra forseti. Síðastliðið vor voru afgreidd frá Alþingi ný lög um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands. Það frv. var samþykkt hér í Ed. þegar annir voru hvað mestar síðustu dagana. Ég minnist þess frá þeim tíma að ég spurðist fyrir um það þegar málið var tekið til 3. umr. hvort hugmyndin væri sú að það frv. yrði afgreitt sem lög frá Alþingi. Við spurðumst fyrir um það, ég og hv. 4. þm. Austurl., og fengum þau svör að hugmyndin væri ekki sú heldur einungis að leggja málið fram í nefnd í Nd. Ég áttaði mig ekki alveg á því hvaða þýðing væri á bak við það, en síðar kom í ljós að við höfðum fengið rangar upplýsingar, hugmyndin var að knýja frv. fram. Auðvitað er það okkur hv. 4. þm. Austurl. víti til varnaðar eftirleiðis, að ekki skyldi vera staðið við þau orð sem við okkur voru sögð á vordögum að þessu leyti.
Það kemur auðvitað ekki á óvart að í þessum lögum er sitthvað sem þarf að breyta og þarf nánari athugunar við. Frv. var ekki þess eðlis að ástæða væri til að hraða því svo mjög sem gert var. Það er eftirtektarvert að einn virtasti starfsmaður dóms- og kirkjumrn. hefur orð á því í Morgunblaðinu í dag að minna sé vandað til þingmála en áður. Hér sé rennt í gegn þýðingarmiklum málum á síðustu dögum, án þess að þau fái efnislega meðferð eins og rétt sé.
Ég skal ekki við þessa umræðu nú gera það frekar að umræðuefni en mun, hygg ég, hafa ástæðu til þess að gera það síðar við önnur tækifæri.
Skv. lögunum, eins og þau liggja nú fyrir, er gert ráð fyrir að Kirkjuhvolsprestakalli verði skipt upp. Hábæjarsókn á að falla undir Oddaprestakall, Kálfholts- og Árbæjarsóknir skulu leggjast til Fellsmúlaprestakalls. Ráðherra hefur heimild til þess að fresta gildistöku þessa ákvæðis í 49. gr. laganna. Af því tilefni hafa þrjár sóknarnefndir allra sóknanna þriggja farið fram á í fyrsta lagi, eins og segir í bréfi sóknarnefndar Árbæjarsóknar, að séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir verði áfram prestur í Kirkjuhvolsprestakalli. Í öðru lagi mótmæla þessar sóknir því að vera skikkaðar með stjórnvaldsákvörðun í annað prestakall. Bréf frá sóknarnefndunum þrem fylgja sem fskj. með frv. Ég sé ekki ástæðu til að lesa þau bréf upp frá orði til orðs en legg áherslu á það, herra forseti, að þetta frv. fái skjóta afgreiðslu vegna þess að það liggur á að þingið taki afstöðu í málinu.
Mér er kunnugt um að fundur verður í allshn. á fimmtudag og vænti þess að málið verði þá tekið fyrir. Ég geri ráð fyrir að fundur verði í Ed. á morgun, eins og áætlun þingsins gerir ráð fyrir, og þá verður hægt að vísa þessu frv. til 2. umr. og nefndar.
Ég skal svo ekki að þessu sinni minna á mörgum orðum að sá prestur sem gegnir prestsstarfi í Kirkjuhvolsprestakalli á sér að því leyti merka sögu að þar er á ferðinni fyrsta konan sem vígð er til prests hér á landi. Það vakti á sínum tíma talsverða athygli, þótti sýna djörfung og dugnað hjá þessari konu að brjóta á bak aftur þá fordóma sem víða voru uppi í þjóðfélaginu gegn því að kona gegndi prestsstörfum. Ég hygg að allir þeir sem hafa kynnst störfum þessarar konu viti að hún er mjög dugleg, leggur sig fram við sín verk og er stétt sinni til sóma. Síðan hún vígðist til sóknarprests hafa margar aðrar konur komið í kjölfarið og orðið sómi sinnar stéttar.
Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð. Mér finnst rétt að Alþingi verði við beiðni sóknarnefndanna fyrir austan fjall. Alþingi hefur verið vinveitt þjóðkirkju Íslands og mér er kunnugt um að biskupinn yfir Íslandi er sammála efnisatriðum þess frv. sem ég hef nú mælt fyrir.