Rannsókn kjörbréfa
Þriðjudaginn 04. desember 1990


     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið fyrir eitt erindi, kjörbréf Björns Vals Gíslasonar, 3. varamanns Alþb. á Norðurl. e., sem kæmi inn í staðinn fyrir 4. þm. Norðurl. e., þingmann Alþb. Steingrím J. Sigfússon.
    Kjörbréfanefnd hefur athugað þetta kjörbréf og sér ekkert athugavert við það og leggur til að það verði samþykkt.