Fjáraukalög 1990
Þriðjudaginn 04. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjvn. (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Eins og fram kom í framsögu hv. 1. þm. Vesturl., sem mælti fyrir áliti meiri hl. fjvn. við 2. umr., varð að sammæli með fjárveitinganefndarmönnum að taka nokkur atriði sérstaklega til skoðunar á milli 2. og 3. umr.
    Þessi atriði vörðuðu í fyrsta lagi áhrif virðisaukaskatts á rekstur ýmissa ríkisstofnana, en í viðtölum við forsvarsmenn ríkisstofnana hafði komið fram að ástæða væri til að skoða það mál nokkru nánar. Í öðru lagi var um að ræða málefni sjúkrahúsa í Reykjavík, einkum ríkisspítala. Í þriðja lagi var um að ræða yfirtöku ríkissjóðs á skuldum Verðjöfnunarsjóðs. Í fjórða lagi vorum við beðnir að taka fyrir til skoðunar niðurskurð á fjárframlagi vegna sjálfvirkrar tilkynningarskyldu fiskiskipa. Í fimmta lagi féllumst við á að skoða nokkuð betur málefni Leikfélags Akureyrar. Mun ég nú gera grein fyrir því hvaða afdrif hafa orðið í nefndinni eða öllu heldur hjá meiri hl. nefndarinnar því að meiri hl. stendur að þeirri tillögugerð og afgreiðslu sem hér fer fram í þessari athugun á milli umræðna.
    Málefni sjúkrahúsanna í Reykjavík eru í sérstakri skoðun hjá fjvn., eins og raunar á við um málefni sjúkrahúsanna allra. Við höfum rætt við stjórnendur Borgarspítala og Landakotsspítala um vanda þessara stofnana og fjvn. hefur haft til meðferðar erindi frá þeim um viðbótarfjárþörf. Með sama hætti hefur nefndin átt fundi með stjórnendum ríkisspítala og nú síðast í gær áttum við varaformaður fjvn. fund með fulltrúum úr stjórnarnefnd ríkisspítalanna, heilbrrh. og fjmrh. um rekstrarvanda stofnunarinnar, en hann er mikill. Tillaga fjvn. um viðbótargreiðsluheimild vegna ríkisspítalanna sem afgreidd var við 2. umr. miðaðist við mjög takmarkaða viðbótarheimild sem má vera að ekki sé nægileg, m.a. vegna áhrifa virðisaukaskattskerfisins til aukinna útgjalda og aukins álags. Hvað virðisaukaskattinn og áhrif hans varðar þá hefur komið í ljós í viðræðum fjvn. við forstöðumenn fjölmargra opinberra stofnana að kerfisbreyting úr söluskatti í virðisaukaskatt hefur komið mjög misjafnlega niður og valdið sumum stofnunum, svo sem sjúkrahúsum, auknum útgjöldum, en aðrar stofnanir hafa fremur hagnast á þeirri breytingu en hitt. Nú við lok fyrsta árs í virðisaukaskattskerfinu telur fjvn. að rétt sé að meta áhrif skattkerfisbreytingarinnar á útgjöld ríkisstofnana og mun nefndin beita sér fyrir því í samvinnu við fjmrn. að það endurmat fari nú fram og tillit verði tekið til þess við afgreiðslu fjárlaga síðar í mánuðinum. Það endurmat á útgjaldaáhrifum virðisaukaskattsins mun að sjálfsögðu einnig ná til sjúkrahúsa.
    Í fjárlagafrv. 1991 eru útgjöld vegna sjúkrahúsa í Reykjavík sett fram í einni tölu en ekki sundurliðuð á sjúkrahúsin eins og vanalega. Fjvn. hefur óskað eftir skýringu og sundurliðun eftir viðfangsefni og stofnunum. Nefndin mun skoða gaumgæfilega í því sambandi stöðu hverrar sjúkrastofnunar fyrir sig, bæði með tilliti til fjárþarfar á næsta ári og stöðunnar á yfirstandandi ári. Ýmsar upplýsingar benda til að frekari greiðslur vegna sjúkrastofnana, þar á meðal ríkisspítalanna, umfram heimildir fjárlaga og fjáraukalaga séu óhjákvæmilegar á árinu 1990 og mun fjvn. þá beita sér fyrir því að viðbótargreiðsluheimildar verði aflað svo óhjákvæmilegar greiðslur geti farið fram.
    Hvað varðar yfirtöku ríkissjóðs á skuldum Verðjöfnunarsjóðs er þetta að segja. Óskað hefur verið eftir áliti Ríkisendurskoðunar um það mál og fjvn. hefur fengið það álit. Vitað er að fjmrn. er ekki sömu skoðunar, eins og kemur fram í áliti Ríkisendurskoðunar. Fjvn. hefur ekki haft tíma né tækifæri til að ræða það mál að öðru leyti en því að áliti Ríkisendurskoðunar hefur verið dreift á fundi fjvn. Ég mun beita mér fyrir því að fjvn. ræði sérstaklega álit Ríkisendurskoðunar og afstöðu fjmrn. og haldinn verði um það sérstakur fundur þar sem sjónarmið beggja aðila fái betur að koma fram en tækifæri hefur gefist til hér. Að sjálfsögðu munum við síðan í fjvn. við afgreiðslu á málinu hafa hliðsjón af því áliti sem við munum leita eftir frá Ríkisendurskoðun og ríkisreikningsnefnd um meðferð á þessu máli.
    Hvað varðar sjálfvirka tilkynningarskyldu fiskiskipa, þá er það rétt að þar var um niðurskurð á fjárveitingu að ræða. Sá niðurskurður var afgreiddur formlega hér á hinu háa Aþingi í fjáraukalögum á sl. vori, þannig að um þennan niðurskurð hefur Alþingi fjallað og tekið afstöðu til þess að hann skuli gerður. Það hefur valdið Slysavarnafélagi Íslands nokkrum örðugleikum en við gerum ekki tillögu um að Alþingi endurskoði þá afgreiðslu sína sem það gerði á þessu máli í vor, en viljum aðeins taka fram að viðfangsefni þetta er að sjálfsögðu til skoðunar í tengslum við fjárlagagerð fyrir árið 1991.
    Að lokum ætla ég að lýsa niðurstöðu fimmta og síðasta viðfangsefnisins sem við skoðuðum sérstaklega, þ.e. málefni Leikfélags Akureyrar. Meiri hl. fjvn., og ég geri ráð fyrir því að sú tillaga njóti stuðnings minni hl. einnig eða ég vænti þess, gerir tillögu um það að fjárveiting vegna mikils rekstrarvanda Leikfélags Akureyrar verði hækkuð úr 2,2 millj. kr., eins og tillaga er gerð um í frv. til fjáraukalaga sem við höfum fjallað um, í 6 millj. kr., eða raunar að fyrir 2 millj. 250 þús. komi 6 millj. Hækkun greiðsluheimildarinnar er þá um 3 millj. 750 þús. Er það eina tillagan sem úr fjvn. kemur við þessa 3. og lokaumræðu um fjáraukalögin.
    Virðulegi forseti. Ég hef svo ekki meira um þetta mál að segja að svo stöddu en legg til að þessi brtt. á þskj. 221 verði samþykkt og fjáraukalögin samþykkt þannig breytt.