Guðmundur G. Þórarinsson :
Virðulegi forseti. Ég tek hér sérstaklega til máls til að gera að umræðuefni málefni sjúkrahúsanna og vekja athygli á þeim orðum sem formaður fjvn. lét hér falla úr ræðustól í ræðu sinni við 3. umr. þessara fjáraukalaga. Með orðum sínum gaf hann ákveðið fyrirheit um lagfæringu, fyrirheit sem ég vil vekja athygli á og ítreka og ætla reyndar að hafa eftir hér, með leyfi forseta, en í ræðu sinni sagði formaður fjvn.: ,,Ýmsar upplýsingar benda til að frekari greiðslur vegna sjúkrastofnana, þar á meðal ríkisspítalanna, umfram heimildir fjárlaga og fjáraukalaga séu óhjákvæmilegar á árinu 1990. Þá mun fjvn. beita sér fyrir því að viðbótarheimildar verði aflað svo óhjákvæmilegar greiðslur geti farið fram.``
Ég hygg að stjórnendur sjúkrahúsanna og ekki síst ríkisspítalanna geri mikið með þessi orð formanns fjvn. og bindi miklar vonir við þá framkvæmd sem á eftir hlýtur að fylgja. Ég vil í þessu sambandi sérstaklega vekja athygli á því að við afgreiðslu fjárlaga um síðustu áramót flutti formaður fjvn. ræðu þar sem hann fléttaði inn í sína ræðu svipuð fyrirheit um lagfæringu fyrir ríkisspítalana. Í kjölfar þess fyrirheits var mikið fundað um málefni ríkisspítalanna og lokin urðu þau að lagfærð var reikniskekkja sem komið hafði fram í fjárveitingum til ríkisspítalanna þannig að aukafjárveiting var veitt upp á 147 millj. kr., en til þess að miða við að starfsemi ríkisspítalanna gæti verið svipuð á árinu 1990 og hún var á árinu 1989 varð reyndar að reikna með í viðbót við þessar 147 millj., að taka það fé sem ætlað hafði verið til aukinna hjartaskurðaðgerða og glasafrjóvgunar á ríkisspítulum og leggja þar við. Heilbrrh. hefur síðan gripið inn í það mál og fært til fjármuni frá Tryggingastofnun þannig að hjartaaðgerðir hafa verið framkvæmdar í mjög auknum mæli á ríkisspítulunum og stefnir nú óðum í að þær verði svo að segja allar framkvæmdar hér innan lands.
Ég tel ástæðu til að vekja athygli á því að stjórnendur ríkisspítalanna líta á þá yfirlýsingu, sem hér var gefin af formanni fjvn., með sama hætti og þá yfirlýsingu sem var gefin um síðustu áramót.
Umræða hefur orðið gríðarlega mikil um heilbrigðisþjónustuna á undanförnum missirum og það er eðlilegt. Ríkissjóður býr við erfiða fjárhagsstöðu, halli á ríkissjóði er glettilega mikill og í þeirri umræðu sem á sér nú stað um sparnað og aðhald er eðlilegt að umræðan beinist m.a. að heilbrigðisþjónustunni sem er meðal stærstu útgjaldaliða íslenska ríkisins. En þá verða menn að gæta að því alveg sérstaklega að undanfarið hefur verið gætt mikils aðhalds meðal sjúkrastofnana og ekki síst ríkisspítalanna.
Menn verða að gera sér grein fyrir því að ríkisspítalarnir eru ekki eitthvert ópersónulegt viðamikið bákn sem eyðir miklum fjármunum, heldur eru þeir kjarninn í íslenskri heilbrigðisþjónustu, án þeirra hvorki vilja landsmenn né geta verið. En vandi ríkisspítalanna er gríðarlega mikill og það er ástæða til að vekja athygli á því, einmitt í tengslum við afgreiðslu
á þessum fjáraukalögum, að gripið hefur verið til viðamikilla sparnaðar- og aðhaldsaðgerða einmitt á ríkisspítulunum. Ég minni ekki síst á lokanir sjúkradeilda á sl. sumri sem reyndar hafa verið mjög umdeildar og menn varpa jafnvel upp spurningum hversu mikill sparnaður í þeim felist.
Við lokanir sem óhjákvæmilegar hafa verið, bæði vegna sparnaðaraðgerða og vegna skorts á sérhæfðu starfsfólki, hefur verið reynt að hlífa bráðamóttökudeildunum sem mest. E.t.v. voru mest umræddar þær lokanir sem urðu á öldrunarlækningadeildunum en hjá ríkisspítulum var lokað í sumar í þrjá mánuði einni af þremur deildum öldrunarlækningadeildar í Hátúni. Þetta var reyndar í annað skipti sem þeirri deild var lokað því það var gert 1989. Það var þá gert í fullu samráði við starfsfólk deildarinnar og menn gerðu sér ekki grein fyrir því hvort það þyrfti að framkalla mjög mikla erfiðleika. Sannleikurinn var sá að sumarið 1989 komu fram af öðrum ástæðum ýmsar mildandi aðgerðir, þ.e. að Skjól var að opna sínar vistarverur og taka við vistmönnum. Það dró mjög úr áhrifum lokana 1989 og erfiðleikarnir komu ekki svo skýrt fram fyrr en núna í sumar 1990 þegar engar mildandi aðgerðir voru aðrar í gangi.
Ekki hvað síst var erfitt að geta ekki gripið til hvíldarinnlagna eða hjálpað fólki sem til langframa umgengst og annast aldraða og treystir á hvíldarinnlagnir um tíma á slíkum stofnunum. Það kemur líka í ljós að heimahjúkrun er veikari í Reykjavík en víða úti á landi og nauðsynlegt er að auka hana, jafnframt því sem hjúkrunarheimili fyrir aldraða vantar mjög í Reykjavík og sjúkrahúsin eru þess vegna setin mjög af langlegusjúklingum sem fremur ættu heima á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða.
Ég held að reynslan af þessum lokunum öldrunardeildanna sé slík að stjórnarnefnd ríkisspítalanna muni ekki sjá sér fært að leggja til slíkar lokanir á næstu árum, enda, eins og ég sagði fyrr, sparnaðurinn vafasamur.
En það er erfitt að grípa til þessara aðgerða. Ég get nefnt það hér sem dæmi að að undanförnu hefur stjórnarnefnd breytt til að mynda lýtalækningadeild á Landspítalanum í fimm daga deild og lokað henni um helgar til þess að spara, en núna um síðustu helgi varð að opna hana. Það varð að opna hana vegna þess að það komu 62 bráðatilvik inn á sjúkrahúsið og það varð ekki við það ráðið. Það verður ekki sparað þegar þannig stendur á. Og það er einmitt það sem menn verða að gera sér grein fyrir, eðli heilbrigðisþjónustunnar er þannig að menn verða að taka við sjúkum og hlynna að þeim, nánast hvernig sem stendur á og hvað sem fjárlögin í sjálfu sér segja.
En það eru ekki bara lokanir sem hafa verið notaðar til þess að ná fram aðhaldi og sparnaði. Á ríkisspítulunum hefur verið dregið úr og jafnvel bönnuð yfirvinna, þar hefur verið dregið úr og jafnvel bannað að ráða fólk í afleysingar og svo langt höfum við gengið að við höfum dregið tækjakaupafé af þeim deildum sem fram yfir hafa farið á launum.
Flestir þekkja þær umræður sem þar hafa farið
fram um notkun á stimpilklukkum og reglur um vinnuseðlaskriftir hafa verið skýrðar mjög og hert
á notkun þeirra. Jafnframt hefur verið í gangi stöðug hagræðingarvinna innan ríkisspítalanna þar sem farið hefur verið yfir deildir og reynt að skoða með hverjum hætti væri unnt að koma fram frekari sparnaði.
Það hefur verið metnaður þeirra sem ríkisspítalana hafa rekið að reka þá innan fjárlaga. Það hefur nánast verið samstaða meðal stjórnenda og starfsmanna að halda þessum stofnunum innan fjárlaga. Það er þess vegna afar erfitt fyrir bæði stjórnendur og starfslið að horfast í augu við það, þrátt fyrir þær miklu og hörðu aðgerðir sem gripið hefur verið til til að beita aðhaldi og sparnaði, að lenda eigi að síður fram yfir á fjárlögum. Ég tel að það hafi mikil áhrif á stjórnun stofnananna í framtíðinni ef menn geta ekki beitt þeirri stjórnunaraðferð áfram að halda sig innan fjárlaga, og þess vegna ekki síst er þessi yfirlýsing formanns fjvn. mjög mikilvæg.
Ég kemst ekki hjá því í þessu sambandi að benda á að það eru leiðir til að spara á ríkisspítulunum umfram þær sem ég þegar hef nefnt og hefur verið beitt mjög. Það kann að vera að það verði til þeirra að grípa en kerfið er þannig upp byggt að horfi menn fram hjá hagsmunum heildarinnar og reyni að reka sína stofnun eina innan fjárlaga, þá getur mönnum tekist að spara glettilega mikið. Í því sambandi vil ég sérstaklega nefna og benda á lið eins og lyfjakostnað.
Lyf verða æ dýrari. Það er algengt að sjúkrahús utan af landi senda til Landspítalans sjúklinga sem þurfa á mjög dýrum lyfjum að halda. Það lendir auðvitað á kostnaði Landspítalans. Ef Landspítalinn aftur á móti breytti sínum starfsaðferðum og léti einfaldlega skrifa út recept fyrir þessa sjúklinga, þá yrðu þeir að leita til lyfjabúðanna, apótekanna, en kostnaður lenti ekki á ríkisspítulunum. Í sjálfu sér væri ekkert rangt við það. En það mundi stórauka kostnað ríkisins í heild vegna þess að álagning lyfjabúðanna kæmi þá fram í allri lyfjasölunni sem nú fer þó fram til sjúklinga beint í gegnum ríkisspítalakerfið.
Ég bendi á að það er aukinn þrýstingur meðal stjórnenda ríkisspítalanna að fara þessa leið. Stjórnendur ríkisspítalanna standa í stöðugum áflogum vegna þessara fjármuna, og það er út af fyrir sig ekki rangt að beina þessum lyfjakaupum eða þessari lyfjanotkun frá ríkisspítulunum, en með því móti mundi heildarkostnaðurinn aukast mjög og það eru slíkir hlutir sem menn verða að hafa í huga. Til að mynda þegar rætt er um nýja hluti eins og hjartaaðgerðir eða glasafrjóvgun, þá segja menn e.t.v.: Hér með er verið að auka kostnað ríkisspítalanna. En menn gera sér ekki grein fyrir því nægilega vel að Tryggingastofnun greiðir þennan kostnað ella og greiðir hann til erlendra sjúkrahúsa. Þá er hann oft meiri þannig að það er heldur sparnaðaraðgerð að flytja þessar aðgerðir heim til ríkisspítalanna. Þó að þeir þurfi meiri fjármuni til að geta framkvæmt það sem um er að ræða, þá verður sparnaður hjá Tryggingastofnun.
Þannig er þetta kerfi samtvinnað og það verður
ekki horft á fjármuni einnar stofnunar án þess að skoða heildina. Frekari niðurskurður hjá einni stofnun fram yfir það sem hún ræður við getur þýtt verulega aukinn kostnað fyrir heildina. Það skiptir mjög miklu máli. Það verður heldur ekki fram hjá því horft að biðlistar eru of langir á ýmsum deildum ríkisspítalanna.
Álag hefur aukist mjög á ríkisspítulunum á þessu ári, kannski vegna lokana sem orðið hafa á sjúkrahúsum hér í nágrannabyggðunum, þannig að þrátt fyrir áform um að halda starfsemi ríkisspítalanna í svipuðu horfi og var á árinu 1989, þá lítur út fyrir að legudagar á ríkisspítulunum verði 10 þúsund fleiri á þessu ári en í fyrra. Við því verður ekki spornað. Fjárveitingavaldið verður að gera sér grein fyrir því að sjúklingunum er ekki hægt að beina frá ríkisspítulunum, Landspítalanum í þessu tilviki. Menn hafa ekki lögreglu við dyrnar til þess. Menn verða að taka við sjúkum og slíkt álag er meira og meiri þjónusta heldur en gert var ráð fyrir við afgreiðslu fjárlaga. A.m.k. til skamms tíma og á tímabili sparaði ríkissjóður sér nokkuð með því að láta til að mynda ríkisspítalana greiða hærri dráttarvexti til Lyfjaverslunar ríkisins heldur en Lyfjaverslun ríkisins greiðir aftur til ríkissjóðs og þannig eru margir hlutir sem þarna koma inn.
Það væri vissulega tilefni til að gera frekar að umræðuefni ekki síst málefni Landspítalans sem að mínu viti er kjarninn í þessu kerfi okkar öllu saman. Landspítalinn býr við erfiðan og lélegan húsakost að mörgu leyti. Margar deildir hans búa við svo slæman húsakost að ekki væri óeðlilegt að Vinnueftirlitið gerði þar athugasemdir við. Tækjakostur spítalans er of hægt endurnýjaður. Það er ekki fjarri lagi að áætla að ríkisspítalar eigi tækjakost fyrir um 1000 millj. Fé til tækjakaupa hefur iðulega verið á bilinu 40 -- 50 millj. kr. sem þýðir að slíkur tækjakostur er endurnýjaður á 20 ára tímabili og það sjá allir í hendi sér að gengur alls ekki upp þegar horft er til nýtísku lækningatækja sem úreldast og ganga úr sér á miklu, miklu skemmri tíma.
Þessir hlutir koma auðvitað frekar til umræðu við fjárlagafrv. sjálft og afgreiðslu þess en ég vil enn ítreka það og ljúka máli mínu með því að segja að ég bind vonir við þessi orð formanns fjvn., að þau þýði það að menn setjist yfir þann vanda sem enn er óleystur þarna og ég hygg að menn muni sjá það ef þeir grannt skoða að það verður ekki með góðu móti dregið frekar úr þjónustu ríkisspítalanna.