Fjáraukalög 1990
Þriðjudaginn 04. desember 1990


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Klukkan að ganga 12 í dag var hringt í mig og ég var beðinn að athuga það hvort á þessum tillögum til fjáraukalaga væri einhver greiðsla til G - samtaka. Ég var þannig staddur að ég gat ekki fengið neinar upplýsingar um þessi mál annað en það að viðmælandi minn sagðist hafa búist við að það kæmi beiðni um þetta frá félmrn. Annað veit ég ekki. En hann sagði: Staðan er slík að þeirri skrifstofu sem þeir reka verður að loka ef ekki fæst einhver fjárveiting til hennar.
    Nú vita allir það hvernig ástandið er í þjóðfélaginu og hve margir eru í greiðsluerfiðleikum og hve margir verða gjaldþrota og það er enginn vafi á því að það eru ýmsir sem hafa leitað til þessara samtaka, hafa fengið lausn sinna mála, hjálp og leiðbeiningar og þess vegna tók ég þá ákvörðun þó að seint sé að flytja þessa tillögu. Ég vil beina því til hæstv. fjmrh. að hann líti með velvilja á þessi samtök og reyni að leysa að einhverju leyti þeirra mál. Ef ég hefði vitað af þessu fyrr, þá hefði ég farið aðra leið en það tókst mér ekki.
    Ég læt þetta nægja að tala fyrir þessari brtt. Ég held að öllum sé ljóst hver vandinn er og þörfin er brýn, en ég vil taka undir orð hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar í sambandi við sjúkrahúsin. Ég tel að það sé alveg rétt að ekki sé hægt að loka deildum sjúkrahúsa og þó að það hafi verið gert að loka bæklunardeildinni að einhverju leyti og biðlistarnir séu orðnir upp undir 20 mánuðir, þá er slíkt ekki hægt, bæði af mannúðarástæðum og það er dýrt fyrir þjóðfélagið að taka ekki á móti þessum sjúklingum því að margir þeirra eru á vinnualdri, en fara bæði líkamlega og andlega, brotna niður á þessari löngu bið. Ég hef verið þarna inni á þessari deild og ég þekki þessar aðstæður og það eru margir sem eru í vandræðum sem hafa leitað til mín að reyna að koma sér inn og þess vegna vil ég vekja hér athygli á þessu einu sinni enn að þetta er bara ekki hægt. En það er kannski hægt að spara einhvern veginn á öðrum liðum. Það þekki ég ekki og það væri gott ef það væri. En það er ekki hægt annað en taka við sjúklingum sem t.d. þurfa að fara í svona aðgerðir.