Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Frv. til fjáraukalaga fjallar bæði um tekjur og gjöld. Í ræðu minni hér ætla ég að snúa mér að tekjuþætti þessa máls.
Við innheimtum skatta sem beina skatta og óbeina og það heyrist gjarnan sagt að það þurfi að hækka skattana. Þess vegna hlýtur það að vera ærið umhugsunarefni hvort nægilega sé með því fylgst að þeir skattar sem greiddir eru skili sér í ríkissjóð. Þá er ég ekki að tala um hertar innheimtuaðgerðir eða einhverjar sérstakar nýjar aðferðir til að refsa mönnum fyrir það að þeir geti ekki greitt vegna þess að þeir geta ekki greitt, heldur hitt, hvernig er staðið að því að fylgjast með því hvort skattar séu greiddir.
Langstærsti skatturinn sem við höfum er virðisaukaskatturinn. Og nú vil ég, með leyfi forseta, lesa hér upp þær hækkanir sem verða í frv. til fjáraukalaga á beinum sköttum annars vegar og óbeinum sköttum hins vegar.
Beinir skattar hækka um 1 milljarð 419 millj. en óbeinir skattar hækka um 1 milljarð 481 millj. Ef það er aftur á móti skoðað hvaða hlutfall er í fjárlagafrv. sem samþykkt var, þá kemur í ljós að þar eru beinir skattar innan við 1 / 4 af óbeinum sköttum. Það segir okkur að hafi starfsmenn fjmrn. reiknað rétt, þá hefur orðið verulega meiri velta í þjóðfélaginu en þeir gerðu ráð fyrir, tekjur manna hafa orðið meiri og þess vegna hafa beinu skattarnir hækkað. En óbeinu skattarnir hafa ekki hækkað í neinu hlutfalli við þetta. Hafa þeir áætlað rangt eða ber að skilja það svo að þau undur hafi nú gerst að Íslendingar hafi haft mun rýmri tekjur en áætlað var, en þeir hafi bara lagt peningana til hliðar og þeir komi hvergi fram í veltu í þjóðfélaginu? Það er ekki nóg að hafa lagt þá í banka því að ef þeir hafa verið lagðir í banka, þá verður það líka að hafa verið víst að einhver annar hafi ekki tekið þá að láni og látið þá þannig velta. Þetta hlýtur að leiða hugann að því hvort virðisaukaskatturinn skilar sér eða skilar sér ekki.
Hæstv. fjmrh. hefur nú horfið úr salnum en það er nokkuð brýnt að hann hlusti á þessa umræðu og ég vildi fara fram á það við forseta að hann gerði boð eftir honum.
Eins og allir vita sem fylgst hafa með fréttum útvarps og sjónvarps, þá er búið að gera mikið átak í því að kynna svokallaðar sjóðvélar. Þær hafa verið kynntar á þann hátt að ef ákveðnum leikreglum er fullnægt í meðferð þeirra þá megi gera ráð fyrir því að tryggt sé að sá virðisaukaskattur, sem viðskiptavinur verslunarinnar greiðir, muni skila sér í ríkissjóð. Mjög mörg fyrirtæki, ég þori ekki að fullyrða hvort það er meiri hlutinn, hafa orðið við þeirri áskorun að koma upp sjóðvélum, enda er fullyrt í reglugerð að það sé skylda að gera það. Hins vegar fer það ekki á milli mála að fjölmargir flýta sér hægt í þessum efnum og koma ekki upp neinni sjóðvél. Þeir þverskallast við og eiga þess vegna að mínu viti mjög auðvelda leið til þess að sleppa við að skila þeim skatti til ríkisins sem kúnninn er búinn að greiða.
Við erum með þungaskatt á vörubifreiðum og þar er strangt eftirlit með aflestri á mælum. Ekki er nú stéttin talin heiðarlegri en svo að þetta sé algjört skilyrði fyrir því að hægt sé að ná þessum skatti. En þegar kemur að blessuðum kaupmönnunum, þá virðist aftur á móti hafa verið ákveðið að segja við þá: Jú, þið skuluð nota sjóðvélar, en það er ekkert refsiákvæði inni ef menn gera það ekki. Þetta vekur mann til umhugsunar um það hvort ekki sé þá rétt að hafa samræmi í löggjöfinni, annaðhvort að breyta þessum álestri á bílunum og segja að það sé frjálst hvort menn hafi þessa mæla þar, þeir sem ekki hafi mælana verði bara að skila því eftir minni hvað þeir eru búnir að keyra mikið, eða þá að menn snúa sér að því í alvöru að ganga svo frá þessu máli að sá skatturinn sem mestu skilar í ríkissjóð og þjóðin borgar mest til komi til eigandans en verði ekki eftir einhvers staðar á leiðinni.
Ég tel að það sé siðlaust athæfi að láta mjög stóran hluta verslunareigenda setja upp þessa kassa en gera svo ekkert í því að fylgja því eftir með hörku að allir sitji við sama borð og þeir sem ekki hafa sett upp kassana verði að gera það líka. Það er hreinlega ekki verjandi að standa frammi fyrir þeim sem
bera virðingu fyrir þessari reglugerð, hafa hlýtt henni, og segja við þá: Jú, við vitum að hann Jón í næstu verslun ætlar ekkert að gera þetta af því það er ekkert refsiákvæði.
Ég tel að í þessu máli reyni nú á það hvort fjmrh. geri sér grein fyrir því að þarna er um hina stóru peninga að ræða sem verður að ná inn. Allt tal um að ætla að leggja nýja skatta á þjóðina er þarflaust tal og á ekki við meðan þessi stóri skattur er jafneftirlitslaus í athugun og hann er í dag. Ég beini því mjög ákveðið til hæstv. fjmrh. að hann noti sinn rétt hér í þinginu til þess að gera grein fyrir stöðu þessa máls. Hvers er að vænta? Eða situr allt við það sama að eftirlitsmenn hans rölti hér um götur og segi: Jæja, þið eruð ekki enn þá búnir að setja upp kassa, það er leiðinlegt, við komum aftur eftir þrjú ár og vonum að þá verði kassinn kominn. Þakka ykkur fyrir.