Rannveig Guðmundsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég vil gjarnan leggja nokkur orð inn í þessa þörfu umræðu. Ég þakka flm. góða framsögu fyrir þessum tveimur síðustu málum sem hún hefur talað fyrir og tek undir það að ég hefði óskað að hér hefðu fleiri þingmenn verið staddir í dag og hlustað á umræðuna. Ég fagna því sérstaklega að hæstv. heilbrrh. er genginn í salinn en upplýsi hann jafnframt um að hann hefur misst af mjög svo góðri framsögu hér.
Hér er hreyft mjög þýðingarmiklu máli sem er lenging fæðingarorlofs. Ég lít svo á að það mikla hagsmunamál fyrir barnafjölskyldur, ungt fólk, verðandi foreldra og ekki síst það hagsmunamál ungra barna sem fæðingarorlof og lenging þess er geti varla verið mikið ágreiningsmál hér á hv. Alþingi. Alla vega ekki meðal þess hóps sem leggur áherslu á félagslega uppbyggingu í landinu. Spurningin er því ekki í mínum huga hvort fæðingarorlof verði lengt heldur eingöngu hvenær. E.t.v. er einhver skoðanamunur hjá þingmönnum um útfærslu slíkra mála en varla um gildi málsins sem slíks.
Við höfum lagt og leggjum mikla áherslu á dagvistarmál og uppbyggingu leikskólans í sveitarfélögunum og er lögð áhersla á að hægt sé að bjóða vistun fyrir börn frá sex mánaða aldri. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga að fremur á að leggja áherslu á að lengja fæðingarorlofið í áföngum þannig að við náum því innan allt of langs tíma að standa jafnfætis nágrannalöndunum í þessum efnum. Þjóðhagslega er þá einnig verið að verja enn betur því fjármagni sem koma á barnafólki til góða svo sem því fjármagni sem fer í eða áformað er að leggja í byggingu og rekstur dagvista fyrir þennan allra yngsta aldurshóp.
Því er ekki að leyna að okkur konunum a.m.k. finnst of hægt miða þótt stærra stökk hafi verið tekið í fæðingarorlofsmálum nú síðari ár en áður þar sem á tiltölulega skömmum tíma hefur orlof verið lengt í áföngum úr þrem mánuðum í sex mánuði og á hv. 3. þm. Reykv., fyrrv. heilbrrh., þakkir skildar fyrir að hrinda þeim áfanga fram. Það eru ekki ýkja mörg ár síðan, sennilega u.þ.b. 14 -- 15 ár, að fæðingarorlof á launum var eingöngu fáeinir dagar nema hjá opinberum starfsmönnum og einstaka öðrum starfsstéttum. Það var því mikið réttindamál þegar réttur til töku fæðingarorlofs og greiðslu í fæðingarorlofi var lögfestur fyrir alla og því misrétti sem viðgengist hafði milli stétta hvað þetta varðar var eytt.
Að þeim orðum sögðum og í umræðu um fæðingarorlofsgreiðslur komum við auðvitað aftur að þeirri umræðu sem fram fór hér í þinginu á sl. vetri um réttindamál foreldra í fæðingarorlofi eða réttara sagt mismunandi réttindi og mismunandi greiðslur meðan á fæðingarorlofi stendur. Þá var von á að nefnd skilaði tillögum að frv. sem tæki mið af því að konur, hvar sem þær væru í starfi, nytu jafnréttis varðandi fæðingarorlof. Ég harma það að það frv. sem þá var í vinnslu hefur ekki enn verið lagt fram á hv. Alþingi og vona að hv. heilbrrh., sem nú er viðstaddur
þessa umræðu, upplýsi okkur um það hvort fyrirhugað sé að leggja frv. þessa efnis fyrir þetta þing.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir þau sjónarmið og rök sem komu fram í framsögu flm. um gildi samvista foreldris og barns á frumbernskuskeiði og nauðsyn þess að nálgast nágrannalöndin í þessu efni. Ég árétta líka það sem framsögumaður nefndi að í stefnuskrá míns flokks er áframhaldandi lenging fæðingarorlofs einmitt á dagskrá.