Fæðingarorlof
Miðvikudaginn 05. desember 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Vegna orða hv. 7. þm. Norðurl. e. vill forseti geta þess, og væntir þess að það verði fært til bókar jafnframt, að í húsinu eru 29 hv. þingdeildarmenn en þeir hafa ekki séð sér fært að sitja í fundarsal. En í 34. gr. fundarskapa segir orðrétt: ,,Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni.`` Þetta er ítrekað að gefnu tilefni.