Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde) :
Virðulegi forseti. ,,Hyggst utanrrh. fara þess á leit við þýsk stjórnvöld að þau veiti upplýsingar úr eða heimili aðgang að skjalasafni STASI, öryggislögreglu Þýska alþýðulýðveldisins, sem vitað er að hafði víðtæk alþjóðleg umsvif, til þess að leiða í ljós hvort hún hafi verið í tengslum við íslenska aðila?``
Þessa fsp. hef ég leyft mér að bera fram á þskj. 131, virðulegi forseti. Það er öllum ljóst að það hafa verið verulegar breytingar í okkar heimshluta undanfarin missiri og gamla lögregluríkið, eins flokks ríkið, Þýska alþýðulýðveldið er nú sem betur fer ekki lengur til. Það þýðir að skjalasöfn ýmissa óheillastofnana í því ríki eru nú komin í hendur lýðræðislega sinnaðra manna og vel hugsanlegt að íslenskum yfirvöldum, bandalagsríki Þýskalands, gæti opnast aðgangur að slíkum skjalasöfnum.
Ég tel eðlilegt að ef það er þannig að Þýska alþýðulýðveldið, öryggislögregla þess eða aðrar stofnanir á þess vegum hafi hlutast til um íslensk málefni með einum eða öðrum hætti, þá komist vitneskja um það í hendur íslenskra yfirvalda og Alþingis.