Pálmi Jónsson :
    Virðulegi forseti. Tilboð hæstv. ríkisstjórnar í svokölluðum GATT - viðræðum felur einkanlega í sér tvö meginatriði:
    Í fyrsta lagi: Boðið er upp á það að rýmka um innflutning á unnum kjötvörum og unnum mjólkurvörum. Með þessu er rofið skarð af hálfu hæstv. ríkisstjórnar í þann varnargarð sem íslensk stjórnvöld hafa til þessa viljað halda varðandi innflutning á búvörum. Hæstv. ríkisstjórn ber ábyrgð á því að nú er þessi varnargarður brostinn.
    Í öðru lagi: Boðið er upp á niðurskurð á framlögum opinberra aðila sem eru markaðs - og framleiðslutengdir um 25 -- 65% og það er túlkað þannig að síðar eigi að breyta þessum framlögum yfir í nýtt form sem ekki séu markaðs - eða framleiðslutengdir. Þegar búið er að semja af sér réttinn til þess að hafa framlög af opinberri hálfu, þá túlka menn það svo að hægt sé síðar að taka það upp í nýju formi. Þetta er auðvitað í hæsta máta vafasamur málflutningur.
    Það liggur fyrir í þriðja lagi að tilboðið er rýmilegra af hálfu Íslands og ýmissa annarra EFTA - landa heldur en gerist hjá EB - þjóðum og EFTA - þjóðirnar hafa fengið lof fyrir þetta hjá Bandaríkjamönnum.