Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér sem starfandi landbrh. að taka þátt í þessum umræðum og segja þetta.
Ég tel að það sé í raun og veru alveg óhjákvæmilegt með tilliti til þess hversu stórt mál er hér á ferðinni að það fái ítarlega umræðu hér á hv. Alþingi. Ég tel að það þurfi að vera viðstaddir bæði þeir sem horfa á hlutina út frá hagsmunum landbúnaðarins og aðrir sem vilja fjalla um mál af þessu tagi. Ég tel að það tilboð, sem hæstv. landbrh. hefur látið undirbúa og farið með að því er varðar þessi mál, sé í raun og veru í mjög góðu jafnvægi miðað við pólitískar aðstæður og heildarhagsmuni þjóðarinnar. Það er örugglega þannig að að málum má eitthvað finna eins og gengur en aðalatriðið er það að ég tel að hæstv. landbrh. hafi í þessu efni reynt að leita jafnvægis, reynt að finna samnefnara sem ég hygg að menn í öllum flokkum hér á hv. Alþingi geti í raun og veru sætt sig allvel við. Innlegg mitt í þessar umræður er að hvetja til þess að þannig verði á málum haldið að um þetta verði fjallað í heild hér á hv. Alþingi.
Ég tel að ýmislegt það sem komið hefur fram
frá hæstv. utanrrh. í þessu efni hafi orðið til þess að ýta undir misskilning. Ég tel hins vegar alveg ljóst að sá misskilningur hefur verið leiðréttur, bæði af hæstv. utanrrh., forsrh. og landbrh. Aðalatriðið er þó það sem hv. 1. þm. Norðurl. v. drap hér á í lok athugasemdar sinnar að sennilega eru þessar umræður, a.m.k. eins og sakir standa, gersamlega í strandi.