Fyrirspyrjandi (Egill Jónsson) :
Virðulegi forseti. Út af orðum hæstv. landbrh. sem féllu hér í lokin, þá er það út af fyrir sig ekki aðalatriðið hvort þessar umræður eru í strandi því að stefna ríkisstjórnarinnar liggur fyrir. Og hún er um að leyfður verði innflutningur á landbúnaðarvörum.
Ég vil líka vekja sérstaka athygli á því, þrátt fyrir orð hv. 1. þm. Norðurl. v., að orð hæstv. utanrrh. eru alveg með sama hætti og fram kemur í máli hæstv. forsrh. Þannig að úr þessari ákvörðun er ekki hægt að draga neitt þótt einstaka stjórnarþingmenn séu að reyna að þvo hendur sínar með sama hætti og formaður þingflokks Framsfl. gerði hér áðan. ( Menntmrh.: Hefur Sjálfstfl. stefnu í landbúnaðarmálum?) Hún liggur reyndar fyrir en við verðum að taka tíma til þess við betra tækifæri að ræða hana. Ekki þarf ég að dylja hæstv. landbrh. þess að ég er andvígur þessari ákvörðun og finnst hún óskiljanleg.
Nú er það yfir lýst af hæstv. utanrrh., sem fer með forræði þessara mála, sbr. svar forsrh. um þau efni hér á Alþingi, sem ég geri kannski ráð fyrir að hæstv. menntmrh. og settur landbrh. hafi ekki fylgst með, þar sem hann tók af öll tvímæli um það að þetta mál væri í höndum utanrrh. og þar sem það er viðurkennt verða menn náttúrlega, hvort sem þeim líkar betur eða verr, að leggja orð utanrrh. til grundvallar þegar metin er afstaða ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Og við heyrðum það hér gerla áðan, alþingismenn, að hverju er stefnt í þeim efnum, lækka vöruverð, auka samkeppni og þetta á að fást með því að opna erlendum landbúnaðarvörum leið inn í þetta land sem er mikið grundvallaratriði í þessum málum og hefur nú fengist fram með skýrari hætti en áður hefur verið. Í svari hæstv. utanrrh. segir að um markaðshlutdeildina verði ekki hægt að fullyrða fyrr en að loknum samningum. Hér fæst mikilvæg niðurstaða í þessari umræðu. Fyrst er að opna dyrnar eins og gert er í samningstilboði ríkisstjórnarinnar og síðan ber að sækja þangað inn það sem samið yrði um þar á eftir og yrði þá væntanlega í höndum núv. hæstv. utanrrh.