Pálmi Jónsson :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 17. þm. Reykv. fyrir að bera fram þessa fyrirspurn sem ekki er gert að ófyrirsynju. Frv. þetta var, eins og hv. Alþingi veit, flutt af fjvn. í heild á síðasta þingi og var þá vísað frá með rökstuddri dagskrá í ljósi þess að hæstv. forsrh. hafði látið uppi að hann vildi koma fram lögfræðilegri skoðun á málinu nú í sumar. Lítið hefur frést af þeirri athugun. Ég hef þráspurt um þetta mál í fjvn. og óskað eftir að fá skýr svör formanns við því hvenær sé tímabært að flytja frv. en ég hef fengið loðin svör til þessa. Ræða hæstv. fjmrh. um að það hafi verið til sérstakrar meðferðar hjá ríkisreikningsnefnd er þess efnis að hann taldi að hann gæti stutt að því að frv. væri flutt. Það er út af fyrir sig gott um það að segja en það var ekkert ákveðið í hinni rökstuddu dagskrá að láta ríkisreikningsnefnd taka sér tíma nú þegar liðið er á þingtímann á nýju þingi til að taka þetta mál til meðferðar.
Þá er sú athugun býsna flókin eftir þá miklu lögfræðilegu athugun sem fjvn. hafði látið vinna að þessu máli og m.a. var unnin af færustu sérfræðingum Lagastofnunar Háskólans. Ég hlýt að láta það í ljós að sú vinna sem hæstv. ríkisstjórn hugsaði sér að láta fara fram í þessu efni hefur verið í undandrætti og ber öll merki þess að það sé ætlunin að reyna til þrautar að svæfa þetta mál.