Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fimmtudaginn 06. desember 1990


     Kristinn Pétursson :
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að koma með þessa fyrirspurn. Ég tel að þetta frv., sem flutt var hér í fyrra af hv. fjvn., sé eitt af almikilvægustu lagafrv. sem hafa verið flutt hér í hv. Alþingi í mörg ár, sérstaklega hvað varðar fjármál ríkisins. Ég tel að þetta frv. sé að stofni til í samræmi við fjármálaákvæði stjórnarskrárinnar og bremsun á þá stjórnlausu peningaprentun sem hefur farið fram í landinu til að borga hallann á ríkissjóði og er aðalástæðan fyrir efnahagslegri ógæfu þessarar þjóðar. Hæstv. fjmrh. segir að æðstu embættismenn og ríkisreikningsnefnd sé að skoða þetta mikilvæga mál. En ég undirstrika það að hér er verið að ganga á snið við grundvallarreglu vegna þess að það er löggjafarvaldið sem á að setja framkvæmdarvaldinu leikreglur. Hæstv. fjmrh. er að láta embættismenn smíða leikreglu sem embættismennirnir eiga síðan að fara eftir. Og það er alveg rétt að samskipti löggjafarvalds og framkvæmdarvalds eru ekki
nógu góð, en ég tel að hæstv. fjmrh. beri skylda til þess að koma með þetta frv. hér inn í þingið undir eins og láta samþykkja það þá með þeim breytingum sem hann hefur verið að athuga vegna þess að það er útilokað að ná jafnvægi í efnahagsmálum nema frv. þetta komist í gegn.