Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fimmtudaginn 06. desember 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti vill upplýsa hv. 5. þm. Austurl. um að málið fékk á síðasta löggjafarþingi afgreiðslu hins háa Alþingis og var sent til ríkisstjórnarinnar. Þar er það nú og hefur ekki verið lagt fram aftur að nýju á þessu löggjafarþingi þannig að hér sér forseti ekki annað en öll meðferð málsins sé með felldu.