Fjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fimmtudaginn 06. desember 1990


     Kristinn Pétursson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég spyr að því hér: Er hæstv. forseti Sþ. fulltrúi framkvæmdarvaldsins hér í löggjafarsamkomu þjóðarinnar? Ég spurði hæstv. forseta: Vill hæstv. forseti beina kröftum sínum til þess að þetta frv. geti komið hér til meðferðar hv. Alþingis Íslendinga fyrir jól? Vill hæstv. forseti sjá til þess? Þetta er mikilvægasta mál sem hefur verið lagt fram í mörg ár í sambandi við fjármál ríkisins og mér finnst hæstv. forseti vera skyldugur til að sjá til þess að mál geti komið hér til umræðu.
    Ég sagði hér áðan: Níu manna þingnefnd flutti þetta mál einum rómi. Hæstv. fjmrh. getur ekki sest á þetta mál og hefur ekki til þess umboð. ( Fjmrh.: Ég er ekkert að setjast á málið, það er mesti misskilningur.) Hæstv. fjmrh. situr á málinu í dag og segir að það sé mesti misskilningur. ( Fjmrh.: Ég sit ekkert á málinu.) Ég óska þess að hæstv. forseti svari því hvort hann vilji beita kröftum sínum til þess að þetta mál geti komið hér til umræðu á næstu vikum.