Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Forseti vill af þessu gefna tilefni upplýsa hv. þm. um að skv. 11. gr. þingskapalaga hafa forsetar ákveðnar skyldur hér á hinu háa Alþingi. Eins og þar segir, þá stjórna þeir umræðum og sjá um að allt fari fram með góðri reglu. Þeir hafa sameiginlega umsjón með starfi þingnefnda. Þeir fara sameiginlega með framkvæmdastjórn Alþingis. Nokkrar aðrar skyldur hafa forsetar þingsins. En forsetar stýra auðvitað ekki hvaða mál hv. þm. óska eftir að leggja fram hér á hinu háa Alþingi. Það hefur þegar komið fram varðandi þetta einstaka mál að hæstv. ráðherra hefur lýst því yfir að það mál, sem var vísað til ríkisstjórnarinnar á síðasta löggjafarþingi, sé í vinnslu hjá hæstv. ráðherra og muni koma fram hér á hinu háa Alþingi á þessu löggjafarþingi. Forseti sér þess vegna ekki ástæðu til að hafa frekari afskipti af því máli.