Sighvatur Björgvinsson :
Virðulegi forseti. Mér er bæði ljúft og skylt að upplýsa það sem ég veit um þetta mál. Eins og menn muna eflaust eftir, þá er hér um að ræða frv. um fjárgreiðslur úr ríkissjóði sem lagt var fram á Alþingi í fyrra og samið af fjárveitinganefndarmönnum og flutt af öllum nefndarmönnum sem sæti áttu í Nd.
Frv. þetta fékk enga efnislega meðhöndlun í þeirri nefnd sem því var vísað til og ég ætla ekki að rifja upp þær umræður sem fóru fram um það mál hér í fyrra þegar þráfaldlega var óskað eftir því að frv. fengi efnislega meðferð í nefndinni sem það ekki fékk. Við féllumst hins vegar á það flm. að standa að því og mæla með því að frv. yrði vísað til ríkisstjórnarinnar gegn yfirlýsingu frá hæstv. forsrh. um að hann mundi beita sér fyrir því að sumarið sem í hönd fór yrði notað til þess að kanna málið og ræða það við flm. Af ýmsum orsökum, sem ég ætla ekki að rekja hér, þá fórst það fyrir þannig að það var ekki gert eins og heitið hafði verið.
Hæstv. fjmrh. sem ekki var aðili að þessari yfirlýsingu, enda var það ekki hans viðfangsefni út af fyrir sig að ræða þetta við flm. heldur hæstv. forsrh., en hæstv. fjmrh. beitti sér fyrir því að málið var tekið til skoðunar í ríkisreikningsnefnd og sérstök undirnefnd þeirrar nefndar vann álitsgerð á grundvelli þessa frv., m.a. um það hvað af efnisatriðum frv. væri hægt að taka inn í reglur án lagasetningar og hvað í efnisatriðum frv. og öðrum atriðum sem komu til skoðunar þyrfti að flytja sérstakt lagafrv. um.
Þessi undirnefnd ríkisreikningsnefndar skilaði síðan af sér til nefndarinnar og til ráðherrans. Það var hins vegar talið bæði í ríkisreikningsnefnd og af hæstv. ráðherra óeðlilegt að fara að flytja frv. sem þannig væri unnið á grundvelli frv. sem lagt var fram hér á Alþingi í fyrra eins og ég rakti áðan, það væri óeðlilegt að fara að flytja slíkt mál án samráðs við flm. og ég skal aðeins taka það fram að þess hefur verið óskað að slíkt samráð yrði haft milli flm. frv. um fjárgreiðslur úr ríkissjóði og þeirra aðila sem hafa á vegum ríkisreikningsnefndar og hæstv. fjmrh. verið að skoða málið. Og það hefur tvisvar sinnum verið gerð tilraun til þess að hafa slíkan fund með fulltrúum úr fjvn. en því miður --- og ég ætla ekkert að ræða hverjum þar er um að kenna, það er ekkert síður þeim að kenna sem hér stendur heldur en öðrum --- þá hefur ekki orðið af þeim fundi.
Við munum beita okkur fyrir því báðir tveir að slíkur samráðsfundur verði haldinn sem allra fyrst og ég tek það fram, virðulegi forseti, að ég hef sérstaklega óskað eftir því við oddvita minni hl. í nefndinni að hann tæki þátt strax frá upphafi í þeim viðræðum og fundahöldum sem mér finnst eðlilegt vegna þess að þarna skiptist nefndin ekki í meiri hl. og minni hl. heldur stóð nefndin öll að flutningi málsins. Og ég er alveg tilbúinn að taka það á mig að þessi fyrsti fundur skuli ekki enn hafa verið haldinn og mun beita mér fyrir því í samvinnu við ríkisreikningsnefnd og ráðherra að hann verði haldinn hið allra fyrsta.