Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svör hans. Mér var ljóst að nefnd sú sem skilaði af sér vorið 1989 gerði ekki fullnaðartillögur en hún gerði lista yfir hugmyndir sínar og tillögur um það sem þyrfti að bæta. Ég sé að það er hreyfing á þessum málum og ég hlýt að fagna því vegna þess að hér er um mikið alvörumál að ræða. Það kom reyndar fram á umferðarþingi sem haldið var nú á dögunum að það er mikill áhugi fyrir að bæta ekki síst ökukennsluna og kom m.a. fram sú hugmynd að það þyrfti með einhverjum hætti að reyna að breyta áherslum. Það kom jafnvel fram hugmynd um að hækka þyrfti aldur pilta sem fá ökuréttindi vegna þeirra tíðu slysa sem þeir lenda í. Það er auðvitað margt í þjóðfélaginu sem verður til þess að gefa þeim þá mynd af ökutækjum að hér sé um leikföng að ræða en ekki nauðsynleg farartæki til þess að komast á milli staða. Þetta er í raun hugmynd sem oft hefur verið rædd innan Kvennalistans því að auðvitað hrýs okkur hugur við að sjá í hvaða hættu þessir ungu piltar eru um leið og þeir fá ökuréttindin.
Ég fagna því sömuleiðis að uppi skuli vera hugmyndir um að bæta nám ökukennara. Ef bornar eru saman þær kröfur sem gerðar eru til íslenskra ökukennara og starfssystkina þeirra á Norðurlöndum kemur í ljós að þar sem fæstra námsstunda er krafist undir ökukennarapróf er þó um fjórfalt fleiri stundir að ræða en hjá íslenskum ökukennurum. Það sama gildir líka um þá sem eru að ná sér í ökuréttindi. Í nágrannalöndum okkar er námstími til ökuprófs tvisvar til þrisvar sinum lengri en hér á landi. Þá vaknar óneitanlega sú spurning hvort námið hér sé of stutt og þar sé e.t.v. að leita skýringa á tíðum umferðarslysum í aldurshópnum 17 -- 20 ára.
Ég vil endurtaka það sem ég sagði, ég fagna því að það er hreyfing á þessum málum og vona að sem allra fyrst verði þessi kennsla bætt. Ég legg áherslu á að nauðsynlegt er að samfélagið taki að einhverju leyti þátt í þeim kostnaði sem um er að ræða því þetta er dýrt og er í raun og veru orðinn hluti af almennri menntun fólks að hafa ökuréttindi.