Ökukennsla
Fimmtudaginn 06. desember 1990


     Guðmundur Ágústsson :
    Virðulegur forseti. Ég fagna þessari fsp. og fagna því svari sem fram kom hjá
hæstv. dómsmrh. Ég get tekið það fram að ég sit í þessari nefnd um endurskoðun á reglugerðinni um ökukennslu. Að mínu viti hefði þessi reglugerð átt að hafa verið sett fyrir löngu síðan, á sama tíma og lög um Bifreiðaskoðun ríkisins voru sett. Eins og flestir vita þá var ökukennsla og bifreiðaeftirlit undir sama hatti og það voru mikil mistök að ganga aðeins frá bifreiðaskoðun á sínum tíma en taka ekki á þessum þætti í leiðinni. Það er rétt sem fram kemur hjá hv. 6. þm. Vesturl. að þessi mál hafa verið í miklum lamasessi síðustu ár og svo sannarlega vonast ég eftir að þessi reglugerð sem um er rætt verði sett núna um áramótin og að því er stefnt í þeirri nefnd sem ég á sæti í.