Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Á þskj. 233 er prentað álit meiri hl. fjh. - og viðskn. um frv. til laga um launamál, þ.e. bráðabirgðalögin frá 3. ágúst á sl. sumri.
Nefndin hefur athugað þetta frv. sem er til staðfestingar á bráðabirgðalögunum. Á fund nefndarinnar komu Páll Halldórsson, Birgir Björn Sigurjónsson og Eggert Lárusson frá BHMR, Ögmundur Jónasson og Sjöfn Ingólfsdóttir frá BSRB, Ásmundur Stefánsson frá ASÍ, Þórarinn V. Þórarinsson frá VSÍ og Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar.
Nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það liggur fyrir á þskj. 40. Þann meiri hl. skipa Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnar Arnalds, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Páll Pétursson.
Um setningu bráðabirgðalaganna má segja almennt að ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar mátu ástand efnahags- og launamála svo að brýna nauðsyn bæri til að setja bráðabirgðalög í ágúst síðastliðnum. Annars hefðu skollið á ófyrirséðar launahækkanir sem leitt hefðu til víxlhækkana verðlags og launa. Í kjölfarið hefði fylgt óðaverðbólga. Sú þjóðarsátt, sem gerð var í febrúar, var með öðrum orðum í hættu og í stað stöðugleika og öryggis hefði riðið yfir þjóðina glundroði og efnahagsóvissa. Gátu ábyrg stjórnvöld alls ekki horft á slíkt aðgerðarlaus. Með endanlegu orðalagi 1. gr. kjarasamnings ríkisins og BHMR taldi fjmrh. tryggt að ekki kæmi til launahækkana ef þær væru taldar raska hinu almenna launakerfi í landinu. Þegar fyrir lá að svo reyndist ekki hlutu forsendur samningsins hvað þetta snertir að teljast brostnar. Við þessar aðstæður og í ljósi þeirra afleiðinga sem fram kæmu, yrði ekkert að gert, átti ríkisvaldið ekki annarra kosta völ en að beita bráðabirgðalagasetningu til þess að forðast holskeflu í efnahagsmálum og óðaverðbólgu eins og áður segir.
Ríkisstjórnir hafa áður breytt kjarasamningum með bráðabirgðalögum sem Alþingi hefur samþykkt. Alþingi hefur einnig breytt kjarasamningum með lögum. Löggjafinn hefur þannig breytt samningum milli vinnuveitenda og launafólks óháð því hver vinnuveitandinn er. Flestir stjórnmálaflokkar hafa staðið að slíku. Það er því langt frá því að um einsdæmi sé að ræða í þessu tilviki. Jafnframt er rétt að vekja sérstaka athygli á þeim útbreidda misskilningi að bráðabirgðalögin hafi numið úr gildi niðurstöður Félagsdóms. Þeim niðurstöðum er í engu raskað. Eftir að niðurstöður Félagsdóms lágu fyrir var hins vegar hluta samnings BHMR og fjármálaráðherra breytt með lögum þannig að geiðslur féllu niður frá 1. sept. 1990. Það þýðir hins vegar ekki að niðurstöðum Félagsdóms sé breytt heldur þeirri réttarheimild sem greiðsluskylda studdist við.
Að gefnu tilefni er rétt að nefna hvað gerist ef staðfestingarfrv. verður ekki samþykkt á Alþingi. Í fyrsta lagi féllu bráðabirgðalögin niður en afleiðingin af því er yfirleitt hin sama og af ógildingu annarra
laga. Bráðabirgðalögin yrðu úr sögunni að því er til framtíðarinnar tekur. Þau stofna því hvorki rétt né skyldu frá þeim tíma er þau ganga úr gildi. Hins vegar stendur óhaggað það réttarástand er þau hafa áður skapað. Gildir það eins þótt Alþingi hafi fellt lögin. Gildi bráðabirgðalaga er því hið sama og annarra laga á meðan það helst enda þótt því ljúki með ákveðnum hætti.
Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni forsætisráðherra reiknað út þrjú dæmi um hugsanlega verðþróun á næstu mánuðum ef bráðabirgðalögin um launamál frá 3. ágúst sl. falla úr gildi. Í niðurstöðu Þjóðhagsstofnunar segir, með leyfi forseta:
,,Niðurstöður þessara útreikninga sýna að verði víxlhækkanir verðlags, launa og gengis með þeim hætti sem að framan greinir stefnir í stöðugt vaxandi verðbólgu. Tilgangslítið er að reikna slík dæmi langt fram í tímann. Ljóst er að á nokkrum mánuðum yrði þriggja mánaða hraði verðbólgunnar miðað við heilt ár kominn í tugi prósenta. Í þeim dæmum, sem reiknuð voru, var verðbólga á þennan mælikvarða í fyrsta dæminu komin í 22% í júlí 1991, 27% í öðru dæminu og í tæplega 40% í því þriðja. Í öllum þessum dæmum mun kaupmáttur launa aukast umtalsvert fyrst í stað og líklegt að almenn eftirspurn fari vaxandi. Það má því reikna með að ef þessi þróun gengur eftir að þau markmið um viðskiptahalla og litla aukningu þjóðarútgjalda, sem sett voru fram í þjóðhagsáætlun 1991, standist ekki. Rétt er hins vegar að leggja áherslu á að þetta eru ekki ótvíræðar niðurstöður því óvissuatriðin eru mörg í þessum dæmum.``
Svo sem fram kemur í könnun Þjóðhagsstofnunar er ljóst að þjóðarsáttinni svokölluðu lýkur, efnahagsmarkmið fara úr böndunum, fram koma víxlhækkanir verðlags og launa og vaxandi verðbólga mun ekki láta á sér standa. Afleiðingarnar eru því skýrar.
Fyrir bæjarþingi Reykjavíkur er nú svo sem kunnugt er rekið mál vegna setningar bráðabirgðalaganna sem Bjarnheiður Guðmundsdóttir hefur höfðað gegn fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs og menntmrh. fyrir hönd Rannsóknadeildar fisksjúkdóma við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði. Í stefnu og greinargerð stefnanda er því haldið fram að bráðabirgðalögin brjóti í bága við stjórnarskrá. Ríkislögmaður, sem fer með málið fyrir hönd ríkissjóðs, lagði fram greinargerð stefndu hinn 22. nóv. sl. Fylgir greinargerðin með nefndaráliti þessu sem fylgiskjal en í henni kemur fram ítarleg lýsing á málavöxtum, málsástæðum stefndu og lagarökum.
Að gefnu tilefni þykir rétt að vekja athygli Nd. Alþingis á ákvæðum 4. gr., sbr. 3. gr., bráðabirgðalaganna. Það gefna tilefni er ,,Kjarafréttir BHMR``, 4. tbl. 1990. Þar er haldið fram túlkun á efni 4. gr. sem rétt er að gera athugasemdir við. Meðal annars er fjallað um 2. mgr. 4. gr., sem kveður á um að kjarasamningar aðildarfélaga BHMR og viðsemjenda þeirra gildi til 31. ágúst 1991 og falli þá úr gildi án uppsagnar. Um þetta segir í málgagni BHMR að ,,BHMR-félög eru þannig föst undir ákvæðum bráðabirgðalaganna, jafnvel þó önnur samtök (BSRB) segi upp samningum sínum þegar fyrir næstu áramót í kjölfar endurskoðunar``.
Hér er um misskilning að ræða. 4. gr. laganna ber ekki að skilja svo að efni 3. gr. geti ekki náð til BHMR. Þvert á móti er það ákveðinn skilningur ríkisstjórnar og meiri hl. nefndarinnar að skv. 2. mgr. 3. gr. laganna sé BHMR-félögum heimilt að semja um stofnun og verksvið launanefndar við sína viðsemjendur rétt eins og öðrum aðilum að kjarasamningi sem ekki kveður á um launanefnd. Verði slíkur samningur gerður fari þá eftir ákvæðum 1. mgr. 3. gr. frá þeim tíma. Gildistími kjarasamninga aðildarfélaga BHMR geti þá eins og hjá öðrum stéttarfélögum styst frá því sem segir í 2. mgr. 4. gr. vegna uppsagnar samnings eftir þeim sömu reglum og endranær gilda hjá stéttarfélögum sem samið hafa um launanefndir.
Sú túlkun á efni 3. og 4. gr., sem að ofan greinir, hefur verið túlkun ríkisstjórnar frá upphafi. Sá andstæði skilningur sem fram kemur í Kjarafréttum BHMR gefur að mati ríkisstjórnarinnar og meiri hl. nefndarinnar ekki tilefni til að leggja fram brtt. við frv., enda telur ríkisstjórnin og meiri hl. nefndarinnar orðalag greinanna svo skýrt að misskilningur af því tagi sem fram hefur komið hjá BHMR þurfi ekki að vera uppi. Þetta er hins vegar tekið fram hér til að taka af öll tvímæli um skilning á þessu ákvæði.
Með nál. þessu fylgja sem fylgiskjal I álitsgerð frá Þjóðhagsstofnun til forsætisráðherra, dags. 3. des. 1990, um bráðabirgðalögin frá 3. ágúst og verðþróun á næstu mánuðum, og sem fylgiskjal II greinargerð ríkislögmanns í máli Bjarnheiðar Guðmundsdóttur
sem hann hefur lagt fyrir bæjarþing Reykjavíkur vegna máls á hendur fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs og menntmrh. fyrir hönd Rannsóknadeildar fisksjúkdóma við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði.
Talsverð umræða hefur orðið um það hér á Alþingi og reyndar víðar í þjóðfélaginu að hugsanlega stönguðust þessi ákvæði bráðabirgðalaganna á við stjórnarskrána. Sú er ekki skoðun okkar sem berum ábyrgð á þessari lagasetningu. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að vitna til þeirrar greinargerðar sem ríkislögmaður lagði fram í þessu viðkomandi máli hvað varðar stjórnarskrána. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Í stefnu og greinargerð stefnanda kemur fram að hann styðji kröfur sínar einkum við ákvæði 2. gr., 28. gr., 67. gr. og 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og skýringar fræðimanna á þeim ákvæðum og sambærilegum grundvallarreglum í landsrétti erlendra ríkja og alþjóðlegum sáttmálum og samningum. Telur stefnandi ákvæði bráðabirgðalaga nr. 89/1990 andstæð nefndum greinum stjórnarskrárinnar. Vísast einkum til þess sem segir á miðri bls. 3 í stefnu og á miðri bls. 5 fram á miðja bls. 6 í greinargerð um málsástæður og lagarök stefnanda að þessu leyti.
Fyrir hönd umbjóðenda minna mótmæli ég þeim sjónarmiðum stefnanda, sem þarna koma fram. Ég held því fram að nefnd bráðabirgðalög séu ekki andstæð íslenskum stjórnskipunarlögum. Engar skýringar er heldur að finna á því, hvaða alþjóðlegu sáttmálar
og samningar það eru, sem átt er við eða hvaða erlendu ríki það eru, sem vísað er til um sambærilegar grundvallarreglur. Þetta skal tekið fram:
a. Um 2. gr. stjórnarskrár:
Stefnandi heldur því fram að löggjafinn geti ekki gripið fram fyrir hendur dómstóla með þeim hætti sem gert var. Löggjafanum sé óheimilt að taka aftur eignarréttindi afmarkaðs hóps manna sem honum hafði sérstaklega verið dæmd örfáum dögum áður af æðsta dómstól á sviði vinnuréttar. Með þessu sé brotið gegn meginreglunni um þrískiptingu ríkisvaldsins, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944.
Á þessi sjónarmið verður ekki fallist. Með dómi sínum kvað Félagsdómur á um, hvernig skýra bæri tilteknar greinar í kjarasamningi fjmrh. og BHMR. Niðurstaða dóms um tiltekið sakarefni bindur ekki hendur löggjafans til að breyta gildandi rétti. Með lögum nr. 89/1990 er hluta kjarasamnings BHMR og fjmrh. breytt þannig að 4,5% launahækkun, sem fólst í kjarasamningunum óbreyttum, féll niður frá og með 1. sept. 1990. Með því var breytt þeirri réttarheimild, sem greiðsluskylda samkvæmt dóminum var byggð á. Ekki verður fallist á það með stefnanda að löggjafinn sé bundinn til frambúðar við það réttarástand, sem dómstólar hafa kveðið á um að sé gildandi réttur, er dómur gekk. Löggjafinn hefur óumdeilanlega vald til að breyta gildandi rétti. Í 2. gr. stjórnarskrárinnar felst ekki það hlutverk eða staða dómsvalds að þegar dómstóll hafi kveðið upp dóm sé þar með komin óbreytanleg niðurstaða til frambúðar sem önnur grein ríkisvaldsins, þ.e. löggjafarvald, fái ekki hróflað við.
b. Um 28. gr. stjórnarskrár:
Stefnandi telur að skilyrði 28. gr. stjórnarskrár um að brýna nauðsyn hafi borið til útgáfu nefndra bráðabirgðalaga hafi ekki verið fyrir hendi. Hvað sem eldri viðhorfum líði skuli dómstólar taka til sjálfstæðrar skoðunar hvort slík skilyrði séu til staðar. Málatilbúnaður stefnanda sé miðaður við að slík sjálfstæð skoðun fari fram.
Þessi sjónarmið stefnanda verður heldur ekki fallist á. Bráðabirgðalöggjafinn á sjálfur endanlegt mat um það hvenær hin brýna nauðsyn er fyrir hendi. Dómstólar eru ekki bærir til að taka til endurskoðunar hið huglæga mat bráðabirgðalöggjafans um það hvort brýn nauðsyn hafi legið til grundvallar lagasetningu eða ekki.
Jafnvel þótt fallist yrði á sjónarmið stefnanda þess efnis að dómstólar gætu tekið mat bráðabirgðalöggjafans að þessu leyti til endurskoðunar er hafið yfir vafa að brýn nauðsyn í skilningi 28. gr. stjórnarskrárinnar var fyrir hendi við setningu laga nr. 89/1990. Í bréfi fjmrn. til embættis ríkislögmanns á dskj. nr. 22 er rakið hvernig mál horfðu við ríkisstjórninni eftir að dómur Félagsdóms lá fyrir í máli BHMR hinn 23. júlí 1990. Samkvæmt því sem þar kemur fram er alveg víst að brýn nauðsyn krafðist þess að ríkisstjórnin gripi til þeirrar lagasetningar sem sett var hinn 3. ágúst sl. Hér verður að líta til þeirra afleiðinga sem það hefði haft ef til lagasetningar hefði ekki komið. Núgildandi kjarasamningar í landinu, þar á meðal
kjarasamningar BHMR og fleiri, hafa margir hverjir að geyma ákvæði þess efnis að fái launþegar sem taka laun samkvæmt öðrum kjarasamningum launahækkun, skuli viðkomandi einnig fá þá launahækkun. Stundum eru forsendur kjarasamninga byggðar á því að aðrir launþegar fái ekki launahækkun umfram það sem viðkomandi kjarasamningur segir. Þetta á við um þjóðarsáttarsamninga ASÍ frá febrúarmánuði sl. Hefði ekki verið gripið inn í með lögum hefðu launahækkanir til BHMR-félaga hrint af stað launahækkunum annarra launþega sem gert höfðu kjarasamninga og þar með hækkun launa og verðlags í þjóðfélaginu. Þar með var kollvarpað þeim stöðugleika sem að var stefnt með þjóðarsáttarsamningunum og þeim mikla árangri í baráttu við verðbólgu sem þegar á sl. sumri hafði náðst með þessum samningum. Þessar víxlhækkanir hefðu dunið yfir strax í kjölfar Félagsdóms. Ókleift var að bíða þess að Alþingi kæmi saman. Með því að gera það hefði skaðinn þegar verið skeður. Um þetta vísast nánar til dskj. nr. 22.
Á það skal jafnframt lögð áhersla að ekki var gripið til lagasetningar fyrr en fullreynt var að ekki tækjust samningar milli fjmrh. og BHMR um breytingu á kjarasamningum þannig að hann gæti samrýmst þjóðarsátt. Um það vísast til dskj. nr. 17, sem skýrir hvaða gögn fóru á milli aðila í samningaviðræðum dagana 25. -- 31. júlí sl. Enn fremur til bréfs fjmrn. á dskj. nr. 22, þar sem rakið er efni þeirra viðræðna, sem á þessum tíma fóru fram.
c. Um 67. gr. stjórnarskrár:
Þá heldur stefnandi því fram að bráðabirgðalög nr. 89/1990 feli í sér ólögmæta skerðingu á eignarrétti. Þau svipti afmarkaðan hóp launþega hluta þeirra launa sem þeir fengu greidd frá 1. júlí 1990 án þess að nokkrar bætur komi fyrir og séu að því leyti ólík öðrum tilvikum þar sem gripið hafi verið með lögum inn í gildandi kjarasamninga. Skerðing sú á eignarrétti sem felist í bráðabirgðalögunum sé ekki almenn, heldur sérstök í þeim skilningi að hún beinist að afmörkuðum hópi manna og lækki laun hans frá því sem ákveðið hafði verið.
Ekki verður fallist á réttmæti þessara sjónarmiða. Kemur þar fyrst til að ekki er unnt að telja vinnulaun sem ekki hefur verið unnið fyrir eign í skilningi 67. gr. stjórnarskrár. Gagnstæð niðurstaða mundi gilda um laun sem þegar hefur verið unnið fyrir. Launakrafa stofnast að meginstefnu til ekki fyrr en vinnuframlagið hefur verið innt af hendi og launþegi hefur ekki þær heimildir sem felast í eignarréttindum þegar um væntanleg laun er að ræða. Löggjafinn hefur ótvíræða heimild til að breyta reglum um laun sem ekki hefur verið unnið fyrir á þeim grundvelli að þau njóta ekki verndar 67. gr. stjórnarskrár. Skiptir þá engu hvort um er að ræða stærri eða þrengri hóp sem ákvörðunin beinist að. Þannig hefur löggjafinn á ýmsum sviðum sett því skorður á hvaða verði vinna eða vörur eru seldar. Ekki fæst séð að ákvæði stjórnarskrár séu því til fyrirstöðu, sbr. einkum 69. gr.
Þá er ekki heldur unnt að samsinna því að skerðing launa samkvæmt bráðabirgðalögunum sé sérstök í
þeim skilningi að hún beinist að afmörkuðum hópi manna. Samkvæmt 1. gr. laganna taka þau til þeirra kjarasamninga sem samkvæmt ákvæðum sínum eru í gildi við gildistöku laganna. Eins og fram kemur í bréfi fjmrn. á dskj. nr. 22 ná lögin þannig til kjarasamninga um það bil 90% launþega í landinu.
Að auki kemur fram í gögnum málsins að ASÍ hafi þegar eftir uppkvaðningu Félagsdóms haft uppi kröfur á hendur sínum viðsemjendum um sömu launahækkun og BHMR fékk og vísað þar til orðaðra forsendna í samningum sínum. Enn fremur að VSÍ og VMS hafi fallist á að verða við þeirri kröfu. Lögin eru því ótvírætt almenn með því að þau svipta stærstan hluta launþega í landinu með sama hætti launahækkun, sem þeim hafði verið ákveðin. Þar eru félagsmenn í BHMR ekki í neinni sérstöðu. Það verður því ekki á það fallist að skerðing launa samkvæmt lögunum hafi beinst að afmörkuðum hópi manna, svo sem segir í málatilbúnaði stefnanda. Það voru einmitt þessar væntanlegu launahækkanir til annarra en BHMR-félaga og þar af leiðandi víxlhækkanir launa sem beinlínis voru tilefni til lagasetningarinnar.
d. Um 73. gr. stjórnarskrár:
Loks telur stefnandi að lög nr. 89/1990 og einkum 2. og 4. gr. þeirra séu andstæð félagafrelsisákvæði 73. gr. stjórnarskrárinnar. Stefnandi telur að slík löggjöf grafi undan starfsemi frjálsra stéttarfélaga og leiði til þess að félagsmenn glati trú á gildi þess að starfa í skipulögðum félagsskap með löglegum hætti til að bæta kjör sín og réttindi. Telur stefnandi að bráðabirgðalögin grafi undan þeim hugmyndum, sem 73. gr. stjórnarskrárinnar er reist á.
Vandséð er hvernig 73. gr. stjórnarskrár getur varðað kröfugerð stefnanda þessa máls. Ákvæði þeirrar greinar snýr að félagasamtökum sem slíkum. Stéttarfélag stefnanda er ekki aðili málsins. 73. gr. stjórnarskrár er máli stefnanda óviðkomandi.``
Herra forseti. Ég taldi nauðsynlegt að þetta kæmi inn í þessa umræðu og tel að með þessum röksemdum sé greinilega þeim efasemdum eytt sem fram hafa komið um það að þessi lög kunni að stangast á við stjórnarskrána.
Að lokum vil ég fara nokkrum orðum um fullyrðingar sem uppi hafa verið hafðar af andstæðingum þessara laga hér á Alþingi um það að hæstv. forsrh. hafi ekki sagt þingi og þjóð satt þegar hann fullyrti að fyrir þessum lögum væri meiri hluti á Alþingi. Það vill svo til að a.m.k. 34 af hv. alþm. eru meðmæltir þessum lögum og taka á þeim ábyrgð og vilja samþykkja þau. Þar af leiðir að þá þegar af þeirri ástæðu heldur sú fullyrðing forsrh. að meiri hluti hafi verið fyrir lögunum. Hins vegar vildi svo til að hér í Nd. voru efasemdir í hugum þriggja stjórnarsinna um þessi lög og þeir lýstu reyndar andstöðu sinni við þau í bili. Það hefði getað orðið til þess að bráðabirgðalögin féllu í þessari deild jafnvel þó að svo mikill meiri hluti réttkjörinna alþingismanna styddi þessi bráðabirgðalög. Þetta er sönnun fyrir því að afnema hið úrelta deildaskipulag Alþingis og koma hér hið fyrsta á einni málstofu þannig að meiri hluti nái með eðlilegum hætti vopnum sínum. Sem betur fer (Gripið fram í.) þú færð orðið á eftir, hv. þm., sem betur fer hefur ábyrgðartilfinning einstakra þingmanna hér í Nd. leitt til þess að þeir hafa ákveðið að bregða ekki fæti fyrir þessa lagasetningu þannig að henni er tryggður greiður gangur í gegnum þingið og er það vel. Það var okkur sem að þessari lagasetningu stóðum svo sem ekkert tilhlökkunarefni að standa að henni. Við hefðum öll sömul miklu heldur viljað komast hjá því. En undan því varð ekki vikist vegna þess að við höfum tekið að okkur að stjórna landinu og við höfum tekið að okkur að reyna að stuðla að heilbrigðri efnahagsþróun og að þjóðarsáttin nái fram að ganga sem ég tel að allir hv. alþm. ættu að hafa í huga og öllum alþm. ber að reyna að standa vörð um. En það samræmist því náttúrlega ekki í öðru orðinu að þykjast vera fylgismenn þjóðarsáttar en standa svo fyrir skemmdarverkum á þjóðarsáttinni að hinu leytinu.