Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Ég þarf ekki miklu við það að bæta sem hér hefur komið fram í ágætri ræðu 1. flm., hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur. Ég vil taka undir orð hæstv. dómsmrh. að hér er um réttlætismál að ræða og mikið mál í huga okkar Sunnlendinga. Við teljum að okkar byggð hafi því miður verið afskipt hjá þessari miklu stofnun, Ríkisútvarpinu, nú um alllangt skeið.
Sem betur fer hefur Ríkisútvarpið verið að byggja sig upp víða um land og þetta hefur, má segja, orðið til þess að þjappa landsmönnum saman og gefa þeim færi á að sitja við sama borð. Eins og hér kom fram eru þetta sex þúsund heimili á Suðurlandi. Mikið starf fer fram í því kjördæmi, að því er okkur finnst. Þegar þessu er þjónað hér af höfuðborgarsvæðinu verðum við, eins og hjáleigan, dálítið afskiptir. Þess vegna legg ég áherslu á að þetta þingmál fái þinglega meðferð og góða umfjöllun í nefnd. Fyrsta skrefið væri, eins og fram kemur í ályktuninni, að ráða þarna til starfa fréttamann. Og annað skrefið síðar væri auðvitað að á Suðurlandi yrði reglulegt svæðisútvarp eins og viðgengst í hinum einstöku landshlutum. Við höfum að vísu ágæta fréttaritara hjá útvarpi og sjónvarpi sem vinna gott starf.
Ég lýk orðum mínum með því að fagna þáltill. og vænti þess að hún fái framgang á þessu þingi.