Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að biðja hæstv. forseta um utandagskrárumræðu vegna enn einnar uppákomu í sambandi við stjórnun fiskveiða. Og ég þakka hæstv. forseta fyrir að verða við beiðni minni um umræður hér utan dagskrár.
Svo er mál með vexti að á forsíðu Þjóðviljans sl. laugardag er haft eftir eftirlitsmanni sjútvrn. að yfirvigt í afurðum frystitogara sé allt að 10%. Eftirfarandi kemur þar fram, með leyfi hæstv. forseta:
,,Ægir Ólafsson, veiðieftirlitsmaður hjá veiðieftirliti sjútvrn., segir að samkvæmt þeirra pappírum sé yfirvigtin hjá frystitogurum fram hjá kvóta allt að 2 kg í hverjum 20 kg pakkningum, eða um 10%. Hann segir að auðvitað safnist þetta saman og þetta mál verði að taka föstum tökum.``
Enn fremur kemur hér fram: ,,Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur síðustu ár rannsakað nýtingu afla frystitogara og að sögn Jóns Heiðars Ríkharðssonar hefur hún að jafnaði verið um 55% á botnfisktegundum sem þýðir þá að 45% er hent.`` Þetta á við um nýtingu hvers fisks.
Ég vil ítreka það, hæstv. forseti, að hér er mjög alvarlegt mál á ferðinni. Á síðasta ári voru fryst úti á sjó um 108 þús. tonn. Ef um er að ræða einhverja yfirvigt í þessum pakkningum, eins og kemur fram hjá eftirlitsmanni sjútvrn. að sé, þá er það fiskur utan kvóta. Þetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi þeirrar staðreyndar að frystiskip hafa verið að kaupa aðra upp í þessari svokölluðu hagræðingu. En hagræðing í sjávarútvegi fer þannig fram, að mati hæstv. sjútvrh., að útgerðarmenn kaupi upp vandamál hvers annars.
Ég vil í framhaldi af þessu spyrja hæstv. sjútvrh.: Vill hæstv. sjútvrh. staðfesta það hér að eftirlitsmaður ráðuneytisins fari með rétt mál um að yfirvigt umfram leyfilegan afla hjá frystitogurum sé allt að 10%?
Í öðru lagi vil ég spyrja: Hversu lengi hefur hæstv. sjútvrh. verið þetta ljóst og hvers vegna hefur ekkert verið aðhafst í málinu?
Í þriðja lagi vil ég svo ítreka þetta: Vill hæstv. sjútvrh. afhenda sjávarútvegsnefndum Alþingis þau gögn sem til eru um þetta mál í ráðuneytinu ásamt margnefndum kvóta trillubáta eða svokallaðri tilraunaúthlutun? Er eitthvað í þessum gögnum sem hæstv. sjútvrh. getur rökstutt hér fyrir hv. Alþingi? Hvers vegna megum við sjávarútvegsnefndarmenn ekki fá þessi gögn um trillukvótann? Hvers vegna er þetta svona voðalega mikill trúnaður? Hvers vegna megum við ekki fá þessi gögn?