Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegur forseti. Hv. þm. hafði samband við mig um hádegisbilið og spurðist fyrir um það hvort ég hefði eitthvað á móti því að hér færu fram umræður utan dagskrár um þetta mál. Ég sagði að það væri að sjálfsögðu undir Alþingi komið að ákveða slíka umræðu en ég vissi ekki til þess að sú umræða ætti að fara hér fram í dag fyrr en fyrir nokkrum mínútum síðan. Ég vil samt reyna að svara hv. þm. eftir bestu getu um þetta mál.
Hér liggur til grundvallar frétt í dagblaðinu Þjóðviljanum frá sl. laugardegi. Sá veiðieftirlitsmaður sem hér er vitnað í segist ekki hafa viðhaft þessi orð og fréttin sé röng. Hann segist hafa verið spurður um það hvort það væri rétt að þessi umframvigt væri allt að 10% og hann svarar því til að hann kannaðist ekki við það. Hann mun að sjálfsögðu leiðrétta þetta. Ég hef ekki haft tækifæri til að ræða við hann en ég veit að hann hefur komið athugasemdum á framfæri við blaðið um þetta mál.
Hið rétta í málinu er að fyrir alllöngu síðan var gert úrtak á afla um tíu frystiskipa. Þetta úrtak var ekki mjög stórt. Í flestum tilfellum var enginn munur en í öðrum tilfellum var lítils háttar munur. Nú hefur verið ákveðið, og það er hv. alþm. kunnugt um vegna þess að við höfum afhent þeim uppkast að þeirri reglugerð, að breyta vigtun að því er frystitogarana varðar um næstu áramót. Og hv. þm. er jafnframt kunnugt um það, af fundi sem þeir áttu með aflanýtingarnefnd fyrir nokkru síðan, að það verða teknir upp einstaklingsbundnir nýtingarstuðlar fyrir hvern og einn frystitogara frá og með næstu áramótum.
Ég tel mig því hafa svarað spurningunum. Fréttin er röng og þar af leiðandi hefur sjútvrh. ekki verið það ljóst sem þarna er sagt, enda ekki rétt. Í þriðja lagi um að afhenda sjávarútvegsnefndum öll þau gögn sem til eru. Ég hef svarað því áður. Ég er tilbúinn að afhenda sjávarútvegsnefndum þær upplýsingar sem spurt er um en ég get ekki lofað því fyrir fram að afhenda öll gögn sem í ráðuneytinu kunna að vera, enda hlýtur að vera aðalatriðið fyrir alþingismenn að fá upplýsingar um það sem spurt er um en ekki öll gögn ráðuneytanna. Það eru aðrir sem fylgjast með framkvæmdarvaldinu, það er Ríkisendurskoðun. Ég vænti þess að það sé vel gert og hún gefur Alþingi skýrslu um það hvernig framkvæmdarvaldið stendur að sínum málum.