Stjórn fiskveiða
Mánudaginn 10. desember 1990


     Jón Sæmundur Sigurjónsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil einungis þakka fyrir þá velvild sem hæstv. forseti hefur sýnt mér og hæstv. sjútvrh. svo og frsm. Kristinn Pétursson að fá að koma með óskylt mál inn í þessa umræðu. Mér hefur fundist sem leikmanni að það hefði verið sterkara ef hægt hefði verið að notfæra sér þann möguleika að senda fleiri skip á miðin til að fylgjast með loðnugöngu fyrir Norðurlandi. Þetta er það veigamikið mál fyrir atvinnulíf viðkomandi staða, frá Bolungarvík til Raufarhafnar um Siglufjörð og Akureyri. En ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir greinargóð svör. Ég veit að á þessum málum er tekið af fullri ábyrgð.