Guðmundur H. Garðarsson :
Virðulegi forseti. Það var eiginlega niðurlag þess sem hv. þm. Stefán Guðmundsson sagði hér áðan sem fékk mig til þess að kveðja mér hljóðs. Þegar hv. þm. segir við þingmenn sem eru að leita eftir gögnum til þess að geta sinnt sínum skyldustörfum að þeim standi til boða að fá að líta á gögn á nefndarfundum, þá vekur það auðvitað furðu. Ég hefði álitið að þingmenn þyrftu ekki að leita til ráðuneyta með þeim hætti sem fram kemur í þeirri umræðu sem fram hefur farið um það hvort þingmenn hefðu aðgang að eða fengju gögn hvort sem það er í sjávarútvegsmálum eða í öðrum málum. (Gripið fram í.) Já, stæði til boða, sagði hv. þm. Þeim stendur til boða, sagði einn hv. þm. Við erum hér 21 þingmaður í þessari virðulegu deild. Það er ekki á valdi einstakra þingmanna, þó þeir séu stuðningsmenn ríkisstjórna, að taka svona til orða, að öðrum þingmönnum standi til boða, þótt hv. þm. sé formaður sjútvn. Ed. Það sem ég á við er það að ef það er óljóst að þingmenn hafi aðgang að nauðsynlegum skjölum eða gögnum úr ráðuneytum um mál sem þeir þurfa að fjalla um með þeim hætti sem hér hefur verið lýst, þá er full þörf á því að setja lög sem taka af öll tvímæli, ekki aðeins hvað þetta mál varðar heldur almennt. Ég mun fyrir mitt leyti þess vegna beita mér fyrir því að fram komi hér frv. sem feli það í sér að hvorki ráðherrar né aðrir valdamenn geti haldið gögnum frá hv. þm. sem eru þeim nauðsynleg til þess að þeir geti gegnt sínum skyldustörfum.