Öflun gagna um veiðiheimildir smábáta
Mánudaginn 10. desember 1990


     Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Ég var að fletta hér frv. sem ríkisstjórnin hefur lagt fram um upplýsingaskyldu stjórnvalda. Vegna þess að það tengist þessu máli sem við erum hér að fjalla um, þá langar mig til þess að lesa upphaf 6. gr., virðulegi forseti:
    ,,Réttur almennings til að kynna sér gögn hjá stjórnvaldi eða stjórnsýsluhafa nær til:
    1. Allra gagna sem snerta mál sem komið hefur til afgreiðslu stjórnvalds, þar með talin endurrit bréfa sem stjórnvaldið hefur sent, enda megi ætla að bréfin hafi borist til viðtakanda.``
    Við getum sem sagt óskað eftir því, þegar frv. þetta verður að lögum, að öll þau bréf, sem sjútvrn. hefur sent til viðkomandi aðila sem við höfum verið að fjalla um, verði afhent okkur ekki síður en almenningi í landinu.