Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Í gildandi lögum er kveðið á um það nákvæmlega hvernig missiraskiptum skal háttað í Háskóla Íslands og sagt að haustmissiri byrji 15. sept. og því ljúki 23. jan. og vormissiri byrji 24. jan. og það endi 31. maí. Þetta frv. er flutt til þess að leyfa Háskólanum sjálfum að ráða sínu almanaki. Annað er nú ekki efni þessa frv., virðulegi forseti, og ég legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.