Guðrún J. Halldórsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég styð eindregið að þessi tillaga nái fram að ganga. Það er af hinu góða að þeir sem verst standa í samfélaginu fái þá bestu fyrirgreiðslu sem möguleg er og ég styð þetta því eindregið.
Í tilefni af því að þetta mál kemur fyrir langar mig til að spyrja hæstv. félmrh. hvort hún og ríkisstjórnin hafi ekki hugað að málefnum annarra sem eru mjög illa á vegi staddir, eiginlega fastir á milli tveggja kerfa núna? Það er það fólk sem hefur laun það há, oftast vegna þess að það stritar myrkranna á milli og jafnvel miklu lengur, að það fellur ekki undir hinn félagslega þátt og fær ekki félagslega íbúðafyrirgreiðslu en hefur alls ekki nógu hátt kaup til að geta fengið lán til að kaupa á almennum markaði. Sá hópur er þó nokkuð stór og virðist algerlega hafa gleymst í kerfinu.
Það er ótrúlega margt fólk sem stritar myrkranna á milli til að halda sér ofan sjávar og standa við sínar skuldbindingar og lendir svo í þeirri hörmulegu aðstöðu að það er eins og lús milli tveggja nagla. Það hefur ekki möguleika á að komast inn í almenna kerfið vegna þess að það hefur ekki nóg laun og það getur ekki unnið meira af því að það vinnur þegar svo mikið og er þar af leiðandi komið í þá aðstöðu að það getur ekki notið fyrirgreiðslu sem fólk fær við félagslegar íbúðir.
Ég spyr hæstv. félmrh. hvort ekki sé hugsanlegt að miðað sé við þau laun sem fólk fær fyrir dagvinnu sína þegar ákveðið er hverjir eigi rétt á því að fá félagsleg íbúðarlán? Ég held að þessi hópur sem núna er þó nokkuð stór og eru eiginlega allar bjargir bannaðar mundi minnka mjög mikið ef tekin væri upp sú regla að miða við dagvinnukaup fólks þegar ákvarðað væri hvort fólkið gæti komist undir félagslega íbúðakerfið. Þetta er brennandi mál og það er ótrúlega mikið af ungu fólki í dag sem veit ekki hvert það á að snúa sér. Það kannski þarf að flytja árlega eða oftar vegna þess að það missir íbúðirnar sem það hefur borgað leigu fyrir dýrum dómum, lendir í því að þurfa að fá okurlán til þess að borga fyrir fram íbúðaleiguna og kemst aldrei í þá aðstöðu að geta safnað sér svo miklu að það geti komist í íbúðakaup á venjulegum markaði.
Því vil ég spyrja hæstv. félmrh. hvort ekki sé hugsanlegt að breyta þessum viðmiðunarreglum annars vegar eða hvort hún hafi einhver önnur áform uppi sem geta greitt götu þessa fólks?