Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hæstv. félmrh. Ég spurði hvort það væri hægt að breyta viðmiðunarmörkunum þannig að miðað væri aðeins við dagvinnulaun. Því svaraði hæstv. félmrh. ekki. Ég bið hann um að íhuga það, hvort sem hann getur svarað því á þessari stundu eða ekki. En alla vega að íhuga það þá í framtíðinni.