Vísun mála til nefnda
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Þar sem mér þótti yfirlýsing forseta allsérstæð varðandi það hvort gert væri ráð fyrir að deildin úrskurðaði í hverju einstöku máli varðandi hvert bæri að vísa málum, þá vil ég, með leyfi forseta, lesa hér örfá atriði úr 15. gr. þingskapa sem mér virðast nánast óskiljanleg ef sú regla verður upp tekin að menn kjósa sér nefndir.
    Í 15. gr. segir, með leyfi forseta: ,,Til atvinnumálanefndar skal vísa þeim málum sem landbúnaðar - , sjávarútvegs - og iðnaðarnefndir í deildum mundu fjalla um ef borin væru fram í frumvarpsformi.``
    Það virðist dálítið erfitt að hafa það alveg fastákveðið í Sþ. að það skuli vísa --- ekkert ef til vill, heldur bara það ,,skal vísa`` þeim málum til atvinnumálanefndar sem landbúnaðar - , sjávarútvegs - og iðnaðarnefndir mundu fjalla um í deildum. Ef það er mjög á reiki hvert málin eiga að fara í deildum, þá er alveg vonlaust að hafa hitt fast. Því vona ég að menn geri sér grein fyrir. Það stangast því gjörsamlega á við þingsköp að hægt sé að taka upp þá reglu að kjósa sér nefndir. Þessu hafa forsetar þingsins, þeir sem hér hafa stjórnað á undanförnum árum, gert sér grein fyrir og leiðbeint þess vegna.
    Ég vil einnig vekja athygli forseta á því að í sömu grein segir: ,,Að jafnaði skal vísa hverju máli til sömu fastanefndar í báðum deildum.``
    Nú blasir það við að með því að menn kjósi sér nefndir, þá er ekkert sennilegra en að málum sé vísað í aðra nefnd í efri deild heldur en í þeirri neðri. Og enn vil ég spyrja forseta: Hvernig hyggur hann þá að forseti Sþ. eigi að fara eftir hinum skilyrðislausu skilyrðum í 15. gr. þingskapa ef máli er í Nd. vísað í ákveðna nefnd, segjum til iðnn., en í Ed. öfugt, til heilbr. - og trn.? Ætli það sé þá ekki orðið erfitt að framkvæma það sem hér stendur, að málum sem í deild væri vísað til landbúnaðar - , sjávarútvegs - eða iðnaðarnefndar skuli í Sþ. vísað í atvmn.? Þetta gengur einfaldlega ekki upp. Það stenst ekki við lestur þingskapa ef menn skoða þetta að þetta frelsi eigi að vera hér til staðar. Og því miður hefur forseta orðið það á að gefa hér yfirlýsingu sem hvorki er í samræmi við þingvenjur né þingsköp.