Launamál
Þriðjudaginn 11. desember 1990


     Geir Gunnarsson :
    Herra forseti. Þegar 1. umr. fór fram um það frv. sem hér er til umræðu var ég staddur erlendis og átti því ekki kost á að gera grein fyrir afstöðu minni. Vegna þess að það hefur komið fram að það hefur vafist fyrir sumum þeirra sem að bráðabirgðalögunum stóðu hver mundi verða afstaða mín þegar til atkvæðagreiðslu kæmi á Alþingi þarf ég að fara nokkrum orðum um það atriði.
    Þegar Alþb. varð aðili að ríkisstjórn ríflega ári eftir síðustu alþingiskosningar greiddi ég atkvæði í miðstjórn flokksins gegn þátttöku Alþb. í ríkisstjórn vegna þess að um það var samið að láta viðgangast að svo mánuðum skipti skyldu gilda í landinu lög sem sviptu verkalýðsfélög þeim grundvallarmannréttindum sem samningsrétturinn er.
    Sú afstaða Alþb., að taka þannig á sig ábyrgð á þeim gerræðislögum sem flokkurinn hafði barist hatrammlega á móti þegar þau voru sett og gera þannig að sínum lögum, samrýmdist ekki grundvallarskoðunum mínum í stjórnmálum og lágmarkskröfum um pólitíska hegðan. Ég taldi ákvörðun flokksins hættulegan undanslátt í mannréttinda - og verkalýðsmálum og hélt því fram að sú afstaða gæti orðið upphafið að frekara fráhvarfi flokksins frá grundvallarstefnu í þeim efnum. Þetta var fyrir ríflega tveimur árum og munu nú ýmsir halda því fram að það hafi ræst.
    Ég lýsti því jafnframt yfir áður en aðild Alþb. að ríkisstjórn var samþykkt að ég mundi hlíta meirihlutaákvörðun miðstjórnar um þátttöku flokksins í ríkisstjórn, ef sú yrði niðurstaðan, og verja ríkisstjórnina vantrausti með atkvæði mínu.
    Þessi afstaða þýddi að sjálfsögðu ekki að ég mundi sjálfkrafa fylgja hverju einasta frv. sem ríkisstjórnin kynni að flytja í stjórnartíð sinni. Ég gaf að sjálfsögðu ekki ráðherrum flokksins, hvað þá heldur hæstv. forsrh., ráðstöfunarrétt á atkvæði mínu til hverrar þeirrar lagasetningar sem þeim kynni að hugkvæmast að reyna að knýja fram eftir að andstaða mín væri komin fram í þingflokki Alþb., þannig að mitt atkvæði væri til ráðstöfunar jafnvel til gerræðisverka eins og þeirra sem felast í því frv. sem hér er til umræðu. Um slíka fjarstæðu þarf ekki að hafa fleiri orð enda hygg ég að allur misskilningur í þessu efni sé úr sögunni.
    Í þingflokki Alþb. greiddi ég atkvæði gegn því að sett yrðu bráðabirgðalög vegna kjaradeilu BHMR og ríkisins og af minni hálfu kom aldrei annað til greina en að greiða atkvæði gegn staðfestingu þeirra á Alþingi. Þessa afstöðu varðandi atkvæðagreiðslu á Alþingi lét ég uppi við hvern þann sem hafði sig í það að inna mig eftir henni en það voru fyrst og fremst fréttamenn fjölmiðla. Afstaða mín lá því fyrir enda þótt enginn ráðherra, hvorki úr mínum flokki né öðrum, spyrði um hana fyrr en hæstv. menntmrh. 27. nóv.
    Ég vil jafnframt taka það fram að flokksmenn mínir hafa virt þessa afstöðu mína til bráðabirgðalaganna og enginn þeirra, hvorki ráðherrar né aðrir, nokkru sinni reynt að telja mér hughvarf eða svo mikið sem

orðað það að ég breytti afstöðu minni, jafnvel þótt ljóst væri lengst af að hún gæti ráðið afdrifum bráðabirgðalaganna. Ég met þessa framkomu flokksmanna minna mikils.
    Eins og ég áðan nefndi taldi ég það hættulegan undanslátt í mannréttinda - og verkalýðsmálum þegar Alþb. lét af þeirri kröfu sinni við síðustu stjórnarmyndun að afnumin yrðu lög fyrri ríkisstjórnar sem sviptu verkalýðsfélögin samnings - og verkfallsrétti og fallist var á að þau giltu svo mánuðum skipti í tíð núv. ríkisstjórnar. Sú ákvörðun sem var tekin við stjórnarmyndunina varðandi lagasetningu sem aðrir flokkar höfðu komið fram á Alþingi gegn atkvæðum Alþb. en flokkurinn tók þá umdeilanlega ábyrgð á með því að gera það ekki að ófrávíkjanlegu skilyrði að þau yrðu afnumin við þátttöku flokksins í ríkisstjórn. En Alþb. hafði þó ekki átt þátt í setningu laganna heldur barist á móti þeim. Ég lít því enn alvarlegri augum þá ákvörðun flokksins sl. sumar að styðja og jafnvel eiga innan ríkisstjórnarinnar frumkvæði að lagasetningu um réttindasviptingu af sama toga.
    Aðdragandi þess máls sem hér er fjallað um hefur svo oft og rækilega verið rakinn að óþarft er að fara um hann mörgum orðum. Hinn 18. maí 1989 gerðu BHMR og fjmrh. kjarasamning sem báðir aðilar rituðu undir og staðfestur var með bókun í ríkisstjórn. Ætla verður að báðir aðilar hafi haft fullan hug á að framfylgja þeim samningi eftir ákvæðum hans. Þann 1. febr. sl. voru síðan gerðir samningar milli ASÍ og VSÍ á nokkuð öðrum grundvelli en samningurinn milli BHMR og ríkisins. Í stað þess að taka tillit til gildandi og löglegs samnings BHMR og ríkisins og aðlaga þann samning sem verið var að gera að þessum gildandi kjarasamningi, þá var eftir því sem fram hefur komið það handsalað, a.m.k. milli ríkisins og Vinnuveitendasambandsins, að hafa löglegan samning ríkisins við BHMR að engu. Í kjölfar þess var neitað að inna af hendi umsamda launahækkun til félagsmanna BHMR 1. júlí. Þegar þeirri einhliða ákvörðun ríkisins var hnekkt af Félagsdómi 23. júlí sl. og stjórnvöldum gert ókleift að svíkja samning sinn með þeim hætti sem reynt var, þá var seilst til valdbeitingar og bráðabirgðalög sett til þess að hnekkja niðurstöðu dómsins.
    Þessar aðfarir eru með þeim ólíkindum að ég hefði að óreyndu ekki trúað því að ég ætti eftir að sjá slíkri valdníðslu beitt gegn stéttarfélagi og dómstólum landsins af nokkrum stjórnmálaflokki og þá síst mínum eigin. Hér er ekki einungis ráðist á samningsréttinn heldur er dómsvaldið bælt niður í einni og sömu aðgerðinni.
    Menn hafa deilt um hvort hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða. Mig brestur þekkingu til að dæma um það en að mínum dómi brjóta þessar aðgerðir, þessi lagasetning gegn öllum lágmarkskröfum um samningsrétt verkalýðsfélaga og gegn pólitísku siðgæði.
    Þessi lagasetning brýtur gegn samvisku minni og sannfæringu um rétt og rangt. Ég get því ekki annað en greitt atkvæði gegn bráðabirgðalögunum. Í því felst enginn dómur um kjarasamninginn sem slíkan, en hafi

ríkisvaldið vaknað upp við það að löglegur og gildandi samningur sem það hafði gert við aðila vinnumarkaðarins væri ekki lengur jafnþolanlegur og hann var við undirritun, þá átti að segja þeim samningi upp strax og ákvæði hans heimiluðu.
    Fulltrúar valdbeitingarinnar gegn gildum samningi halda því fram að tilvist annarra samninga sem síðar voru gerðir réttlæti slíkar aðgerðir. Einfaldlega að tilgangurinn helgi meðalið, að það sé leyfilegt að ógilda löglega samninga sem stjórnvöld hafa sjálf undirritað og bera ábyrgð á, að það sé hægt að svipta frjáls stéttarfélög samningsrétti og það sé réttlætanlegt að brjóta niður dóma með valdboði vegna þess að þetta sé allt saman vel meint og í góðum tilgangi gert. Tilgangurinn helgi meðalið. Ég spyr: Hefur valdbeiting og gerræði, ofbeldi og valdníðsla ekki verið réttlætt með góðum tilgangi með þeim afleiðingum sem þjóðir hafa kynnst öld eftir öld nógu oft og nógu víða í heiminum til þess að Alþingi Íslendinga láti það ekki verða hlutskipti sitt þessa dagana að bætast þar í hópinn? Því að þetta mál er eingöngu réttlætt á þeirri forsendu, og þeirri forsendu einni, að tilgangurinn helgi meðalið. Hvert erum við að stefna og skyldi eftirleikurinn ekki geta orðið einhverjum auðveldur hér á hv. Alþingi ef þessi valdníðsla nær fram að ganga?
    Sú þjóðarsátt, sem er hinn góði tilgangur sem helgar meðalið og er gerð að blóraböggli fyrir stjórnunarlegu og pólitísku ofbeldi, er stund milli stríða í annars viðvarandi átökum um skiptingu þjóðartekna milli launafólks og atvinnurekenda. Ríkisstjórn Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. sem hrökklaðist frá völdum haustið 1988 skildi við þjóðarskútuna á hliðinni. Atvinnufyrirtæki í framleiðsluatvinnugreinum voru að stöðvast hvert af öðru og fjöldaatvinnuleysi blasti við.
    Eftir að Alþb. kom inn í ríkisstjórn í stað Sjálfstfl. hafa umskipti orðið í efnahagsmálum. Tekið hefur verið á vanda atvinnulífsins með margháttuðum aðgerðum í efnahagsmálum og haldið hefur verið af festu á fjármálum ríkisins. Þessar aðgerðir ásamt bata í ytri aðstæðum hafa stóraukið framleiðni í undirstöðuatvinnugreinum og gjörbreytt stöðunni í þjóðarbúskapnum. En þessi árangur hefur ekki náðst án fórna launafólks í öllum starfsgreinum heldur jafnvel hvað helst vegna þeirra fórna.
    Þegar hagur fyrirtækja hefur nú verulega batnað, þá verður engin þjóðarsátt til langframa um þær þurftartekjur sem ýmsir búa nú við.
    Á sama tíma og ýmiss konar þjónustu - og einokunarfyrirtæki maka krókinn og auka gróða sinn dag frá degi hefur kaupmáttur rýrnað. Það er ljóst að það er blekking eða a.m.k. vanmat á forustu verkalýðsfélaganna að ímynda sér að lengi enn uni launafólk við þurftartekjur sem eru skattlagðar til tekjuskatts þegar unnið er fyrir þeim og aftur skattlagðar með virðisaukaskatti þegar því sem eftir er er varið til kaupa á brýnustu matvælum. Á hinn bóginn eru tekjur sem notaðar eru til kaupa á hlutabréfum frádráttarbærar frá tekjuskatti og enginn virðisaukaskattur á hlutabréfakaupunum heldur er arður af þeim kaupum og verðmætisaukning hlutabréfa tekjuskattslaus. Og á sama

tíma og kaupmáttur þurftarlauna rýrnar hafa hlutabréf í ýmsum umsvifamestu fyrirtækjum í landinu aukist að raungildi um meira en 100% á einu ári og það ekki stefnt þjóðarsátt í hættu svo vitað sé.
    Í tímaritinu Vísbendingu frá 25. okt. sl. segir, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Samkvæmt áætlun og spá Þjóðhagsstofnunar um vinnuafl og framleiðslumagn á árunum 1989 -- 1990 má gera ráð fyrir enn frekari framleiðniaukningu í fiskiðnaði þannig að í árslok 1990 ætti framleiðni að hafa aukist um 35% frá 1987 á sama tíma og kaupmáttur hefur rýrnað um 10%.`` Halda menn að um þessa ráðstöfun verðmætisaukans í þjóðfélaginu verði einhver framtíðarsátt? Hversu heitt sem einhverjir kunna að óska hins gagnstæða, þá hafa hagsmunamótsetningarnar í þjóðfélaginu ekki liðið undir lok með ákveðnum kjarasamningum, hversu ágætir sem þeir kunna að vera.
    Það ætti öllum að vera ljóst að tíma kjaraskerðinga vegna óstjórnar og ráðleysis ríkisstjórnar Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl., sem lét af völdum 1988, verður nú að ljúka og fram undan er það verkefni að færa árangur stjórnarstefnunnar í efnahagsmálum til launafólks í landinu með auknum kaupmætti. Það hefur ekki verið gert enn.
    Vandinn í sambandi við þjóðarsáttina og spurningin um áframhald hennar er ekki sérstaklega í tengslum við samning BHMR og ríkisins heldur sá að hún er í eðli sínu einungis stund milli stríða, vopnahlé stétta meðan efnahagsmálin hafa verið rifin upp úr þeirri eymd og volæði sem ríkti í þeim efnum eftir viðskilnað fyrrv. ríkisstjórnar.
    Eftir því sem árangur af breyttri efnahagsstefnu kemur betur í ljós og birtist í bættri afkomu fyrirtækja og gróðamyndun í þjóðfélaginu styttist af sjálfu sér það tímabil að þjóðarsátt geti ríkt um þau þurftarlaun sem allt of margir búa við. Á slíkri þróun og misrétti í þjóðfélaginu verður lát fyrr en varir og launafólk hlýtur að teygja sig eftir árangrinum af fórnum undanfarinna ára. Sá árangur verður ekki tryggður með ofbeldisverkum gegn ákveðnum hópi launamanna og njóti slík aðför að frjálsum samningsrétti hvatningar eða aðildar samtaka annarra launamanna, þá ber það fyrst og fremst í sér þá hættu að þeim geiri sem nú er beint gegn BHMR verði beint gegn hinum almennu verkalýðssamtökum þegar valdhöfum býður svo við að horfa. Það er svo sannarlega verið að leggja þeim fyrirmyndina í hendur með staðfestingu bráðabirgðalaga sem eru valdníðsla gegn samningsrétti launafólks og dómstólunum í landinu. Ég stend ekki að slíkri aðför að lýðræðislegum réttindum almennings og réttarfari.
    Vorið 1984 tók ég þátt í kosningabaráttu Alþb. undir kjörorðinu ,,samningana í gildi``. Ég er enn sama sinnis um samningsréttinn og ég er ekki nægilega snúningslipur til þess að mér sé með nokkru móti unnt að greiða því nú atkvæði veturinn 1990 að afnema lögmæta kjarasamninga sem ríkisstjórn sem Alþb. á aðild að hefur gert við stéttarfélag.
    Þeir sem hyggjast hér á hv. Alþingi staðfesta

bráðabirgðalögin og fylgja þannig eftir valdbeitingu gegn félagsmönnum BHMR og Félagsdómi skáka þessa dagana mjög í skjóli þess að þeir hafi almenningsálitið með sér og að skoðanakannanir séu þeim hliðhollar. Ég hygg að hin gömlu sannindi ,,skamma stund verður hönd höggi fegin`` eigi eftir að sannast áður en lýkur. Það hefur æði oft og víða gerst að mannfjöldinn hefur heimtað Barrabas lausan en krossfest þann sem síst skyldi.
    Við þá atkvæðagreiðslu sem hér á eftir að fara fram geta engir hv. þm. skotið sér undan ábyrgð með því að skírskota til almennings eða skoðanakannana, með allri virðingu fyrir hvoru tveggja. Hér er að mínum dómi verið að greiða atkvæði um grundvallarleikreglur lýðræðis og mannréttinda og þar getur ekkert annað en eigin samviska og sannfæring ráðið afstöðu hvers og eins. Ég mun því greiða atkvæði gegn frv. --- [Fundarhlé.]